.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
laugardagur, maí 30, 2009

::MÁ ÉG...::

...kynna herra Barða, heimalinginn í Græna. Já, þið sjáið rétt....hann tekur hlutverk sitt sem HEIMAling alvarlega og er þarna búinn að velta fyrir sér hvaða DVD mynd hann eigi að horfa á í kveld....og ætlar að því loknu út að skokka!



...sjáiði bara hvað hann er sææææætur :)


...svo skeit hann bara (já, húsvörðurinn þreif það upp hehe) og lagði sig :)


...þetta er lífið :)
...annars var farið upp í fjall í dag með nokkrar rolluskjátur, m.a. Surtlu, Gullu og Surtludóttur. Mikið er nú fallegt upp í fjalli að horfa yfir sveitina....þarf endilega að fara að rölta yfir fjallið við tækifæri.
...en þangað til næst...


~Ellan~ kl. 7:02 e.h. © ::

::


sunnudagur, maí 17, 2009

::GAMALL...::

...kennari minn var í Sjálfstæðu fólki í kveld. Mér var svo umhugað að hlusta á hvurt einasta orð sem hann hafði að segja að þegar mér barst símtal ákvað ég að taka þáttinn upp.

...hjá þessum kennara sat ég 3 kúrsa og satt bezt að segja situr hvað mezt eftir í höbbðinu á mér eftir tímana hans.

...þessi ágæti kennari hafði t.d. þetta að segja;

  • "Það er ekkert gaman að græða alltaf í hlutabréfabraski. Maður verður líka að tapa og hafa gaman af". Ok, kannski var hann nú ekki alveg að meina svona svert tap eins og margir horfa upp á núna....
  • "Kjánalegasta fjárfesting sem maður gerir er að kaupa nýjan bíl úr kassanum, því verðmæti bílsins lækkar alveg um 10% við að keyra bílinn út úr umboðinu. En þú getur ekki metið tilfinninguna við að keyra bílinn til fjár". O well, held að það sé margt til í þessu.....geri það kannski dag einn....þegar ég verð fullorðins :)
  • "Sko, það má alveg reikna út hagnað og tap við innlausn bréfa á ákveðnum tímapunkti miðað við ákveðnar forsendur. En þú ert ekki með gróða af sölu bréfanna í hendi fyrr en þú innleysir bréfin og færð allt greitt". Svooooo satt....
  • Og gott ef það var ekki hann sem sagði "maður tekur ekki lán fyrir kaup á einhverjum pappír".

...jamm svo mörg voru þau orð. Ég held að okkar blessuðu útrásarvíkingar hefði haft gott af því að sitja eins og einn kúrs hjá Vilhjálmi Bjarnasyni og virkilega hlusta á það sem hefði getað frætt þá um. Svo mörg voru þau orð :)


~Ellan~ kl. 10:06 e.h. © ::

::


föstudagur, maí 08, 2009

::JÆJA...::

...bezt að hysja upp um sig brækurnar í þessum bloggskrifum, en nó wurrrís ég ætla að verða heimsins síðasti bloggari svo hafið öngvar áhyggjur þó að ég taki mér smá pásur inn á milli, það kemur alltaf pistill á endanum :)

...númmm, það hefur alveg ýmislegt gerst síðan síðast. En þar sem er nú heldur langt síðan þá, held ég að "best væri" að telja bara upp það nýjasta og heitasta :)

  • erfinginn dansar alveg frábæran dans og syngur með "dash af kóríander", hélt ég myndi pissa á mig af hlátri í dag, slík voru tilþrifin. Ég mana ykkur til að óska eftir því að hann taki snúning fyrir ykkur.
  • litli bróðir erfingjans gisti um síðustu helgi. Svo bættist lil sys við og upphófst þá stíf dagskrá; sund, tónleikar (þar sem börnin sem mér fylgdu voru til algjörrar fyrirmyndar....enda myndarbörn öll sömul hehe), brauðbollugerð, arkað fram og til baka í Græna, pizzagerð og að lokum kósýkvöld yfir Shrek :)
  • svo er ég búin að vera alveg ógisslega dugleg að æfa mig, kem að tilgangnum nú rétt á eftir.
  • sauðburðurinn er hafinn í Græna. Sprellan bar 2 gimbrum í gær. Númm í gær sá ég í fyrsta skipti dautt lamb og svo er kominn heimalingur sem ég ætla að vera voða góð við á morgun og foreverandforever :)

....en þá að þessu allra heitasta. Eftir mikla vinnu við...;

  • æfingar á tónstigum, þ.e. dúrum, mollum, gagnstígum dúrum og mollum, arpeggíum, krómatískum, dúrum í þríundum og einhverjum afbrigðum er ég sjálfsagt að gleyma hér og eftir....
  • ...æfingar á 5 verkum eftir allra þjóða kvindi, ýmist dána fyrir billjónum ára eða bara svona fyrir hundrað árum, þ.e. tækniæfing, barrokk, sónata, rómantískt og nútímaverk...og já....
  • ...maður verður að leggja þetta allt á minnið utanbókar sem ég hafði ALDREI áður gert þrátt fyrir að hafa verið í tónlistarskóla alla mína hunds og kattartíð (þ.e. í grunnskóla hehe), en já...þá var sumsé...

...í dag arkað af stað í Bgnes til próftökunnar. Færið var það ágætasta, enda Lancer á nöglum og sídrifinn og þá eru manni allir vegir færir.

...til að gera langa sögu pínulítið styttri gekk prófið vel. Ég held ég megi fullyrða að aldrei áður hafi ég fengið svona góða einkunn í píanóprófi og kennarinn víst farinn að temja sér að vera strangari og því er ég enn roggnari með sjálfa mig :)

...en á heimleiðinni, þrátt fyrir vonir um annað, stöðvaði lögreglan okkur nemendurna á heimleiðinni (maðurinn var voða myndó, eða kannski að löggubúningurinn hafi eitthvað verið að blekkja....) og sagði okkur bara að halda áfram heim á leið en fara BRÖTTUBREKKU. Jebb, Brattabrekka og Laxárdalsheiði heim í sæluna, í annað skiptið síðan í mars. Er farin að óttast að örlög mín séu þau að þá sjaldan að ég breggði mér af bæ muni ég ætíð þurfa að fara þessa leiðina heim. Sem þýðir sennilegast að þá leið mun ég fara tvisvar í næstu viku wííííí.

....jamm, ég er sumsé æði hress. Hlakka til að sveitastússast um helgina, knúza lömb, hund, erfingjann og örugglega einhverja fleiri :)

...svo er ég enn að hlægja að þessu "ég hef ekki áhyggjur af því, enda vel ófrísk" bwahahahaaaa ;)


~Ellan~ kl. 10:53 e.h. © ::

::