| ............................. |
|
SPRELLAN
|
|
::SÍÐAN...:: ...síðast hefur frystikistan mín (sem er jú sú fríðasta á svæðinu, eða...) fyllst af hakki og slátri. Njomm njomm :) ...síðast hef ég tekið tæpan einn dag í sumarfrí. ...síðast hef ég farið í heimsókn á bæinn kenndan við sauði. Svooooo fínt :) ...síðast hef ég spilað á tónleikum, 2 lög utanbókar, gekk æði vel. Þá er "bara" eftir að læra hin 3 utanbókar og skjélla sér í 6. stigs prófið sjúddíraríreiiii... ...síðast hef ég spilað jólalög. Þegar það er princip mál að spila ekki jóladiskana alveg strax, spila ég þau bara á píanóið hehe. ...síðast áttum við félagsbúið wúúúnderfúl helgi. Mikið var etið, smíðað (ég var einmitt þuuungamiðjan í þeirri vinnu eða þannig), glápt á imbann, renndi mér á snjóþotu og já....ég MISSTI mig "aðeins" á fjórhjólinu sjallalalaaaaaa :) ...síðast hefur hrúturinn Ketill, en hann og Sprellan geta af sér afbragðsgóð afkvæmi, stangað mig í rassinn. Honum líkaði víst miður að ég klappaði Móra en ekki honum....jamm...ég hefði átt að vita betur en gefa svona færi á sitjandanum. ...síðast fékk ég að ráða nafninu á rollu nr. 7023 í Græna. Hún er efni í enn eina prímadonnuna og þá verður hún að heita eitthvað. Svoooo hún heitir Gló blessunin en hún ku vera undan þessari með blettinn á hnénu...að ég skuli muna þetta allt saman skelfir mig hehehe. ...síðast hef ég vakið athygli fyrir torfæruhæfileika. Var fullyrt í því samhengi að KARLMAÐUR hlyti að hafa kennt mér að keyra....piff... En vááá hvað mér finnst gaman að torfærast...ég náði m.a.s. að festa fjórhjólið....og losa það SJÁLF aftur jahá ;) ...síðast hefur orðið mun jólalegra hér á hvamms...og mér líkar það æði vel...það er uuuuunaðslegt :) ...síðast hefur hún Rakel mín náð 30 árunum, innilega til hamingju með það ´ssskan :) ~Ellan~ kl. 9:05 e.h. © :: ::SVONA...:: ...í lok vinnuviku hef ég mætt alla daga í ræktina. Svitnað vel og sjiiiii hvað það er wúnderfúl :) ...í lok vinnuviku erum við móðir kær búnar að "ganga frá" helmingi þindanna og ekki má gleyma karli föður mínum...hann sá um hökkunina :) Þá er "bara" hinn helmingurinn eftir og SLÁTRIÐ, vá hvað ég kvíði hinu síðarnefnda...það liggur við að ég segi sjiii***, tiiii*** og hó***, en ég kann mig svo ég geri það ekki. ...í lok vinnuviku sá ég "hinn vinalega", dröslaði Kiddý inn til mín og svo dáðumst við að ´onum. Ekki kippti hann sér nú upp við það, en vá hvað þetta var mikið fjööööör :) ...í lok vinnuviku uppgötva ég að ég hef eigi dásamað ferðina sem ég fór í með vinnufélögunum um síðustu helgi. Brák var æði, hótelið var æði, maturinn var æði, félagsskapurinn var æði. Einn vinnufélaginn þekkti mig ekki þegar ég var búin að skipta um outfit og sparsla hehe. Annars hef ég þetta að segja; 112, 847 xxxx, Vladimír og ég var sú eina sem fékk tánudd na nana búbú hehe. ...þangað til næst :) ~Ellan~ kl. 11:55 e.h. © :: ::KREPPAN...:: ...hefur sett mark sitt á líf mitt. ...ég drakk ekkert kók í gær í sparnaðarskyni (ég nennti ekki í búð). ...ég keypti mér hárblásara í KVH sem kostaði 1.600 kaddl í stað hárblásarans sem mig langaði í og kostaði 6.000. Blásarinn var svo vígður í viðurvist félagsbúsins og niðurstaðan var að þetta væri bara hin ágætasta græja (já, húsvörðurinn prufaði hann hehehe). ...ég keypti mér ekki DVD myndina sem mig langaði í síðustu helgi og ætla að bíða þangað til hún verður komin á 889 kr. Þessi í stað keypti ég mér 3 myndir (stykkið var bara á 889 hehe) og eyddi því nokkrum krónum meira í DVD en upphaflega hafði staðið til. ...ég fer í sturtu í ræktinni til að spara hitaveitukostnaðinn (aðallega af því að það eru súpergóðar sturtur í gym-inu, finnst reyndar að meistarinn ætti að fjárfesta í hárblásara svo maður þurfi ekki að dröslast með nýja FÍNA blásarann út í kuldann á morgnana....hehe). ...hún Ína mín litaði á mér hárið um daginn í nafni kreppunnar (reyndar var þetta skyndihugdetta hjá okkur vinkonunum á laugardegi, strunsað niður í KVH að kaupa lit og skellt í hehe) og er ÆÐI ánægð með nýja litinn. ...jamm og svo í sparnaðarskyni er þindavertíðin framundan. Ekki eins og ég sé ekki búin að gera þetta hin síðustu ár og finnist þetta besta hakk sem ég fæ...hehehe. ...o jæja, sonna er þankagangur Sprellunnar í dag :) ~Ellan~ kl. 5:05 e.h. © :: ::ALLT....:: ...er bara í blússandi gúddí-i þessa dagana...eða þannig....manni finnst nú nóg um þegar börnin eru farin að hafa áhyggjur af því að lenda á götunni.... ...annars gengur lífið sinn vangang hjá okkur erfingjanum. Vikan er búin að vera nokk annasöm með viðeigandi fjöööööri en ekki kvarta ég, oooooo niiiiiii :) ...hver mínúta hefur verið skipulögð nema til þrifa, sössss. Er grínlaust að spá í að setja upp plan fyrir næstu viku. Hvað skal framkvæma í gym-inu, hvað verður í matinn og hvaða skal leggja áherslu á í píanóæfingum þann daginn... ...núna hef ég nebbnilega ákveðið að hætta þessu dúttli mínu í píanó náminu og vera über dugleg að æfa mig...því áður en þessi vetur verður liðinn mun ég fara í sjötta stigið svo ég fái nú einhver ný lög hehe. ...og þar sem allt er svo bizzý eitthvað er ég á suðurleið á morgun í vægast sagt fríðu föruneyti. Ég er reyndar alveg ágætlega "fjörmett" eftir síðustu helgi...og væri alveg til í að vera bara heima hjá mér....en þetta verður pooooottþétt fjör :) Jágggh, svo er búið að panta partý fyrir mig....sjáum nú til með það hehe. ...ég þarf hins vegar að gera hellings áður en ég fer svo ég stillti klukkuna á 08:00 sem mér finnst algjört æði, enda er klukkan flesta morgna stillt á 05:45 hehe. ...svo er ég farin að syngja jólalögin. Var gómuð við slíka iðju nú í vikunni....og í gærkveldi lék ég nokkur jólalög á píanóið...bara lúvlí :) Langar til að fara að baka, föndra jóla jóla eitthvað og fara í jólahreingerningu og þá er nú mikið sagt. ...o well, þangað til næst :) ~Ellan~ kl. 10:42 e.h. © :: ::STÓÐRÉTTABALL 2008....:: ...var geeeeeeeðveikt. ...svooooo gaman og eitthvað um fíbblagang :) ...ég var vinsælasta stelpan á ballinu, þar til "Heit og sæt" var búin hehehe. ...dillaði mér hægri vinstri. ...var uppi með háværar yfirlýsingar um að gista hjá Andreu á Vatnshorni með strákunum. Það var vægast sagt tekið vel í það, en svo neitaði pabbi (sem var skutlari kveldsins) bara að hleypa mér út hehehe. ...ég fékk að heyra þessa pick-up línu "ég ætla sko að eiga fleiri börn, einn strák og eina stelpu". Ég vissi hreint ekki hvað ég ætti að segja....svo ég bara "jájá, tökum þetta bara með tvíburum, ég er geim". ...jamm og svo tilkynnti ég tilvonandi eiginmanninum að við myndum gifta okkur eigi síðar en í árslok 2009 hehehe. Reyndar tilkynnti ég það öllum sem heyra vildu og líka þeim sem var alveg sama :) ...best fannst mér samt þegar ég hitti Öldu mína á ballinu. Svo var hún beðin um að koma til mín skilaboðum...."viltu plíííís biðja hana um að verða mágkona mín". Algjör snilld :) ...mér var líka tilkynnt að ég væri svoooo falleg, flott, skemmtileg og ég bæri barasta af konum hér á svæðinu. Ég hló bara....en viðkomandi gafst ekki upp. Þegar ég hugsa líka um það að þá var þetta nú sagt af rjóma allra karlmanna...Don Juan Húnaþings vestra svo ég ætla bara að taka þetta gott og gilt. ...reyndar finnst sumum ég vera næstbesti kosturinn hér á svæðinu, sössssss :) ...svo varð mér á að segja við Rikkarann hvað einn maður væri myndarlegur og þá rauk hún bara til hans og sagðonum það. Ég var fljót að láta mig hverfa....og mikið helv....hló Rikkarinn. ...jamm og svo hringdi einhvur í nótt... ...en var ég búin að segja hvað var ógissslega gaman? :) ~Ellan~ kl. 8:42 e.h. © :: ::ÞAÐ....:: ...er frjálst fall í ýmsu þessa dagana. T.d. í hitastiginu hjá mér á milli vikna....en mikið asskoti er ég að fílaða :) ...sit í þessum töluðu orðum út í Græna, með húfu sem ég er búin að vera með á höbbðinu síðan klukkan 5 og erum að bíða eftir kindasérfræðingunum. Ekki að ég hef svo sem ekki hug á því að gera mikið gagn....en svo ég snúi mér nú aftur að húfunni fríðu að þá er þessi prjónahúfa svooo rauð að kynþokki minn eykst til mikilla muna (ekki að ég hafi mátt eitthvað sérstalega við því hehe)....frænkan hefur m.a.s áhyggjur af því hvað karlkyns kindasérfræðingurinn gerir þegar ég mæti með húfuna. Kannski að þetta verði "to be continued" hehehe. ...ræktin hefur hafist að nýju. Mér finnst það algjörlega dásamlegt, reyndar djöfullegt þegar ég er að opna augun við "hanagalið", en þegar ég er búin....tjaaaa eigum við ekki bara að segja að ég glotti vel frameftir degi....reyndar alveg þangað til ég sofna aftur á kveldin hehe. ...Kolla IndaíKoti spurði mig að því í dag hvað ég ætlaði að gera um helgina. Ég var snögg til svars og sagðist ætla að HRYNJA í það...og þar með ákvað hún að gera slíkt hið sama með þessum orðum "tjaaaaa ef það gefur manni ekki tilefni til að gera það sama þá veit ég bara ekki hvað". Svooooo variði ykkur....við verðum í stöööööði :) ...over and out... ~Ellan~ kl. 6:26 e.h. © :: |