.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
fimmtudagur, janúar 29, 2009

::ÞAÐ...::

...styttist í blót. Eruði ekki spennt? Ég er allavega spennt....yfir að geta gúffað í mig hákarli og harðfiski njomm njomm njomm. Býst við því að flytjast að einhverju leiti búferlum, tímabundið þó, í næstu viku.

...við eldamennskuna áðan uppgötvaði ég að eldfasta formið er ekki heima hjá sér. Ég fer þess því vinsamlegast á leit við suma að skila mér því svona við tækifæri....færð það kannski aftur í láni bara síðar....vitanlega með einhverju góðgæti :)

...annars er ég endalaust kát. Styttist sko í það að ég fari í heimsókn í sveitina að knúza nýjasta snúðinn....veit ekki hvað ég get setið á mér lengi....en það verður ekki lengi :)

...uppeldið á honum Saffa mínum gengur eitthvað treglega. Hann er æði glaður að sjá mig, það vantar ekki. Hann á það til að snúa sér heilan hring af gleði og hálfpartinn "missa" sig þegar ég kem. En að hann fáist til að koma með mér út að skokka er af og frá....þegar ég prufaði síðast hristi hann sig þar til ég hélt allt í einu á ól og bandi.....en öngvinn var hundurinn hehe :) En ég fyrirgef honum, hann er svo mikið smúts :)

...já svo er Liverpool alltaf að gera jafntefli. En bezt að vera ekkert að gera mikið úr því....það gæti valdið verkfalli hjá húsverðinum og það má náttúrulega ALLS ekki. En jafntefli...spurning um að fara bara að halda með alvöru liði, og þá meina ég Arsenal....en já.....þegja núna :)

~Ellan~ kl. 6:38 e.h. © ::

::


fimmtudagur, janúar 22, 2009

::ÚTI...::

...er brjálað rok og mér finnst það svoooooo notó. Það er svo mikið rok að þjófavörnin á bíl nágrannans hrekkur reglulega í gang hehe. Veggir hallarinnar skjálfa aðeins...og ég er oggopínkupons hrædd um að eins og eitt útiljósanna hafi fokið norður og ni....áðan. Húsvörðurinn verður nú glaður með það *hóóóóst* hehe.

...komin upp í rúm með túlvuna, prjónana og ætla að fara að horfa á eitthvað dásamlega píulegt.

...ég er búin að vera súper dugleg að baka undanfarið, yfirleitt á þriðjudögum. Bakaði í gær....og svo var aftur bakað áðan því við vinkonurnar eigum morgunkaffið í fyrramálið. Vinkonan ætlaði reyndar að vakta kökuna í ofninum og skella kreminu á....höfum það fyrir venju að hafa eitthvað sem við höfum aldrei gert áður hehe.

...svo styttist í helgi. Við vinkonurnar ætlum að halda uppteknum hætti og hafa pizzu annað kveld....og ætli það verði ekki rauðvín með....það er voða gott njomm njomm :) Helginni verður svo eytt við skriftir, píanó æfingar, hugsanlega sveitastörf og annað skemmtilegt...

...annars hlakka ég voða til að sjá nýjasta erfingjann hennar Boggu minnar, búin að sjá mynd og hann er náttúrulega fríður líkt og hann á kyn til :)

...þangað til næst

~Ellan~ kl. 9:00 e.h. © ::

::


fimmtudagur, janúar 15, 2009

::Í DAG...::

...sat ég yfir erfingjanum á meðan hann gerði heimanámið, bæði yfir stærðfræðinni og gítarnum, prjónandi eitt stykki pils um leið :)

...skrifaði ég smá þorrablóts, eldaði matin, spjallaði við skemmtilega fólkið á msn, borgaði reikninga fyrir USVH og hljóp svona á milli þessa alls....og merkilegt nokk gekk þetta upp. Alltaf þarf ég að vera að gera marga hluti í einu, hvað er það? Einhvers staðar gleymdist reyndar píanóið...best að vinda mér í það dærærææææ.

...var atriðið sem ég skrifaði alveg ógeðslega fyndið, að mér finnst a.m.k. Verst finnst mér samt að þurfa að halda kjafti yfir því. Ég er enn með brosverki, rúmlega klukkutíma síðar. Gleði gleði gleeeeeeði :)

~Ellan~ kl. 9:15 e.h. © ::

::


sunnudagur, janúar 11, 2009

::JÁ...::

...lífið er bara alveg að komast endanlega í fastar skorður nú í upphafi árs.

...við erfinginn fórum í foreldraviðtal í síðustu viku og það verður að segjast að ég er að rifna úr stolti af þessari ´sssku :) Ég brosti non-stop í heilan sólarhring út af árangrinum, tjaa nema þegar ég gleymdi því hehe.

...fyrsti fundur er búinn út af þorrablótinu. Vá, hvað ég hló mikið....og já, ég er byrjuð að semja. Helsti gallinn við að vera komin í þetta embætti, þetta árið a.m.k., er sá að þá veit maður um allt sem verður tekið fyrir. Það hefur alltaf verið svona eins og jólin að fara á blót, éta, halla sér svo aftur í sætinu og hlæja að skemmtiatriðunum. En o jæja, einhverjir verða víst að fórna sér og ætli hláturinn á fundunum bæti þetta ekki svona að meztu upp :)

...svo er ég svona aðeins byrjuð að taka niður jólin. Mér hefur hin síðustu ár fundist alveg fínt að taka jólin niður nema í ár. Ég er hreint ekki tilbúin, stofan varð þvílíkt dimm og drungaleg...en það lagast þegar maður verður búinn að setja hversdagsdótið aftur upp, kertastjakana, lampana o.þ.h. ó já :)

...jamm og svo er ég ekki enn farin að mæta í ræktina á sjúkrahúsinu á þessu ári. Tíðarfarið hefur verið svo gott að ég hef nú verið bara úti að hreyfa á mér bossann, við systur fórum t.d. út að Kárastöðum og til baka. En nú er heldur betur að kólna og þá fer maður bara aftur í morgunspriklið :)

...hey, félagsbúið horfði á fyrstu tvo þættina af Nonna og Manna í gærkveldi. Erfinginn var nú ekkert úberspenntur en við hin heimtuðum að þetta yrði sjónvarpsefni kveldsins. Svo var hann náttúrulega ekki tilbúinn að hætta þegar búið var að horfa á tvo þætti. Þetta eru svo miklir dásemdar þættir að það hálfa væri nóg hehe.

...en o jæja, þetta er komið gott :)

~Ellan~ kl. 9:13 f.h. © ::

::


sunnudagur, janúar 04, 2009

::ENN...::

...og aftur hef ég komið mér í vandræði. Reyndar eru vandræðin svolítið mikið mikið spennandi, enda alltaf gaman að gera eitthvað nýtt. Vonandi að maður verði til meira gagns en óskunda. Ef af verður mun janúar mánuður verða súper mikið skipulagður....eruði ekki spennt hehe?

....jággghhh svo er bara komið nýtt ár. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir þau gömlu...finnst þetta nýja ár bara fara alveg ágætlega af stað. Áramótin voru annars alveg ótrúlega nice, borðað, horft á brennu og flugeldasýningu, glápt á skaupið og svo fragetturnar. Ég get svo svarið það að við vorum ábyggilega upp yndir klukkutíma að koma þeim upp....og ég held að það megi með sanni segja að við séum þau duglegustu í melahverfinu og þó víðar væri leitað hehe. Svo erum við líka bara svo mikið pró...með sérsmíðaðan sprengjupall frá ættföðurnum sem hefur verið notaður ár eftir ár.

...og talandi um ættföðurinn. Hann situr sko ekki aðgerðalaus á spítalanum oooo níííí hann sagði mér svolítið ekki lítið spennandi á gamlárs...sem yrði dásamlegt fyrir mig ef að gengi upp :)

...í gærkveldi var svo spilakveld með Deezu og Sigríði. Váááá hvað ég skíttapaði, en náði nú að loka nokkrum sinnum á helvítið á ððððeim og þá er þetta nú í lagi hehe.

...en að rúsínunni í pylsuendanum. Suð mitt til margra margra marrrrrrgra mánaða bar loks árangur í dag því það er kominn hundur í Græna wíííííí. Hundur þessi ber nafnið Saffi og nú þarf bara að kaupa handa honum ól og band áður en við "félagarnir" förum saman í göngu- og joggtúra. Við verðum svooooo beztustu beztustu vinir, I can feel it :) Sjáiði bara hvað hann er sætur :)


~Ellan~ kl. 12:33 f.h. © ::

::