.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
sunnudagur, júlí 05, 2009

::MEN...::


...ég er latur bloggari. Enda hef ég takmarkaðan tíma til þess arna en bezt að týna til það helsta sem á daga mína hefur drifið síðan síðast.


...ég fór vitanlega í fjallaskokkið, enda ekki löglega afsökuð eins og sumir með tognað bak jaggidíjaggidíjagg. Bætti tímann lítillega síðan í fyrra, reyndar í formi sekúntubrota hehe, en samt sátt. Ástand fóta minna var líka með ágætum við "niðurkomu" svo ég var ekki löglega afsökuð að slá slöku við í hreyfingunni. Langar að fara aftur yfir fjall í sumar....tekst vonandi :)


...að loknu fótboltamóti fórum við mægðin í sumarbústað til ma og co. Það var lúvlí....voða voða lúvlí....borðuðum heimalagaðan ís í sveitinni, gerðum fíbblagang, spiluðum matador, ég prjónaði o.fl.


...heimilið telur nú 5 í heimili, þ.e. til viðbótar við okkur mæðgin, páfagaukinn og gullfiskinn höfum við ættleitt kött sem vantaði gott heimili. Örlög kattarins, sem ber hið virðulega nafn Sambó, eru reyndar döpur að þurfa að láta hin dýrin í friði...hann hefur nokkrum sinnum þurft að fara í skammarkrókinn fyrir að vera full vinalegur við fuglinn og fiskinn....en ekkert í dag. Á meðan hann lætur sér líka duga að fá sér aðeins súp hjá fiskinum er ég bara nokk happí með þetta :)


....mjá og svo ég hafi nú ekki alveg verið sú spenntasta fyrir þessari fjölgun í heimili verð ég víst að viðurkenna að mér finnst þessi nýji heimilismeðlimur hinn ágætasti. Við ræðum t.a.m. heimsmálin, hann étur flugurnar og er voða voða glaður þegar ég kem heim :) Ætli það styttist samt ekki í að ég bræði úr ryksugunni....hvað um það því fagur er þessi ´ssska :)



...svo sinni ég líka hundinum "mínum" sem á reyndar ekki lögheimili hjá mér. Í gær gerðum við okkur t.d. lítið fyrir að arka út að Ánastöðum og til baka. Í dag finnst mér það hins vegar ekki eins mikið afrek og í gær....og stefni að því að fara enn lengra við tækifæri.

...annars er það nýjasta og heitasta sú staðreynd að húsvörðurinn er farinn að notast við mig í heyskap. Nú þeysist ég um túnin í Græna á gugglfagglegum Massey, rauðum og opnum og veit svona nokkurn veginn hvað ég er að gera. Ég kann að bakka, skipta um gír, stoppa og taka af stað án þess að drepa á og já m.a.s. að setja í gang. Mér finnst þetta wúúúúnderfúl ;) Í dag þurfti ég reyndar að aka öðrum Massey frá Græna og út í Höfða (og já til baka) og fór svona smá krókaleiðir til að fólk yrði nú minna vart við mig. Neinei...þá var Helena náttúrulega úti með gesti....og svo mætti ég gömlu flingi....eða kannski ekki svo gömlu...og fling er kannski aðeins of vægt til orða tekið...á Strandgötunni, týpísk ég...týpísk. Bakaleiðin var því tekin með trompi og aðalleiðin farin án nokkurs vandræðagangs hehe

...og nú er ég hætt, finnst ég full málglöð svona rétt fyrir háttinn ;)


~Ellan~ kl. 11:06 e.h. © ::

::