.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
föstudagur, ágúst 28, 2009

::ILLT...::

...er í efni ef maður man vart lykilorðið sitt á bloggið, en sonna eridda nú bara stundum :)

...og í enn verra efni er komið þegar maður veit vart um hvað skal blogga.

...en ég læt mig nú ekki vera þekkta fyrir að vera kjaftstopp, hell no :)

...en síðan síðast;
  • er erfinginn minn orðinn árinu eldri. Erfinginn sem spurði mig "skelkaður" um daginn hvort að ég ætti kærasta, það fannst mér verulega fyndið hehe. Hann er reyndar reglulega fyndinn sjálfur....hefur átt ansi góða spretti upp á síðkastið þar sem sumir frasanna munu jafnvel rata í næsta þorrablót ú jeee. Það sem ég er samt minna ánægð með er Metallica skeiðið sem hann er á núna....skil ekkert í því að hann hafi ekki erft tónlistarsmekk móður sinnar sem fólst í Michael Bolton og fleiri mætum tónlistarmönnum hehe.
  • er ég búin að eiga margar quality stundir með hundinum "mínum". Við höfum farið út á nes í alls konar veðurfari...en í eitt skiptið varð útlendingum svo um og ó að þeir stoppuðu mig og spurðu hvort að ég vildi far. Þetta var í mígandi rigningu og roki...en þegar ég afþakkaði pent kom dásamlegur svipur á þau og hafa pottþétt hugsað með sér "what a stupid icelander".
  • hefur mér verið bent á, svona í upphafi ferðar út á nes, að fara vinsamlegast ekki undir ákveðinn kílóafjölda svo ég verði eigi flatbrjósta....ég efast nú reyndar um að hætt sé við því í mínu tilfelli...
  • hef ég farið á hina dásamlegustu unglistarhátíð sem sögur fara af. Þess ber að geta að bumbusjóðurinn sigraði fyrirtækjakeppnina, reyndar naumlega, en sigur var það engu að síður...skil reyndar ekkert í því að við höfum ekki líka fengið búningaverðlaunin.
  • hef ég lent í lífsháska....þar sem ég hélt að kríur myndu stúta mér....og ég er voða voooooða glöð að enginn sá mig, svona með tilliti til aðstæðna og tímasetningar hehe :)
  • hef ég farið í sumarfrí...sem ég veit reyndar ekki hvert fór, sennilegast bara í Græna. Allavega er ég enn með marblett því til sönnunar, enda búin að fara í alvöru verk svo sem slá frá, moka upp úr grunni (þar sem ég var skömmuð því naglar og fleira drasl flaug of langt) og fleira svona Bubba byggir legt. Er alltílæ þegar ég, húsvörðurinn og frænkan færum til plamma...sem sex fullvaxta karlmenn áttu að færa til? Tja...kannski ef maður tekur til greina að húsvörðurinn er á við fimm....og við frænkur kannski á við hálfan hehe.
  • hef ég, þrátt fyrir svínaflensuótta, skotist til RVK og náð að eyða þar, svipuðu ef ekki meira en for ðí krepp in átlandis on a long wíííktrip......Skítt með það, ég á fyrir vikið alveg ógó flotta hlaupaskó....jájá:)
  • hef ég fengið dásamlegar heimsóknir :)
  • hef ég farið á HESTBAK ó já....og ég datt ekki af baki.....og held að ég gæti bara alveg aaaaalveg vanist þessu :)
  • hef ég hins vegar ekki málað þak og glugga hallarinnar líkt og ég var með háleit plön um....reyni að gera það bara næsta sumar :)

...númm og svo eru spennandi tímar framundan sem fylgir þessum uppáhalds árstíma mínum. Kindurnar fara að koma til síns heima og af réttum missi ég ekki í ár. Vonandi kemst ég í réttir óbrotin og á lífi.

...og svo byrja ég í (tónlistar)skólanum í næstu viku. Tók reyndar forskot á sæluna um síðustu helgi og spilaði á einhvurri kveldvöku með kennaranum...en það verður spennandi að sjá hvað mér verður sett fyrir í vetur :)

...sumsé, bara gleði gleði....og nú hef ég bloggað svo mikið að ég þarf ekki að blogga aftur fyrr en á aðfangadag! :)


~Ellan~ kl. 6:03 e.h. © ::

::