...að sofa út en vaknaði þess í stað klukkan sjö, með hor og skælandi jibbbíkei...
...í gærkveldi var vinkonukvöld með pizzu, rauðvíni, prjónum, gúmmelaði og stelpumynd, það var yyyyndi.
...mín bíða ýmis verk í dag;
þarf að þrífa, byrjuð en er á skjaldbökuhraða.
þarf að gera góðverk, seinna í dag jájá.
þarf að æfa mig, er að spá í að láta það vera næsta verk.
þarf að brjóta saman þvott, það verður gert svo ég geti sofið í rúmi mínu í kveld.
þarf að hugsa um hundinn og jafnvel gefa rollunum, það er dáááásamlegt ;)
...í dag langar mig að;
baka, og bjóða í kaffi, sjáum til...
fara út að hlaupa, óráðlegt í ljósi hors og grenjs...
kaupa mér túlípana að þrifum loknum, geri það örugglega :)
arka með vinkonunni í döggubúð og græja sumarblómaræktun, kannski í næstu viku bara.
leggjast upp í sófa, horfa á stelpumynd og halda áfram að prjóna peysuna sem ég byrjaði á í gærkveldi....það er ekki option.
...af landbúnaðinum er þetta helst að frétta;
það styttist í sauðburð.
Sprellan er með tveimur lömbum.
Ella er með tveimur lömbum.
Borghildur er með einu lambi (hún er jú gemlingur svo það er nú í lagi hehe)
...jamm svo er planað partý í kveld. Reyndar kom upp smá óvissa með það í gær....en ef af verður á ég von á heljarinnar miklu fjeeeeeeri...enda aaaaaafar miklir stuðboltar þar á ferð. Vonast ég til að með drykkju kveldsins hreinsi ég horið út og verði orðin alveg eeeeeeeldhress á morgun jájá :)