.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
miðvikudagur, maí 28, 2008

::ÞAR...::

...sem ég er náttúrulega orðin algjör bóndakjéddlíng, ég meina farin að taka á móti lömbum, yfirumsjón með mörkun lambagreyjanna, farin að þeysast um fjöll á fjórhjóli og fleira sonna sveitólegt, velti ég því fyrir mér hvort að hestamennska verði það næsta sem ég tek mér fyrir hendur.



...það kemur í ljós. En fyndin er myndin, um það geta flestir verið sammála :)


~Ellan~ kl. 7:51 e.h. © ::

::


mánudagur, maí 26, 2008

::MIKIÐ...::

...er allt dásamlega æðislegt :)

...ég fór í brúðkaup Erlu og Sveins á laugardaginn. Það var æði, enda þau svoooo mikið æði :)

...í gær fórum við upp á fjall að skoða ástandið áður en rolluskjáturnar fara til fjalla. Á uppleiðinni var ég á palli sexhjólsins, það var fjööööör (veit samt ekki hvernig rassinn lítur út, þori ekki að kíkja hehe). En fjórhjólið keyrði ÉG SJÁLF til baka, kom við heima og hengdi upp þvott, og fór svo út í Græna. Wíííííí það var bara æði :)

...svo er ég að fara í PÍUFERÐ næstu helgi, úúúúúú jeeeeeee. Á innkaupalista er;
  • kjóll
  • skór
  • skór
  • skór
  • nærföt
  • og annað "tilfallandi" hehe

...og svo verður náttúrulega kjaftað frá sér allt vit. Vonandi verður gott veður svo það verði bara hægt að hanga úti og drekka bjór. Núggghhh svo verður náttúrulega farið á Seggsið. Þessi ferð verður óóó svo mikið æði.

...númm svo fer ég alveg að komast aftur í herbergið mitt. Búin að vera í útlegð í gestaherberginu sem fer brátt að ljúka. Sjallalalaaaa :)

...já og við vinkonurnar pöntuðum okkur tæki í dag. Fitumæli....hehe. Kannski finnst mér það ekki svo mikið æði þegar taka við mælingar, well það kemur í ljós.

...þangað til næst....


~Ellan~ kl. 11:07 e.h. © ::

::


fimmtudagur, maí 22, 2008

::HRÓS...::

....hef ég fengið sem aldrei fyrr frá helstu herramönnum Húnaþings vestra síðustu daga.

....í gær tók einn sig til og kallaði yfir kaffibrúsakaddlana í KVH "mikið æðislega ertu sæt í dag ELSKAN mín". Nú voru góð ráð dýr þar sem það var að brjótast fram roði í bollukinnunum, en þar sem mín er ekki að vön að verða orðlaus var svar mitt til baka "Æji takk og sömuleiðis ÁSTIN mín". Þar með sátu kaffibrúsakaddlarnir eftir, með kjálkann laaaangt niður á bringu og í fyrsta skipti ever urðu þessar elskur kjaftstopp :)

...í dag kallaði annar herramaður á mig er ég var að ganga til vinnu minnar "Ella, er ég búin að segja þér að mér finnst þú TÖFFARI?". Awwwwwww :)

...hvað get ég sagt, þessi vika hefur verið dásamleg og velti fyrir mér hvort að ég fái líka að heyra eitthvað fallegt á morgun :)

~Ellan~ kl. 10:57 e.h. © ::

::


miðvikudagur, maí 21, 2008

::SJORTARAR....::

...eru æði, enda fylgir þeim miiiikið fjör, hiti, spenna og já þið vitið rest. Þessi hér stóðst sko allar væntingar, mæli með að þið prófið hann!

~Ellan~ kl. 11:15 e.h. © ::

::


laugardagur, maí 17, 2008

::SVEITALÍFIÐ...::


...er dásamlegt óóóóóó já :) Gerðist ráðskona í sveit um síðustu helgi á meðan hámark sauðburðarfjersins í Grænahvammi stóð yfir. Tók þetta alvarlega og gistum við 2 nætur í þessari smávöxnu höll. Ég bakaði, eldaði, fór í búðina og stóð í ýmis konar reddingum.


...skyndilega urðu hlutverkaskipti hjá Sprellunni, og hún gerðist ljósmóðir. Tók á móti þessari gullfallegu gimbur (sem hlýtur að verða skírð Ella, það er hvort sem er lenska að hafa eina Ellu á öllum almennilegum bónabæjum hehe) sem er yndan Mjallhvíti. Ég er viss um að ánægjuöskrin í mér hafa heyrst alla leið inn á Tanga. Svo bretti ég upp ermar og fór inn í rolluna til að athuga hvort að hún væri með annað....sem var ekki....mér til mikillar gremju því ég vildi náttúrulega taka á móti öðru. Ég er nokkuð viss um að ég tek á móti fleiri lömbun á næsta ári hehe.




...Sprellan fékk tvö lömb, hrút og gimbur, og var víst ekki lengi að. Þau eru BARA sæt :)





...nótt eina var verið að bíða eftir einni rollunni, erfinginn neitaði að fara inn að sofa. En lagði sig þess í stað í garðanum. Þetta var náttúrulega svona Kodak móment svo ég tók mynd. Er erfinginn vaknaði morguninn eftir kom upp í honum e-r únglingur þegar hann sá myndina "mamma, viltu eyða þessari mynd"....en að ég geri það er af og frá múahahahahaaaaaa.

...svona eru þessar ´ssskur gæfar (eða kannski frekar).


...og komin upp á efstu tröppu :)


...að lokum þessarar myndagleði kemur sjálfsmynd af okkur Sprellunni.


...humm, prufum aftur :)



...asskotans, fengum aðstoð frænkunnar :)


...sveimmérþá, sú fyrsta er bara bezt :)

...annars er ekki mikið títt. Ég hef öngva eirð í mér að fara í ræktina, vil vera úti. Svo síðan á þri hef ég farið 3x langa hringinn, 1x merkurhringinn (tímaskortur) og frídaginn var ég hvort sem er að bera drasl fyrir húsvörðinn....svo ég er MJÖG sátt og görlpáwerið eftir því.

...þangað til næst :)

~Ellan~ kl. 11:13 f.h. © ::

::


fimmtudagur, maí 08, 2008

::SAUÐBURÐUR hinn síðari...::

...er hafinn í Græna. Við mæðgin skunduðum í gær strax eftir vinnu í Græna þar sem það var rolla að bera. Í æsingnum yfir issu skellti ég mér í hvíta íþróttaskó, gallabuxur og svo þutum við út í bíl. Þegar komið er í Græna segir ættfaðirinn við mig "Ella mín, þetta eru aaaaaaallt of hvítir skór". Ég jánka því og rýk svo inn í fjárhús. Þar liggur kindargreyið sárkvalin og horfir eymdarlega á mig (og þegar "hríðarnar" gengu yfir var rollan eins og Shrek). Íhugul fylgist ég með þessu, enda ekki séð þetta síðan ég var barn, en áður en ég veit af segir frænkan "Elín, komdu hérna og togaðu í lappirnar". Þar fór það, ég komin ofan í kró, togandi í slímugar lappir og reyna að ná lambgreyinu út. Reyndar þurfti að kalla út móður húsvarðarins því skjátan var vel hyrnt og of margar lappir að þvælast fyrir. Eftir mikið puð þar sem þar atvinnu"ljósmóðirin" átti í nokkrum vandræðum með höfuðið og hvaða lappir tilheyrðu hvaða lambi, frænkan togaði í labbirnar og ég hélt rollunni kom eitt stykki hrússi og ég var satt best að segja ekki viss um að hann myndi hafidda af, já og svo fylgdi annar í kjölfarið en hann var bara asskoti spræku. Ykkur kann að finnast þetta ísí písí....en þetta var stóóóórt skref fyrir mig hehe.

...eftir á benti ættfaðirinn mér á að skórnir væru ekki lengur hvítir og gallabuxurnar voru líka veeeeel drullugar. Núna eru skórnir í þvottavélinni, búið að finna pollabuxurnar og NOKIA stígvélunum hefir verið komið fyrir í Græna hehe.

...svo kom vitanlega barn í heiminn í gær, sem ég ætlaðist reyndar til að kæmi í heiminn 25. apríl. Erla Birna og Maggi eignuðust stúlku sem ku hafa verið 3210 gr (ef minnir mitt bregst mér ekki) og 51 cm. Það merkilega er reyndar að stúlkan er dökkhærð.... En innilega til hamingju með barnið og ég hlakka æði til að sjá hana :)

...við frænkur skönnuðum uppskriftabókina hennar ömmu heitinnar í vikunni. Þar fann ég ýmsar góðar, t.d. marmaraköku- sem og sandkökuuppskriftina góðu. Það verður pooooottþétt bakað um helgina. Búin að kaupa kartöflumjél og súkkulaðispæni svo ég er ready to go njomm njomm.

...málningarframkvæmdir ganga hægt en örugglega. Flækir málin að það er svo skolli mikið að gera hjá mér þessa dagana, en tíminn er nýttur vel. Húsvörðurinn benti reyndar á að ég þyrfti ekkert að vera að vanda mig.... Viðurkenni samt alveg að ég er farin að sakna sófans....en hann bíður mín bara sem og TV-ið jaja :)

...hey, ég er líka búin að standa við áramótaheitið. Sundkortið frá 2006 er búið og búin að kaupa nýtt. Stefni að því að vera búin að klára það fyrir haustið.

...við mægðin vorum líka að koma frá bekkjarsamkundu. Við fórum saman í fótbolta, sko við erfinginn, ég í buxum án beltis sem sigu bara niður urr og ekki í alveg réttum byggelbra (það var eins og ég væri með fjeeeegur). Þetta var fjéééér enda farið í fullt af leikjum....:)

...þangað til næst :)

~Ellan~ kl. 9:39 e.h. © ::

::


sunnudagur, maí 04, 2008

::STUNDARBRJÁLÆÐI...::

...greip mig áðan, rétt fyrir kl. 22. Ákvað að fara langa hringinn að mestu gangandi og hlaupa svo niður merkurbrekkuna.

...af stað fór ég og gekk rösklega langleiðina suður Garðaveginn, þaðan upp til fjalla og síðan stefndi ég rakleitt norður í átt að Mörk.

...hlaupastingur gerði strax vart við sig við upphaf ferðar, sem er svo sem ekki nema von þar sem í kveldmat var sver samloka með mikilli sósu í herbúðum félagsbúsins.

...svo ég geri langa sögu stutta að þá skokkaði ég frá toppi "hesthúsabrekkunnar", framhjá hesthúsunum, Laufási og Lyngholti og til að gera langa sögu ennþá styttri þá joggaði ég upp að hinum víðfræga brunahana við heimkeyrslu hallarinnar.

...ferðartími var upphaflega áætlaður einklukkustundfjórarmínúturogfjöritíuogfimmsekúndur en tók ekki nema fjöritíuogþrjármínúturog40sekúndur. Sem þýðir tímasparnað upp á....æji, reikniði bara sjálf ;)

...ég blés varla úr nös *hóóóóst* og skokkaði með álíka léttleika og Reimar hennar Ínu minnar....eða því sem næst.

...núna er ég komin í bólið og velti fyrir mér hvort að ég sný mér á hina í fyrramálið þegar klukkan hringir kl. 05:45 í fyrramálið, eða hvort að ég hlussast í ræktina.

...þangað til næst ;)

~Ellan~ kl. 11:45 e.h. © ::

::