.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
laugardagur, september 27, 2008

::USA....::

...var í alla staði dásamlegt.

...byrjuðum nú á því að lenda í miðjum kappakstri á leiðinni á völlinn, en höfðum betur því vorum komin fram úr öllum "keppinautunum" í Staðarskála.

...ég komst í gegnum eftirlitið á vellinum eftir að hafa þurft að afklæðast skónum hehe. En mér tókst að vera í háhæluðum skóm non-stop í 19 klst, fyrir utan afklæðninguna. Húrra fyrir mér :)

...sá mann á vellinum sem ég hugsaði um í marga daga á eftir...

...já og svo frétti ég það þegar ég var lent í USA að tilvonandi eiginmaður minn var barasta á Keflavíkurflugvelli á sama tíma og ég. Hann hefur sjálfsagt góðar og gildar ástæður fyrir því að hafa ekki látið mig vita af því, kannski verið í annarlegu ástandi hehehe.

...lífið í USA var annars endalaust mikil dásemd. Enda í geggjuðu húsi, hitinn með ágætum og svo var hægt að versla. Er t.d. komin skuggalega langt með jólagjafainnkaupin sem er bara æði :)

...myndavélin skemmdist í ferðinni, er ég ætlaði að nota hana í Disney kom það í ljós. Fæ vonandi myndir frá öðrum fjölskyldumeðlimum og skutla þeim svo inn á fjésbúkkið.

...Disney var ótrúlega mikið æði. Ýkt, en algjört æði...

...Gatorland var líka æði, þar sem var endalaust mikið af krúttilegum krókódílum, fuglum, geitum, skjaldbökum og slöngum.

...ég keypti mér svoooo fríðan bol sem ég held ekki vatni yfir. Liggur við að ég sofni með hann í fanginu á kvöldin hehe. Jágggh og svo tókst mér líka að kaupa mér of stórar gallabuxur, sem ég mátaði öngvu að síður. Levi´s buxurnar verða því bara sveitabuxur :)

...ferðalagið heim var svo langt og strangt. Fullmikið fyrir mig að sofa í klukkustund á sólarhring og sjálfsagt þess vegna sem ég ákvað að selja upp í heimkeyrslu hallarinnar áður en ég hélt til vinnu sl. föstudag.

...hversdagsleikinn er svo tekinn við sem er með ágætum. Ég er búin að fá úthlutuðum hesti fyrir næstu göngur sem mér finnst doldið spes...en spennó. Svo kynntist ég kynjum sveitalífsins í dag er ég var ræst út til að fara á músaveiðar í Græna. Af stað fór ég, ekkert endilega til að gera gagn í veiðunum...en svo var það ég sem drap músarkrúttið. Ég var svo hissa að ég leit á húsvörðinn, sem var jafn undrandi. Ég hefði viljað festa svipinn á okkur á filmu!

...kostir hversdagslífsins eru hins vegar þeir að ég er á leiðinni í afmælisteiti um næstu helgi og svo beint á ball. Sveimmér, ég held að þetta verði bara fjööööör. Og sveimmérþá ef ég er ekki barasta búin að ákveða átfittið :)

...ogogogog...svo byrjar ræktin í vikunni. Mmmmmm það verður geggjað :)

...og svo föstudagskveldin með Þórdísi...og rauðvíninu (aldrei vinn ég þennan helv....rauðvínspott í vinnunni urr). Kannski að við vinkonurnar verðum bara að fara að leggja í....bwahahahahaaaa :)

~Ellan~ kl. 10:03 e.h. © ::

::




::ENGINN NEMA ÞÚ...::

Lítið sár en lífið heldur áfram.
Lítið bros og lífið það launar þér.
Sérhvert tár sem á vanga þínum drýpur,
það á ég.

Vanga þinn á hjarta mitt þú leggur.
Lítið bros um varir þínar leikur sér.
Sálarró um sálu mína liggur,
með þér.

Enginn nema þú, getur vakið mína trú.
Kærleik og ást
og horfið allt sem brást.
Ég og þú, getum fetað þessa brú.

Lítil von í litlu hjarta þínu.
Lítil sál í stórum huga stækkar ört.
Lítið tár af vanga þínum drýpur,
það á ég.

Enginn nema þú, getur vakið mína trú.
Kærleik og ást
og horfið allt sem brást.
Ég og þú, getum fetað þessa brú.


...svooooo fallegt :)

~Ellan~ kl. 1:25 e.h. © ::

::


fimmtudagur, september 11, 2008

::AMMERÍKAN...::

...er barasta á morgun. Hver hebbði trúað því að það kæmi loksins að þessu. Aldrei þessu vant er ég búin að pakka sjá meðfylgjandi mynd. Þarna má sjá hydroxycut og hörbó te-ið er þarna einhvers staðar líka. Prjónarnir eru með í för, íþróttafötin og bækurnar komnar ofan í tösku (ein í handfarangri líka enda eridda 8-9 klst flug fídddfíjúúúú).

...þetta er sumsé farangur okkar mæðgina og ég óttast pínulítið að þetta endi í 23kg plús en ég ætla að vigta farangurinn á morgun og lauma góssi að foreldrunum ef þau hafa pláss. Það er nú óþarfi að fara með of mikið af fötum því í villunni er náttúrulega þvottavél og þurrkari.....og ef maður tekur ekki nógu mikið með "verður"víst að versla eitthvað nýtt :)

...ef taskan er yndir 23 kg höfum við mæðgin svigrúm til að versla í 3 töskur til viðbótar því hvort okkar má taka með sér tvær 23 kg töskur sooooo það opnar ýmsa möguleika.

...það sem er merkilegt við þessa Ammeríkuferð er að vera búin að pakka niður svona vel fyrir brottför og kem ég því m.a.s. sjálfri mér á óvart, enda vön að pakka niður 5 mín fyrir brottför. Og þar sem ég er stöðugt að koma sjálfri mér á óvart þá eru hér sönnur á því hvað ég tók mér fyrir hendur í vikunni....

...aha, fröken Sprell bjó í fyrsta skipti á ævinni til kjötsúpu....og hún var m.a.s. étin af hinum meðlimum hins íslenska félagsbús sem og ættföðurnum....flestir fengu sér m.a.s. ábót. Ég velti fyrir mér hvað það verður næst...

...en það sem er dulítið spes við þessa utanlandsferð er að ég er ekki búin að bóka þá næstu. Algjör óvissa og öngvar blikur á lofti um að ferðir til útlandanna verði fleiri á þessu ári. Reyndar ætlum við vinkonurnar til NY á næsta ári, en ekki búið að bóka miðana.
...áður en ég lýk síðasta pistli fyrir USA ferð þá eru hér skilaboð til húsvarðarins þar sem ég nenni ekki að senda þér tölvupóst:
  • Þú sleppur við að gera við kranann, ættfaðirinn gerði það í dag.
  • Hengja skal upp ljósið í þvottahúsinu.
  • Hengja upp snagana í þvottahúsinu, þ.e. í minni hæð EKKI þinni. Getur notað frænkuna til viðmiðunar.
  • Þú lætur svo sannarlega HOT ´N SWEET-ið vera sem er inn í búri. Ef þú svo mikið sem dirfist til að bera það á borð fyrir göngufélagsmenn skaltu eiga mig á fæti, sem og hinir!
  • Mátt taka hey hauginn bakvið hús og sturta honum....tjaaaa þú veist hvar :)
  • Það þarf að skipta um perur í öllum útiljósunum.
  • Klippa trén (afklippurnar mega fara á sama stað og hinn gróðurinn).
  • Og svo máttu líka skúra hehehehe :)

...að launum máttu minn kæri, uppáhalds og bezzzzzzzti húsvörður hafa afnot af Lancer á meðan ég er í burtu....en ekki til neins fíbblagans.

...jæja, ég er farin í ból og hlakka bara skolli mikið til brottfarar :)


~Ellan~ kl. 11:24 e.h. © ::

::


sunnudagur, september 07, 2008

::STJÖRNUSPÁ....::

...dagsins fyrir fröken Sprell er svo;

Þótt þú sért líklega ekki að vinna núna, færðu sýn á vinnuna sem hjálpar þér að skara fram úr í næstu viku. Í kvöld færðu ósk þína uppfyllta. Þetta eru galdrar!

...ég er bara nokk ánægð meðidda. Sérstaklega þar sem stjörnuspá mbl í þessari viku hefur verið alveg ótrúlega í takt við raunveruleikann hos mæææj.

...ég er reyndar í vinnunni, en þá hlýtur "skaringin" fram úr bara vera þeim mun rrrrrrooossalegri. Hef reyndar grun um að það tengist því að ég fer til USA en skil samstarfsfélagana eftir heima....aumingja þeir....en ég kaupi nammi handa þeim svoooooo þau verða ægilega glöð að sjá mig aftur hehe.

...það sem ég er hrifnust af varðandi stjörnuspá dagsins er þetta með óskina og galdrana. Ég reyndar velti fyrir mér hver óskin gæti verið....óvissan gerir þetta svoooooo óstjórnlega spennandi að ég vart ræð mér. Væri reyndar alveg til í sveran happdrættisvinning, nýjan bíl, nýtt píanó og svona eitt og annað "smotterí"....en ooo jæja...best að bíða bara og sjá :)

~Ellan~ kl. 8:45 f.h. © ::

::