.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
mánudagur, apríl 28, 2008

::JAJA...::

...ammlisdagurinn var asskoti nice. Núna er ég formlega komin á fe....aldurinn veiiiiiii :) Fékk margt fagurra gjafa, m.a. blóm frá viðhaldinu á 12. Ég er alveg að fíla að eiga svona viðhald og það eina sem felst í því er að ég fæ blóm einu sinni á ári, og m.a.s. er Hemmi lögga alltaf sendur með þau í vinnuna hehe. Jamm, svo á ég von á STÓRUM pakka...hlýt að fara að fá hann....ég er svoooooo spennt wííííííííí :)

...er byrjuð að yndirbúa breytingar á herberginu mínu. Málningarvinnan á gluggalistum hefur hafist en tekur bara asskoti langan tíma. Ein umferð á dag, nema í dag....þá svindlaði ég.

...áramótaheitið gengur hægt en örugglega. Væri löngu búin með það ef ég færi ekki svona oft í ljós hehe. Talandi um það, það er svo fyndið að fara í sund þegar gamla kalla elítan mætir á kveldin. Þeir eru sko ALVÖRU slúðurkjéddlíngar. Svo sakna ég svo útlandanna að ég setti á mig Body Butter eftir ljósin áðan og anga af útlandalykt :)

...júmm, svo voru vortónleikar hjá okkur mæðginum áðan (og reyndar annarra líka) og það gekk bara fínt. Erfinginn er alltaf flottur og ég ruglaðist aðeins en hélt kúlinu og það er vel.

...svo hef ég þetta að segja að lokum....Gædíng hvað!

~Ellan~ kl. 10:17 e.h. © ::

::


fimmtudagur, apríl 24, 2008

::DEGINUM....::

...var af einhverjum orsökum eytt inni við bakstur og þess háttar stúss :)

...kíkti líka aðeins í Græna á litlu sætu lömbin. Þau eru svoooooo sæt. Sprella er eitthvað hvumpin og rauk í frænkuna í nótt. Húsvörðurinn sagði að hún væri FREK....af hverju ætli blessuð skepnan heiti Sprella? Hún var samt ljúf sem lamb við mig....greinilega ekki sama hver er:) En lund Sprellunar mun lagast um leið og hún verður búin að "unga út"...

...ég er búin að lofa að standa vaktina með húsverðinum og frænkunni í seinna sauðburðarhollinu. Sko m.a.s. næturvakt, úfffff, ÚFFFF er strax farið að kvíða fyrir.

...bumbusjóðspartýið í gær var æði gæði. Kjartan Sveins eldaði rjúpu og gæs....ég fæ bara vatn í munninn af tilhugsuninni njomm njomm. Svo erum við náttúrulega bara svo skemmtileg líkt og við erum reglulega minnt á af starfsfólki KVH. Ein starfsstúlkan gekk m.a.s. svo langt í gær að óska eftir því að við tækjum þau á námskeið í að vera skemmtileg hehe.

...fyndnast fannst mér samt í gær þegar einn sagði upp úr þurru "Ella, þú þarft að ná þér í einn svona feitan eins og okkur, þá þarftu aaaaaaaldrei að hafa áhyggjur af honum". Viðkomandi og sætisfélaginn eru kannski svona ekki aaaalveg í stærð medium, en samt æði sætir báðir tveir. Hins vegar er ég ekki aaaalveg sammála.....en fyndið varða :)

...þangað til næst...

~Ellan~ kl. 10:32 e.h. © ::

::


miðvikudagur, apríl 23, 2008

::JEIIIII::

....fyrstu lömbin komin í Græna.

....það er frí á morgun.

....Héraðsþing USVH búið í ár.

....ég get því farið að þrífa.

....nú verður sko farið ÚT að hlaupa og líka inni á brettinu.

....ég þarf að fara að baka.

....bumbusjóðspartý í kvöld!

....og ég er farin í ljós :)

~Ellan~ kl. 4:59 e.h. © ::

::


sunnudagur, apríl 20, 2008

::MINN ELSKULEGI....::

...húsvörður á ammli í dag. 30 ára þessi ´ssska, sem þýðir að nú er upprunnið hið árlega tímabil er við erum jafngömul. En það rennur sitt skeið veit ég mæta vel :)

...húsvörðurinn mætir við fyrsta hanagal í hverst skipti sem ég kalla....hann m.a.s. þrífur bílinn á meðan ég bregð mér til útlanda (já, bíllinn verður því þrifinn aftur í júlí og aftur í september....jaaahjérna). Svo ætlar hann að klára sólpallinn í sumar ogogogogoooooog redda nokkrum ofnum :)

...deginum var því eytt í Græna í æði veðri, þar sem fram fór kökumaraþon og dásamlegur kveldmatur í formi læris og svo var náttúrulega eftirréttur.

...sérstaklega fannst mér ljúft að vera bara í sveitinni í dag, en ekki inni við að redda eitt stykki ársreikningi á meðan brjáluð blíða hefur ríkt á Hvamms!

~Ellan~ kl. 10:40 e.h. © ::

::


fimmtudagur, apríl 17, 2008

::Í GÆR...::

...var bókuð ferð til USA, nánar tiltekið til Orlando 12. sept nk.

...þar fóru fögur fyrirheit um útlanda straff eftir Tenerife ferð sumarsins.

...í fyrstu þurfti ég áfallahjálp og hringdi í húsvörðinn.

...eftir smá tíma var ég meeeeeeeeeeira en geim í ferðina.

...svei hvað ég hlakka til, húbbba húllle húllle húllle :)

...þetta þýðir 5 utanlandsferðir á rúmu einu ári....og 3 utanlandsferðir á 6 mánuðum, rærærææææ.

...þangað til næst...

~Ellan~ kl. 6:34 e.h. © ::

::


fimmtudagur, apríl 10, 2008

::SÍÐAN SÍÐAST....::

...er ég búin að spila á ráðstefnu Menningarráðs Norðurlands vestra. Ég er æði sátt hvernig til tókst. Þetta var ekki 100% en ég lifði af og fengum við hrós frá fólki sem hefur vit á tónlist svo *fíddfíjúúúú* fyrir mér.

...er ég búin að fá ammlisgjöf húsvarðarins í hús mööööörgum dögum fyrir afmælið. Gott með Sprelluna :)

...er ég búin að vera súper dugleg í ræktinni. Mætt alla daga síðan á mán.morgun....óóóóó sóóóó geggjað. Geðslag mitt er eftir því...tíhí!

...er ég búin að vera að fara allt of seint að sofa, obbb bobb bobbb.

...er ég búin að upplifa æði fyndið atvik árla morguns sem olli brosverkjum hjá mér langt framyfir hádegi.

...er ég búin að eiga í hatrömmum deilum við suma, urrr. Ég hef ákveðið næsta "move" sem mun valda því að þú kæri deiluaðili munt pissa á þig....hvort að það verður af hræðslu eða hlátri verður að koma í ljós...þú getur allavega farið að skjálfa á beinum því gjörningurinn verður framkvæmdur þér að óvörum!!!!

...er ég búin að halda smá pizzapartý sem var æði, enda æði mæðgin sem komu í mat. Þetta verður pottþétt endurtekið hið fyrsta :)

...þangað til næst...

~Ellan~ kl. 4:44 e.h. © ::

::


föstudagur, apríl 04, 2008

::KANARÍ - FERÐASAGAN::

...heppnin lék við okkur börnin í flugvélinni á leiðinni til heitu landanna. Haldiði ekki að ástfangna parið í vélinni hafi setið beint fyrir framan okkur. Sem betur fer sofnaði erfinginn fljótlega svo ég þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að augu hans litu einhvern ósóma, eða kannski meira að þurfa að útskýra fyrir honum ástleitnina. Ástinni var fagnað með hverri flöskunni á fætur annarri...þar til ástfangna parið ákvað að “leggja sig”. Þegar við lentum loks á Kanarí og þau vöknuðu voru þau hins vegar eitthvað minna ástfangin....

...þegar búið var að núa stírurnar úr augunum fyrsta morguninn fór erfinginn á stjá og kom svo hlaupandi inn “haaaaaaann afi hans Viktors Inga er hérna”. Heyrðu, þá vorum við bara á sama stað og þessir líka þvílíku snillingar....rjómi allra Kanarífara....Baldur og Lilla, Bögga og Stebbi. Vá, hvað var æði að hafa þau þarna....en þau voru bara viku. Ég saknaði þeirra þvílíkt þegar þau fóru...erfinginn var samt mest vængbrotinn því þá fór líka Jakob bróðir Stebba en þeir voru svo miklir félagar....annar áttræður og hinn að verða 9 ára hehe.

...eitthvað var um búðarráp en verslaði ekki mikið. Ég afrekaði þó að kaupa mér kjól sem er “rauður fyrir allan peninginn” líkt og húsvörðurinn tók til orða. Ok, kannski verslaði ég aðeins meira en smá. Svo beið mín náttúrulega hluti af bikiníinu þegar ég var komin heim....sem ég var að vonast til að kæmi ÁÐUR en ég færi út.....ogogogogoooooog fékk líka aðeins meira....er alveg hrikalega ánægð með náttkjól sem ég pantaði mér :)

...ég tók vinnuna alvarlega og lá í sólbaði við hvert tækifæri. Varð samt ekkert svona “Böggubrún”, en það kemur kannski seinna. Eins fáránlegt og það kann að virðast fékk ég svo alvarleg sólbaðsfráhvarfseinkenni eftir heimkomu að ég er búin að fara í ljós! Ég hugga mig við það að vera að fara aftur í sumar.....en bara í viku....buhuhuhuhuuuuuu.

...við börnin fórum með ma&pa í Aqualand. Þar fórum við í hinar ýmsu útgáfur af rennibrautum. Ein var svo rrrrrrrrrosaleg að ég lokaði augunum á niðurleið og við “lendingu” þreifaði ég í flýti eftir því hvort að bikiníið væri á sínum stað og náði að laga það sem laga þurfti áður en nokkur skaði hlaust af....vonandi....svona annarra vegna hehe.

...Tivoliið var líka tekið með trompi. Þó ég verði nú að segja að ég hafi orðið fyrir dulitlum vonbrigðum með það. Þar var samt smá rússíbani....sem krökkunum þótti nú meira búst en mér...erfinginn var algjör snillingur þegar fyrsta salíbunan var tekin...búið að ferja okkur upp á topp og svo fann hann á sér að allt var að fara á fulla ferð...þá gólaði hann “Ég er að fá HJARTAÁFALL”. Hvar ætli hann hafi heyrt þetta áður blessaður...

...hey og keilan var líka tekin með trompi. Á Kanarí fór ég í fyrsta skipti á ævinni í keilu og það var bara gaman. Náði fellu í tilraun númer tvö...en við spyrjum samt ekkert að leikslokum....en ég var ekki neðst!

...ég var duglegri við lestur en ég átti von á. Tók svona eina 400 blaðsíðna bók á dag, sem þýddi að á degi 3 var ég búin að klára það sem ég ætlaði að lesa á þessum tveimur vikum. Þá voru góð ráð dýr....varð að færa mig yfir í “fagurbókmenntir” með titlum á borð við “Bónorð glaumgosa”, “Kúrekalögga” og “Faðir að eigin ósk”....svo fátt eitt sé nefnt. Yuuuuuukk....YUUUUUKKK segi ég, en allt er hey í harðindum og ég læri af þessu...taka með nóg lesefni næst :)

...já....og svo varða heimferðin. Sji....ti....og hó.... Það var næturflug með millilendingu á Spáni *vei*. Nema hvað, í einni röðinni voru hjón sem rifust frá millilendingu og nær alla leiðina heim á frón. Svefnfriðurinn var því mínus hjá fólki í svona 6 raða radíusi frá þeim blessuðum. Ef ég hefði verið maðurinn hefði ég farið beint til sjérans við lendingu og heimtað skilnað!

....svo mörg voru þau orð, styttist í næstu ferðasögu :)

~Ellan~ kl. 10:29 e.h. © ::

::




::ÞETTA....::

...hér kemur mér baaara í stööööð.

...eða sko, meira stöööööð en 9-4.

...er af einhverju orsökum búin að vera brosandi út að eyrum að mestu alla þessa viku.

...kannski er það ræktin á hverjum morgni, eða....

...þangað til næst :)

~Ellan~ kl. 4:40 e.h. © ::

::


þriðjudagur, apríl 01, 2008

::JEEEEIIII...::

...ég fór loks í ræktina í morgun og í nýju ASICS skónum mínum. Þeir eru æði :)

...held að ég hafi alveg farið 2 daga í mars, ekki sniðugt...

...nema hvað í morgun var verið að sýna einhverja hallærislega bjébjé mynd í TV-inu og myndin var um einhverjar tónlistarsumarbúðir og tvö lið að keppa um sigurinn. Foringjar liðanna eru náttúrulega erkióvinir og beita allra bragða til að klekkja á hinum. Allt í lagi með það.

...svo tekur annar sig til og tæmir slefið úr blásturhljóðfærunum í gosdós, fer og ræðir við hinn og skiptir um dós.

...hinn tekur fyrsta sopann og þegar hann tekur dósina frá munninum þá hangir fast slefið við dósina...þið vitið svona slímug lengja....

....hvað gerir Sprellan...jú hún KÚGAST. Mjááá ég kúgaðist svo að ég hélt að brettið fengi gusuna yfir sig og já....ég þurfti að líta undan á meðan ég var að jafna mig. Ég hefði svoooo margfalt viljað einhverja ógeðslega hryllingsmynd en þessa bjébjé mynd. Guðríður...sást þú til að þessi mynd yrði sýnd í morgun....ef svo er....heppnaðist bragðið fullkomlega!

~Ellan~ kl. 10:18 e.h. © ::

::