...ég skelli ekki eins og einum pistli hér inn. Svona áður en það líður mánuður hehe.
...síðan síðast;
hefur félagsbúið mínus erfinginn plús ættfaðirinn brugðið sér til höfuðborgarinnar. Skoðuðum svolítið fallegt....sem dag einn verður mitt :)
var ég hundamamma eina helgi, hundkvikindið fann sér samt færi á því að skíta inn í herbergi húsvarðarins. Ekki skil ég hvenær hann gerði það....því ég klóraði honum öllum stundum og dekstraði við hann.
hef ég fundið nýstárlega aðferð við að fara út að labba með hundinn. Við örkum bara um jörð húsvarðarins.....og það eru sko lúmskar brekkur í Græna!!!!!
hef ég fjárfest í pizzaofni, djö....eru pizzurnar góðar úr honum. Einn matargestur um daginn varð reyndar að setja puttann upp í kok og losa sig við pizza a la ðí Sprell....ekki af því að hún var svo vond....hann hafði bara borðað yfir sig hehe.
hef ég lokið við að prjóna eitt stykki ullarpils. Er að huxa um að skilja það bara eftir hjá ma og athuga hvort að það verður ekki komin teygja í mittið þegar ég sæki það aftur hehe. Ég fór svo áðan og keypti mér meira garn....garn í nokkrum litum...enda er ég ekki alveg búin að ákveða hvað ég prjóna næst :)
hef ég tekið ræktina fastari tökum. Geri eitthvað á hverjum degi og í morgun náði ég persónulegu afreki á brettinu, fór lengra en nokkurn tíman áður...og það án þess að ofkeyra mér....vel gert! :)
fékk ég konudagsblóm....sem ég reyndar keypti mér sjálf. Ætlaði að fara að argast í mínum tilvonandi....en svo mundi ég eftir samtali sem við áttum á bóndadaginn þar sem ég var rukkuð um gjöfina hans...sem hann fékk aldrei. Svo ég ákvað að stofna ekki til óþarfa rifrildis hehe.
er ég búin að vera dugleg að æfa mig....og nýta mér frábæra æfingaraðstöðu....og búið er að setja niður dag fyrir stigsprófið sem ég mun ekki opinbera. Læt vita ef ég næ því....duduruduuuu.
er ég búin að kaupa fermingargjöfina handa litlu sys....og reyndar eina jólagjöf líka (ekki handa litlu sys). Styttist í ferminguna hjá þessari elsku...mamma hefur samt ekkert minnst á það að kaupa handa mér kjól fyrir veisluna....er ekki eðlilegt að foreldrarnir kaupi líka spariföt á hin böddnin? :)
...og svo er örugglega eitthvað meira að frétta sem ég man ekki...eða ykkur kemur ekki við :)
...framundan er svo nokkrar annir sem krefjast góðrar skipulagningar. Þess ber t.d. að geta að vekjaraklukkan fór af stað klukkan 07:45 í morgun....og verður svo aftur í fyrramálið. Sumum finnst kannski nóg um....en þegar klukkan er vanalega að tísta klukkan 05:45 er þetta nú í lagi (reyndar er nú oft snúsað a.m.k. einu sinni áður en skriðið er á fætur hehe).
....jamm og svo erða Keflavík city næstu helgi. Körfuboltamót hjá erfingjanum....fjör fjööööööör :)
...og mikið assskoti fannst mér það skemmtilegt. Það var öðruvísi að vera í "liðinu"....og ég sem ætlaði svo sannarlega EKKI að gera neitt nema semja oggopínkupons....endaði á að fara 9x inn á sviðið að gera einhvern fíbblagang.
...ég held líka að þetta hafi tekist með ágætum. Ég fékk allavega mikið hól frá fólki og sumir m.a.s. föðmuðu mig og kysstu hehe.
...annars var ég frekar mikið hress bara....ræddi heimsmálin og gerði eitthvað af fíbblagangi hehe.
...og merkilegt nokk er ég alveg ótrúlega hress í dag. Miðað við hvað ég var "spræk" (lesist full hehe) í gær átti ég allt eins von á því að deginum yrði eytt í að faðma klósettið en svo er nú aldeilis ekki.
...nú þarf ég bara að þrífa aðeins höllina og taka törn í næsta verkefni sem er tónlistarskólinn gleði gleði....svo er ég líka að fara að gera svolítið spennandi á þriðjudaginn wúhúhúhúúúúúúú :)