.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
sunnudagur, júní 29, 2008

::FRÖKEN...::

...Elín "útaðaka" er heiti mitt þessa dagana. Máli mínu til staðfestingar er tvennt:

  • á fimmtudaginn var ég að skunda niður í vinnu eftir kveldmat og þegar ég er að fara út úr bílnum hugsaði ég með mér að það væri óþarfi að læsa bílnum, enda enginn á ferli. Hvað um það....ég skelli hurðinni og fattaði um leið og ég heyri hurðina lokast að ég náttúrulega læsti lyklana inn í bílnum. Húrra fyrir Elínu! Núgggh ég náttúrulega hringdi í húsvörðinn, vælandi HÁSTÖFUM (eða þannig...meira svona hin fúúúlasta). Húsvörðurinn kom að vörmu spori (eða svona "næstum" því) með ættföðurinn í eftirdragi og þeir gerðu sér lítið fyrir og veiddu lyklana út úr bílnum. En ekki láta ykkur detta í hug að "reynaviðann"...húsvörðurinn er í fullu starfi við að sinna mér hehe.
  • núggghhh á föstudagskveldið hringdi bossinn og tilkynnti mér að það væri brotin rúða niður í vinnu. Hvað geri ég...júggghh hringdi náttúrulega í húsvörðinn og ekki hef ég græna af hverju...ekki eins og þetta mess væri honum að kenna. Svo hringdi ég í smiðinn og strunsaði niðureftir....enda 99,9999999% líkur á því að ég hefði sjálf gleymt að loka helv...glugganum. Á meðan 3 karlmenn lögðu líf sitt í hættu við að redda þessu messi (jájá eftir mig) eyddi ég kveldinu í að sópa upp glerbrot í stað þess að liggja í notalegheitum hér heima, urrr.

...nú skelf ég á beinum að ég geri 3ja óskundann, en á meðan ég keyri ekki á brunahana er ég sátt!

...júmm annars er ég búin að vera ágætlega dugleg. Byrjuð að baka fyrir ammli erfingjans, ætla ekki að vera á síðustu stundu enda verður ammlishald þessa árs svolítið flókið. Líka voða dugleg við að fara seint á fætur um helgina wúhúhúhúúúú :)

...og svo eru 13 dagar í Sálarballið ógurlega. Sumir eru m.a.s. komnir með ströttu fyrir ballið....tíhíhí. Og svo er rífandi gangur í pallasmíðinni í Græna. Maður getur alveg farið að lúlla þar á júllunum...en ætli það verði samt ekki geymt þar til verður búið að klæða pallinn....svona svo ferðamennirnir keyri ekki út af :)

...þangað til næst :)

~Ellan~ kl. 10:02 e.h. © ::

::


fimmtudagur, júní 26, 2008

::SÁLIN...::

...hans Jóns míns verður á Blö 12. júlí.

...þetta verður stuð og þetta verður gaman.

...ég legg til Cognac :)

...Guðríður, ætlar þú að sitja í barnastólnum bæði fram og til baka?

...Kolbrún hans Inda í Koti, þú verður hætt með púkann á brjósti ekki satt?

...aðrar píur, ekki verður hlustað á neinar afsakanir :)

~Ellan~ kl. 11:11 e.h. © ::

::


laugardagur, júní 21, 2008

::UMMM....::


...mikið ógisslega er ég happí með daginn.

....fjallaskokkið var náttúrulega í dag og þrátt fyrir háværar yfirlýsingar mínar er ég kom í mark í fyrra, sem ég gleymdi reyndar 5 mín síðar, var ég fyrir löngu harðákveðin að fara aftur nú í ár.

...svo kom í ljós að Smábæjarleikarnir á Blönduós voru akkúrat á sama tíma. Eftir miklar pælingar fram og til baka var endanlega ákveðið í gærkveldi að ma færi með börnin, mér skipað í fjallaskokkið, og svo tæki ég við vaktinni að loknu hlaupi sem og sunnudagsvaktina.

...í skokkið fór ég, vitandi af fo**** brekkunni, bleytunni og að ég myndi svo sannarlega fá blöðrur yndir iljar, tær og hæla.

...þetta var svooooooo miklu auðveldara en í fyrra, næstum því ísí písí og langleiðina var ég samferða Erlu svo tíminn flaug í kjaftagang og hefði allt eins getað sleppt því að rjúka niður í vinnu klukkan 8 í morgun til að sækja Ipodinn og hlaðann :)

...þegar niður kom leit skóbúnaður minn svona út;






...aha brúnir af drullu og fóru beint í þvottavélina. Ég ákvað annarra vegna að taka ekki mynd af þeim blöðrum er mér áskotnaðist í dag hehe.

...númm svo rauk ég í sund til að þrífa mesta skítinn, fékk mér eina grillaða pylsu og rauk á Blönduós að fylgja kidz í fússballinu...mmmmm gott að vera úti. Svo fékk ég líka skemmtilegt hól frá kvennsu einni hér af Tanganum sem þekkti mig bara ekki hehe.

...að loknum síðasta leik skunduðum við erfinginn heim og þá beið mín þetta hér á eldhúsborðinu;




...jebb bikar beið mín fyrir 2. sætið í Fjallaskokki 2008 hjá kvennsum 16-39 ára. Doldið spes að vera búin að fá verðlaun fyrir "hlaup" þar sem ég bölvaði þessari íþrótt í sand og ösku við ættföðurinn er ég var í Grunnskóla. Hvað ætli hann segi þegar ég segi hehe.....

...ég þakka hér með þeim kvennsum 16-39 ára, er hefðu rústað mér hefðu þær tekið þátt, að hafa haldið sig heima og leyfa mér að eiga þessi verðlaun í friði hehehe. Ég er líka æði ánægð með að þetta er ekki farandbikar heldur fæ ég að eiga hann um aldur og ævi. Held að honum verði plantað á náttborðið svo ég geti minnst þessa afreks míns dag hvern.


...núna as we speak erum við erfinginn að koma okkur fyrir í sófanum, með Shark Tail í tækinu, ídýfuna í ofninum og vitanlega í náttfötunum....enda erum við frekar þreytt eftir daginn, móðirin dettur sjálfsagt út fyrr.

...þangað til næst :)

~Ellan~ kl. 8:22 e.h. © ::

::


mánudagur, júní 16, 2008

::NÝJASTA....::

...nýtt er það að karl faðir minn er búinn að panta gistingu í Ammmmeríku. Raðhús með sundlaugargarði, líkamsrækt, bílskúr, 3 herbergjum með HUUUGE rúmum og sér sundlaug takk fyrir túkall.

...litla sys neitar að ferðast um í VW golf. Hún vill hafa hann stóran, sem og stóra systirin því við þurfum að VERSLA :) Ég er líka búin að tilkynna litlu sys að hún eigi að koma með mér í ræktina sjúdddíraríreieeeeiiii.

...ég er að verða æææææði spennt. Reyndar kom nú upp babb í bátinn eftir að ferðin var pöntuð...förum út 12. september og réttirnar okkar eru 13. sept. Bæði vorum við erfinginn súr yfir þessu öllu saman, sonurinn þó sínu fúlli og missti sig "aaaaðeins", en kommon....við erum að fara til Ammmeríku úúúúú jeeee.

...þess í stað verð ég ennþá duglegri að draga rollur, smala og vera endalaust sveitakonuleg 2009, því ekki fórna ég SÓL, Wetseal, Forever 21, Urban Outfitters og öllum hinum FATA búðunum fyrir rolluskjáturnar.

...svooooo er líka hægt að hringja til Ammmeríku svona til að fastir liðir eins og venjulega haldi sér. "Eigum við að......" bwahahahaaaa :)

...þangað til næst...

~Ellan~ kl. 10:56 e.h. © ::

::


laugardagur, júní 14, 2008

::SÓLIN...::

...ó sólin er óóó svo dásamleg. Hver þarf til útlanda þegar veðrið á Hvamms er eins og það er búið að vera í dag :)

...dagurinn var tekinn snemma...eða þannig. Er ein í kotinu núna og þegar ég ákvað loks að fara á fætur í morgun var lagt af stað í langa hringinn....eða tilbrigði við hann því að í stað þess að snúa við hjá Mörk snéri ég við hjá Kárastöðum. Ummmmm 12km plús? Ég skal ekki segja nema að þetta var sweet :)

...við frænkur grilluðum okkur svo pylsur í hádeginu og flatmöguðum á pallinum í Græna. Marr þarf nú ekki nema tvær spýtur og þá er kominn pallur :)

...þegar við ætluðum að klippa trén hjá höllinni þurfti frænkan að hverfa til annarra starfa.

...ég fór því með blómapottana mína til ættföðursins í lagfæringu enda verður maður að vera góður við þá þar sem þeir hafa "tilfinningalegt gildi" hehe og júmm....keypti smá sumarblóm.

...nú var ég að koma úr sundi sem þýðir að ég er búin að vera úti í allan dag, lúvlí :)

~Ellan~ kl. 6:34 e.h. © ::

::


laugardagur, júní 07, 2008

::NÚ ER HITI....::

....og nú er fjöööööör, íhaaaaaaaa og gaman gaman :)

....er farin að hallast að því að það að vera 30 og *bííííp* eitthvað ára sé bara aaaalls ekki svo slæmt.

...ég er t.d. alltaf að prufa eitthvað nýtt og fyrir utan það sem ég hef þegar kunngert á alþjóðavettvangi hef ég því til viðbótar prufað í fyrsta skipti á ævinni að skipta um dekk (yndir strangri leiðsögn húsvarðarins), verið með karlmannsnærbuxur í óskilum, farið á Reykjaskóla í aaaaallt öðrum erindagjörðum en svo oft áður sem og farið í Kvennahlaup ÍSÍ.

...eftir þessa frumraun mína í dekkjaskiptinum sprakk nú aftur á dekki hjá mér (og ég er sammála ýmsum um ástæður þessa) en að mér dytti í hug að skipta sjálf um dekk var af og frá. Húsvörðurinn skipti náttúrulega um dekk fyrir prinsessuna á bauninni og ég gaf honum pylsu og kók í staðinn.

...karlmannsnærbuxurnar voru hér í reiðuleysi í allgóðan tíma. Kunni bara ekki við að láta það heyrast af ótta við að mín biði löööööng röð karlmanna sem heimtuðu að taka öskubuskuna á þetta (þið vitið "nei ég á þessar nærbuxur, þær passa mér aaaaaalveg"...og svo færu kjaddlarnir að gera einhvurn óskunda til að þær pössuðu sér"). Ég vissi jú alveg hverjum þær tilheyrðu hvort sem var og þær fóru til síns heima í dag hehe.

...í gærkveldi rúntuðum við húsvörðurinn sem aldrei fyrr. Það var asskoti fínt og skárra en að eyða föstudagskveldinu í að taka til (saup reyndar seyðið af því í dag). Nema hvað við fórum út á Reykjaskóla, sem fyrr segir í öðrum erindagjörðum en svo oft áður líkt og mér var nú bent á af mætu fólki þar á bæ. Hvað get ég sagt, einhvern tíman er aaaaallt fyrst.

...núgggghhh og svo eftir að hafa farið á fætur í morgun klukkan HÁLFSJÖ til að gera fíbblagang í Gunnsa Svenna og svo þrif á höllinni fór ég í Kvennahlaupið. Ég hef aldrei farið áður og ef ég hefði farið áður hebbði ég sjálfsagt farið í skemmtiskokkið (alveg heilir 2,5 km) og verið bara aaaasskoti ánægð með mig. Ég fór 5km og var sæl og ánægggð meðða. Það hlakkaði m.a.s. í mér vegna ummæla nokkurra hehe.....

....en jæja, best að skunda í ból enda er sjálfvirk vekjaraklukka í gistingu og svo bíða ýmis önnur verk. Sláttur ef vel viðrar, langi hringurinn, gardínuuppsetning, þrif og að fara með rollur til fjalla (buhuhuhuhuuuuuuu).

...þangað til næst:)

~Ellan~ kl. 11:07 e.h. © ::

::


sunnudagur, júní 01, 2008

::I LOVE...::

...you, but I love myself more! Var setning sem hljómaði m.a. í Sex and the City - the movie sem við vinkonurnar fórum á í gær. Vááá hvað myndin var æðiæðiæðiæðiæðiæææææææðisleg og mig langar til að fara á hana aftur. Ég hló....og ég átti bágt með mig, veeeerulega bágt.

...annars var píuferðin æði. Við fórum í maaaargar búðir, spjölluðum miiiiiiikið mikið, borðuðum nammi gott og höfðum það bara æðislega píulegt :) Náði nú ekki að kaupa mikið, en kannski teljast tvenn skópör, sléttujárn og hálsfesti bara ágætt...en reyndar ekki á minn mælikvarða hehe.

...ein vinkonan tilkynnti algjöra BOMBU. Ég þagði leeeengi lengi á eftir...en tíðindin voru samt algjört æði (nei, engin okkar er ólétt, að fara að gifta sig, skilja eða komin með nýjan mann....enda ekki um okkur hehehe).

...nú sit ég hér í sólinni bakvið hús og hef það nice. Ég er búin að fara langa hringinn....og reyndar gott betur en það. Þegar ég var komin niður dauðabrekkuna ákvað ég að snúa við og gefa brekkunni fingurinn. Joggaði hana að mestu upp og fór sem sagt langa hringinn aftur til baka úúúúú jeeeee. Þarf endilega að fara að mæla leiðina, en þar til það hefur verið framkvæmt ætla ég að standa í þeirri trú að ég hafi farið c.a. 10 km úhúhúhúúúú.

...sökum dugnaðar við joggið líður mér alveg æði ÆÐI vel og finnst allt æðislegt wííííííí.

...annars skulum við láta þetta vera lokaorðin;

I love you xxxx xx xxxx xx x xxxx xxxxxx :)


...þangað til næst :)

~Ellan~ kl. 11:38 f.h. © ::

::