| ............................. |
|
SPRELLAN
|
|
::JÓLASVEINARNIR...:: ...eru greinilega farnir að stelast til byggða... ...því í morgun fékk ég kleinu í skóinn... ...ROSA góða... ...takk ´ssssku jólasveinn :) ~Ellan~ kl. 7:45 f.h. © :: ::JÆJA...:: ...löt er ég við skriftir, hvað um það. ...við erfinginn skelltum okkur á körfuboltamót um daginn. Það var að vanda fjör, við Borghildur....sko Sigurbjörg....vorum einar sem gistum með erfingjana í skólastofunni sem var ætluð Kormáki. Það var fínt, jahá :) ...á þessu annars ágæta körfuboltamóti, þar sem vinningshlutfall okkar "manna" var til helminga, þá varð einum svona fullorðins körfuboltamanni á að lyfta aðeins bolnum hjá sér áður en hann hóf keppni í 3ja stiga keppni (sem hann btw vann) á kveldvökunni...og alla malla, maðurinn var svooooooo fallega skorinn að ég barasta lak niður á gólf. Og þar sem ég ligg oft undir ámæli að tala ekki hreint út, þá var það þessi hjér njomm njomm. Ég ætla að fara að fylgjast betur með körfubolta.... ...svo hefur vitanlega alveg hellings gerst síðan þá sem ég er nú að reyna að rifja upp. Tjá...í 4 vikur í röð mætti ég alla virka morgna í ræktina fyrir allar aldir. Kannski að þær verði bara 5 í röð, þetta eru orðnir svona fastir liðir eins og venjulega...ef ég er t.d. ennþá vakandi kl. 22:30 er ég skömmuð...var stillt í gærkveldi, sofnuð fyrir níu hehe :) ...félagsbúið samþykkti einróma um síðustu helgi að skíra gimbrina yndan Sprellunni BORGHILDI, en gimbur (sko bezzzta gimbrin) þessi fékk líka súper góða dóma hjá ráðunautunum í haust (held að rauða pottlokið hafi kannski haft eitthvað um það að segja hehe). Þetta launaði svo bóndafólkið á Sauðadalsá með því að skíra einn lambhrútinn Ella. En nóg um nafnaflækju á rollum....sem ég hef reyndar verulega mikið gaman af :) ...félagsbúið er líka byrjað að föndra jólagjafir. Við frænkur ætluðum nú sjálfar að saga út, en sáum að okkur og fengum húsvörðinn með okkur í þetta "samstarfsverkefni", hann verður jú líka skrifaður fyrir þessum jólagjöfum. Út í fjárhús arkaði félagsbúið, lögðum plötuna yfir garðann, húsvörðurinn sagaði, frænkan hélt efninu og Sprellan (þ.e. ég, ekki kindin) hélt ljósinu. Á meðan horfðu rollurnar andaktugar á, en þess skal getið að erfinginn var fjarverandi :) ...svo, merkilegt sem það nú er, er jólaskapið farið að segja allverulega til sín. Bakaði um síðustu helgi og mig klæjar í fingurnar að fara að hefja jólahreingerninguna og þá er nú fokið í flest skjól hehe. Við erfinginn sátum við föndur í gærkveldi og ætlum svo að taka smá föndurstund hér á eftir. Hann er að koma úr sturtu blessaður í þessum töluðu orðum, þar sem hann söng hátt við raust "óóóóó Grýla". Mig dauðlangaði til að taka sönginn upp því fagur var hann....hehe. ...annars verður maður bara spakur í vikunni og hvílir sig fyrir laugardagsteitið, ég er bara farin að hlakka til. Búin að fá lánaðan bol hjá litlu sys svo verður maður að finna vöfflujárn og gera einhvern meiri óskunda....wííí spennó :) ...læt fylgja með eina föndurmynd af erfingjanum, með munninn fullan af Hubba Bubba :) ~Ellan~ kl. 10:34 e.h. © :: |