| ............................. |
|
SPRELLAN
|
|
::LÍFIÐ...:: ...er komið í fastar skorður að nýju eftir smá exxxxtra jólafrí og það er bara fínt. Ég gladdist m.a.s. yfir því í morgun að drekka hörbó sjeikinn og þá er nú lífið orðið assskoti uuuuuunaðslegt :) ...ég er reyndar pínu sybbin, en það er eftir ónægan svefn í fyrrinótt þegar sumir fengu einhverja óstjórnlega hvöt til þess að hringja í mig kl. 06:20, ekki einu sinni og ekki tvisvar. Það er nú alveg ágætis sjéns að ná mér vakandi á þessum tíma...á virkum dögum, en fjandinn hafi það ekki á sunnudagsmorgnum....nema ég sé enn á djamminu sem gerist svona....tjaaaa á fimm ára fresti sem þýðir reyndar að það styttist í næsta morgundjamm hehe. ...svo er snjólaust og hlýtt, sem gefur tilefni til að fara út að skokka. Alveg búin að vera að gera það. Fínt að fara upp í Hvamm, þaðan Merkurhringinn....og já snúa bara við og fara hringinn til baka....jájá :) ...fólk er farið að velta fyrir sér áramótaplönum. Ég mun halda uppteknum hætti og halda mig heimavið, edrú, og ekki fara á ball. Þið sem vonuðust til að ég myndi mæta galvösk á djammið þetta árið.....ekki fara að skæla.....ég mun mæta tvíefld á þorrablót :) Þið sem stökkvið hæð ykkar í loft upp yfir að ég ætli að halda mig heimavið....njótið...verðið kannski ekki svona heppin næst. ...annars væri ég bara til í að vera í einhverjum fjallakofa yfir áramótin. Sé fyrir mér bjálkahús í svissnesku ölpunum, heitt kakó, lopapeysu og einhver aaaaalgjör goggi að stjana við föngulegan sitjanda minn. Maður má nú alveg láta sig dreyma :) Annars myndi sumarbústaður fjarri mannabyggðum svo sem alveg duga....ætla svoooo að kaupa svoleiðis þegar ég verð fullorðins. ..."eftirjólasyndromið" er svo mætt enn og aftur. Syndromið felst í því að mig langar í nýjar gallabuxur, nýjar cintamani buxur, nýja íþróttaskó, nýjar íþróttabuxur og þið vitið....bara allt nýtt. Haldiði að það sé nú....nýbúin að fá svoooo mikið af dásemd og láta svona. Ég þarf í medddíferd...sem ég held reyndar að felist í því að kaupa eitthvað nýtt, á ég ekki bara að gera það????? :) ...jágggh og svo er ég farin að velta fyrir mér jólagjöfum næsta árs. M.a.s. búin að ákveða jólagjöf handa húsverðinum....og syninum....fyrr má nú aldeilis rota en dauðrota segi ég nú barasta hehe. ...þangað til næst... ~Ellan~ kl. 6:29 e.h. © :: ::VILLI VIL...:: ...var æði :) Ég ´sssska lögin sem hann söng og þegar ég var yngri lá ég alveg yfir vinyl plötunum sem gaf hlustuninni enn meiri sjarma. Ég veit...ég er gömul sál :) ...ég horfði sumsé á minningartónleikana um hann á Stöð 2, margt vel gert og flott þó svo að hans útgáfur hafi alltaf verið bezzzztar :) ...yfir þessum tónleikum dillaði ég mér, brosti, táraðist, hló og allt þar á milli. Ég hefði samt viljað vera þarna á svæðinu...en var upptekin í öðru með Vladimír. ...ég ætla að fjárfesta í þessum diski, svo mikið er víst :) ~Ellan~ kl. 10:07 e.h. © :: ::JÓLIN 2008...:: ...hafa víst hringt inn. ...ég er ennþá í náttfötunum, en samt búin að þvo þvott (sem er víst bannað hehe) og redda ístertunni sem félagsbúið mun gúffa í sig síðar í dag. ...er alvarlega að spá í að fara að skella mér í sturtu og nota nýja sjampóið sem ég fékk í jólagjöf, setja svo á mig ilmvatnið sem ég fékk í jólagjöf og fara kannski bara aftur í náttbuxurnar sem ég fékk í jólagjöf...hlusti á ipodinn í nýju vöggunni, fari í Ticket to the North og drekki appelsín úr nýju glösunum mínum :) ...annars eru veraldlegir hlutir ekki bezta jólagjöfin í ár...heldur önnur svoooooo miklu miklu miiiiiiklu betri :) ...erfinginn fékk margt góðra gjafa að vanda. Móðirin pakkaði peysunni og leiknum sem var gjöfin í ár inn í kassa utan af hárblásara og svipurinn sem hann setti upp við afhjúpunina var óborganlegur, lagði kassann frá sér og sagði "ég hlýt að fá aðra gjöf" hahahaha. ...jamm svo fékk hann gemsa og fyrir hádegi í dag var ein stúlka búin að hringja í hann. Ég velti því fyrir mér hvort að gemsi þessi marki upphaf gelgjunnar, jaaaa svei :) ...og já skatan var borin á borð um hálftíu á þorláksmessukvöld, eftir langan dag sem hófst á sorteringu langt fyrir kristilegan tíma og svo skottúr til Reykjavíkur. Langbezti sko laaaaangbezzzzti þorláksmessudagur sem ég hef nokkurn tíman átt :) ...o well, húsvörðurinn var að hringja og tilkynna um góðgæti sem bíður mín í Græna. Kannski að ég leggi land yndir fót....í náttfötunum :) ~Ellan~ kl. 2:33 e.h. © :: ::JÓLIN...:: ...nálgast óðfluga. ...ég er búin að skrifa öll jólakortin, pakka inn öllum pökkunum...eða svona næstum. Erfinginn á eftir að klára eina gjöf og svo er ein gjöfin á leiðinni norður as we speak. Morgundagurinn fer í þrif og það sem verður ekki þrifið á morgun....verður vonandi þrifið fyrir næstu jól :) ...ég hef ákveðið að bjóða fjölskyldunni í mat á þoddlák, í skötu og saltfisk. Ég er m.a.s. búin að kaupa fiskmetið...svoooo spennandi :) Húsvörðurinn heimtar að elda skötuna úti á tröppum svo það getur vel verið að þið sjáið þessa ´sssku við eldamenskuna ef þið eruð heppin. ...annars gengur lífið sinn vanagang. Hefur verið svolítið erfitt en er óðum að lagast. Upphafleg plön um að stíga ekki fæti inn fyrir höfuðborgina eftir 19. nóv þar til á nýju ári hafa svo sannarlega ekki staðist...en þetta er að lagast :) ...rollurnar haga sér þó sem skyldi m.v. árstíma. Ég veiddi svampa úr þeim nokkrum í síðustu viku...ó já...og fór létt með það hehehe. Svo eru stanslausar uppáferðir í sveitinni....nema Borghildur er treg til samneytis....og í dag var sagt við mig "svo átt þú að ganga á aðfangadag". Ég geri ráð fyrir því að það sé samt ekki ég...heldur rollan "Ella" á Sauðadalsá. Annars veit maður svo sem aldrei hehehe. ...félagsbúið steikti laufabrauðið loks núna áðan. Annað holl er þó eftir...kannski bara á morgun. Svo erum við byrjuð að skipuleggja jólafríið (ég er komin í frí til 29. des svibbbbí). Svona c.a. 5 myndir bíða enn í plastinu...og svo fjárfesti ég í Sequence. Þetta verða sumsé spilajól....hlakka mikið miiiiikið til. ...en jæja, ég er búin að fleygja mér upp í sófa og ætla að horfa á Love Actually :) ~Ellan~ kl. 9:54 e.h. © :: ::HÉR GEFUR....:: ...á að líta nýjasta vinnufélagann. ...hann syngur fyrir okkur og dansar :) ![]() ~Ellan~ kl. 8:55 f.h. © :: ::ALLT..:: ...er barasta að gerast þessa dagana. ...smá áhyggjur í gangi sem valda því að ég á það til að góla á fólk, svo variði ykkur. Það vonandi reddast samt svona þegar líður aðeins á vikuna... ...jólatónleikar okkar mæðgina eru búnir, fíddfíjúúúú. Gekk vel...en við mæðgin eigum reyndar eftir að spila einu sinni upp í kirkju og svo ætla ég með E.Sigurgeirs á sygehuset að gleðja gamlingjana með smá spileríi fyrir jól....hlakka reyndar bara til. Gamlingjarnir kippa sér ekkert upp við smá feilnótur :) ...annars er ég svoooo stolt af erfingjanum mínum. Er orðinn ótrúlega flottur á gítarnum....tónlistarkennarinn mjög ánægður með hann...og hann er líka flottasti og sætasti Leppalúðinn sem ég veit um. Var alveg rrrrrrooossalega flottur Leppalúði á árshátíðinni....og að hann skyldi láta sig hafa það að syngja einsöng "Ó Grýla...ég elska bara þig" gerði móðurina endalaust stolta :) ...eftir tónleikana áðan skunduðum við í sveitina að þrífa hjá rolluskjátunum. Vorum við að ljúka við kveldmatinn rétt í þessu....og við tekur sturtuferð nr. 2 í dag. Við erum svoooooo skítug :) ...fór í babb á sun með Dóra og stelpunum, þ.e. sko Sveinu, Emm og Brynju...það var lúvlí...er með strengi í hægri rassakinninni og "smass" hendinni. Hef ekki farið í babb í næstum því ár en það verður sko ekki svo langt í næsta skipti! Finnst mjöööög viðeigandi að klúbburinn heiti bara "Dóri og stelpurnar" hehe :) ...best að snáfa í sturtu, snemma í ból....og svo er BC í fyrramálið íhaaaaa. Fékk skot á mig fyrir að hafa ekki mætt í morgun...þegar maður mætir ekki einn morgunn verður allt vitlaust hehe. Ég gat bara ekki með neinu móti sofnaði í gærkveldi...vantaði einhvern hottí til að hlýja á mér tærnar hehe. Annars er maður svo rútíneraður að á laugardagsmorgni er maður vaknaður af sjálfsdáðum klukkan 06:40...dottar svo til 07:00...búinn að lesa Moggann upp til agna og farinn að þrífa um 08:00 sössssss :) ~Ellan~ kl. 9:06 e.h. © :: |