.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
laugardagur, ágúst 30, 2008

::KINDURNAR....::

...í Græna eru farnar að týnast til síns heima, sem og á öðrum bæjum. Sprellan þar á meðal og aftur búin að endurheimta geðslag sitt eftir "barnsburð" og fæðingarþunglyndi hehe.

...númm, ég er sumsé búin að vera í fjárstússi í dag eftir fasta liði eins og venjulega (langa hringinn og píanóæfingar).

...mikið asskoti finnst mér þetta rollustúss dásamlegt. Dásamlegt workout að koma þeim til síns heima og mig langar í göngur...og í þær fer ég á næsta ári sama hvað tautar og raular. Við húsvörðurinn (sem hraunaði yfir mig drullu í rolluskutlinu í dag og habbði verulega gaman af...og ég reyndar líka) höfum sammælst um það...hann væntanlega á ðí fjööörhjól og ég á einum ferfættum og tignarlegum hehe.

...frænkan velti því fyrir sér í dag hvar ráðskonan sín væri sem hefði verið í Græna á meðan á sauðburði stóð. Ég tilkynnti að hún myndi ekki sjást hér í næsta sauðburði því hún yrði upptekin við ljósmóðurstörf. Það var nú í lagi (enda verð ég væntanlega búin að baka fyrirfram og setja heilu máltíðirnar í frystikistuna)...en óttaðist mjög að ég yrði kannski við slík störf út á bænum kenndan við sauði.

...niðurstaðan var sú að sauðburður næsta vors yrði að skipuleggja með tilliti til þessa, þ.e. svo starfskraftar mínir nýtist sem best. Frænkan og frú Borghildur munu því væntanlega halda samráðsfund nú þegar haustar varðandi tilhleypingar vetrarins hehehe.

...annars langar mig ógurlega til að verða alvöru bóndakona, með míns eigin kindur, hross og hund. Alveg er ég að verða merkilega skrítin svona með aldrinum...

...jæja, best að halda áfram að drekka hvítvínið njomm njomm :)

~Ellan~ kl. 6:58 e.h. © ::

::


miðvikudagur, ágúst 27, 2008

::ÉG....::

...´ssska rigningu.
...´ssska sund í rigningu.
...´ssska að jogga í rigningu.
...´ssska myrkrið á haustin.
...´ssska kertaljós.
...´sssska "strákana okkar".
...´ssssssska svoooooo miklu meira :)

~Ellan~ kl. 7:57 e.h. © ::

::


laugardagur, ágúst 23, 2008

::ÓTTALEGA....::

...er ég latur bloggari, en það er bara af því að ég gleymdi að vera með háleit markmið í þeim efnum þegar áramótaheitin voru sett hehe.

...númm, það er ekki laust við að í manni sé hnútur í maga yfir leiknum í fyrramálið. Ætli maður vakni ekki árla morguns til að fylgjast með honum....ég held það nú :)

...horfði á leikinn á móti Spáni á Cafe Victor. Var búin að ákveða að ef leikurinn yrði skandall ætlaði ég að fá mér göngutúr upp á Laugaveg...en svo sat ég sem fastast....og passaði bara ágætlega inn í karlaskarann sem var þarna. Aldrei þessu vant var ég ekki sú orðljótasta (borðfélaginn sá um það hehe) en viðurkenni að ég barði einu sinni vel í borðið hehe. Prísaði mig sæla að bjórglas borðfélagans endaði ekki í fanginu á honum og gerðidda ekki aftur :)

...erfinginn er búinn að vera í veiðiferð síðan árla morguns. Veiðifélagið Öngull skellti sér upp á Arnarvatnsheiði í ógurlega veiðiferð og það verður gaman að heyra sögurnar þegar þeir koma aftur til byggða.

...símtalið sem ég er búin að vera að bíða eftir í laaaangan tíma kom svo fyrir helgi. Kennarinn að raða niður tímum vetrarins...og ég sem ætlaði að vera svo æææægilega dugleg að æfa mig í sumar....sjénsinn bensinn að ég hafi gert það hehe. Ég er búin að klippa á mér neglurnar og fletta í gegnum allar spilabækurnar í töskunni (sem eru jú æði margar) til að finna nótur að einu lagi. Fann þær á endanum í kommóðunni og búin að renna aðeins yfir þær.

...mikið skolli langar mig samt til höfuðborgarinnar á menningarnótt. Langar að djamma....sem verður líklegast ekki fyrr en á stóðréttarballi....tja ekki nema maður bregði út af vananum og fari á réttarball í Ásbyrgi. Það er amk búið að bjóða mér í teiti sama kveld....sooooo maður veit aldrei :)

...ég fór nú einu sinni á réttarball í Ásbyrgi...og var ásamt einum til skutlað heim um hálftvö....hehe....gaman að rifja upp gamla tíma. Við vinkonan gerðum það í gærkveldi, Buick, Húsafell, brjálaði kallinn og hangikjötið (sem var reyndar venjulegt lambalæri) hjá mömmu...sjiiiiii hvað það var dásamlega fyndið, en að sama skapi sérstakt að móðir kær hafi lifað af þetta tímabil okkar sem og umborið okkur hehe.

....o well, þangað til næst.... :)

~Ellan~ kl. 5:43 e.h. © ::

::


mánudagur, ágúst 11, 2008

::SPRELLAN...::

...er komin með nýtt nafn. Einn heilsaði mér um helgina "nei, Ruslana". Mér finnst það töff :)

...helginni var eytt á Króksmótinu. Hmmmm það skiptir aðalmáli að vera bara með hehe.

...alltaf notó að leggjast til hvílu í tjaldvagni í ágúst mánuði klædd flísbuxum, ullarsokkum, vettlingum, ullarpeysu og ullarhúfu hehe.

...kæróinn tilkynnti mér að okkur væri boðið í "skyr" um næstu helgi. Fannst það ekki vitund undarlegt en mér misheyrðist víst "aðeins" :)

...brunuðum út í bússsstað í gærkveldi sem var yndi. Er svo krúttilegt þegar er farið að dimma svona á kvöldin :)

...svo benti erfinginn á móður sína í gærkveldi, sem var fáklædd að bursta tennurnar, og sagði "mamma, bumban á þér er að minnka". Hann er sjarmör þessi drengur :)

...þangað til næst :)

~Ellan~ kl. 10:16 e.h. © ::

::


miðvikudagur, ágúst 06, 2008

::SJALLALA...::

...tíminn bara flýgur áfram án þess að maður viti hvert hann fer. Látum okkur nú sjá....

...verslunarmannahelgi 2008;
  • eyddum henni að mestu út í bússstað.
  • dekrað við mann í mat og drykk.
  • legið á meltunni.
  • strunsað í "ógurlegar" veiðiferðir.
  • skotist í Græna í holugrillað læri og eftirmat, njomm njomm.
  • ber týnd og étin, át meira af berjum á einni helgi en samtals yfir ævina hehe
  • sumir syntu í Vesturhópsvatninu, rooooosa svalir :)
  • eftir að hafa hlammað mér niður í berjamó og veitt í Virkisvatninu (ef ég fer rétt með heitið) á mán fór ég heim á ullarsokkum og náttbuxum hehe.

...verslunarmannahelgin var sumsé dásamleg, enda veit ég fátt betra en að vera út í sveit í góðum félagsskap :)

...annars er allt við það sama vinnan, langi hringurinn, sundið og kæ...duduruuuuu :)


~Ellan~ kl. 11:53 e.h. © ::

::