.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
þriðjudagur, febrúar 26, 2008

::15 DAGAR...::

...í Kanarí hina fyrri, úúúúú jeeee. Pantaði bikiníið í síðustu viku, en brækurnar í settinu ekki til og verða örugglega komnar í tæka tíð. Það er því tvennt í boði, a) finna sér annað bikiní á Kanarí....b) hummm, þið vitið hvað það er hehe.

...ég er bara farin að hlakka til. Ætla að vera æði löt, taka með mér slatta af bókum...kannski prjóna....mjáááá, og ég er að hugsa um að taka BC líka með. Þá hef ég allavega ekki afsökunina þarna úti hehe.

...sumir hálfgóluðu á mig í dag "ertu ekki búin að fara og hitta lækni"....ennþá einhver hávaðamengun í gangi í formi hósta. Issss...bítiði bara á jaxlinn hehe.

...jamm og síðustu helgi var ekki kveikt á nei-aranum í mér þegar ég fékk símtal. Plúsinn, nýtt lag....ágæt tilbreyting frá 6. stigs prógraminu sem ég er að vinna í núna....mínusinn; sviti, ör hjartsláttur, ógleði og maaaaargt fleira.

...og svo langar mig í eitthvað...þarf að komast aaaaðeins frá Hvamms og kaupa eitthvað. Ekki að það sé að fara að gerast.....svoooo mikið að gera áður en ég fer burtu í fríið. SVOOOOO mikið dæræræææææ :)

~Ellan~ kl. 8:40 e.h. © ::

::


laugardagur, febrúar 23, 2008

::EUROVISON...::

...teiti stendur í þessum töluðu orðum yfir í herbúðum félagsbúsins á 19. Búið að skófla í sig pizzu og nú er ótakmarkað magn af sælgæti í boði. Ég er m.a.s. búin að kjósa Eurobandið 2x, því ég geri mitt til að sporna við að "ho ho ho we say hey hey hey" eða hvað það nú heitir fari með sigur úr bítum. Ég mótmæli því að fólk fari til Serbíu sem kann ekki að syngja og hananú.

...mjá og svo er nú blessaður konudagurinn á morgun. Ef ég ætti mann hefði ég beint því til hans vinsamlegast að gefa mér ekki blóm, heldur nefspray. Jebb, ég er með æði mikið hor, hósta og í þokkabót er ég orðin raddlaus. Þar sem maðurinn er "týndur", skundaði ég bara sjálf í apótekið í gær og keypti það sjálf hehe.

...jamm og svo er líka systrahelgi. Foreldrarnir skildu okkur einar eftir heima og gegn því að við héldum ekki partý var okkur heitið "heimasetuverðlaunum"...þess vegna fórum við bara í partý á 19 svo við töpuðum ekki verðlaununum. Jeeee við systur búum yfir álíka miklu keppnisskapi hehe.

...þangað til næst...

~Ellan~ kl. 9:33 e.h. © ::

::


þriðjudagur, febrúar 19, 2008

::SÍÐASTA HELGI....::

....var algjörlega dásamleg. KJ kom ásamt eiginmanni og börnum norður í sæluna. Dóttir hennar gisti reyndar á 12 en þess ber jafnframt að geta að hún er tilvonandi tengdadóttir mín. Hún og erfinginn eru satt best að segja ÓTRÚLEG og hjónasvipurinn búinn að vera áberandi sterkur síðan hún var 1 og hann 2.

....þegar mest var voru börnin hjá mér 7 talsins. Þá var orðið pínu þröngt í búi og því fengu þessi 3 að skríða bara upp í rúmið mitt og horfa á mynd í túlvunni. Þau eru nú æði fríð (tengdadóttirin er þessi í miðjunni, bara svona svo það sé á hreinu) :)


...júmm og svo fórum við KJ á rúntinn bæði kvöldin og skildum Pétur eftir með börn og buru (það voru 2 aukastrákar í gistingu á fös.kvöldinu).
...og júmm, líkt og vanalega sofnuðum við vinkonurnar í sófanum yfir DVD.

...svo voru endalausar ammlisveislur;
  • föstudagskvöld; ammliskaffi hjá Eygló litlu sys sem er orðin 13 ára...sem þýðir ár í að hún verði fermd....og ég hugsaði með mér þegar hún fæddist að þegar kæmi að því yrði ég komin með mann, 4 börn, hús og jeppa. Alveg spurning um að slá aaaaaðeins af kröfunum hehe.
  • laugardagur; ammliskaffi hjá Björgvini Díómedesi, sem er sá aaaaaallra allra sætasti (og var líka svo ÆÐI ánægður með ammlisgjöfina sem var ógeðsleg könguló og riddaradót hehe)
  • sunnudagur; annar í ammli hjá Eygló sys
...annars er það helst að frétta að það styttist í Kanarí hina fyrri....sem þýðir að ég verð víst að fara að redda bikíní tíhí :)
...þangað til næst...

~Ellan~ kl. 6:52 e.h. © ::

::


fimmtudagur, febrúar 14, 2008

::ÞORRABLÓT 2008...::


...var pínu svona;





....oggopínkupons svona;







...aðallega var það þó bara svona :)


...myndir eru fengnar að "láni" hjá Emm.

~Ellan~ kl. 4:24 e.h. © ::

::


fimmtudagur, febrúar 07, 2008

::P.S. ÉG ELSKA ÞIG....::



...nei, ég elska þig sko ekki....eða kannski....hvur veit hehe. En allavega, það er búið að vera að auglýsa þessa mynd mikið á fm957 undanfarið og mér fannst þetta svo ógeðslega hallærislegur titill að mér lá við velgju....þangað til fattarinn vaknaði til lífsins í dag og ég ætla sko á þessa mynd í bíó og hananú.

...ég fékk þessa bók nefnilega gefins eitt sinn í jólagjöf og ég grét heil ósköp, bæði úr hlátri og sorg, aðallega hlátri samt. Það eina sem stóð bókinni fyrir þrifum var skelfileg þýðing á ritverkinu yfir á íslensku....eníhá...mikið ógisslega hlakka ég til að fara á myndina, og ekki skemmir fyrir hver leikur dána manninn.....Gerard Butler njomm njomm njomm. Hver kemur með mér í bíó?

~Ellan~ kl. 7:57 e.h. © ::

::


mánudagur, febrúar 04, 2008

::HUMMM...::

...ég er orðin verri en gamla fólkið, þ.e. ég fer TVISVAR til Kanarí á þessu ári. Með ma&pa um páskana og svo með ÞHB, KJ, börnum og mökum ef þeir eru til staðar í sumar. Við létum undan endalausu suði barna og kaddla sem var eitthvað á þessa leið "hvenær megum við EIGINLEGA koma með?" og svo fylgdi ægilegur hvolpasvipur í kjölfarið. Afleiðingar þessarar ferðar geta orðið tvenns konar;

a) þau hætta þessu suði og við fáum að fara óáreittar mörgum sinni á ári eftirleiðis eða
b) þetta verður gert aftur og afturogafturogafturogaftur

...ég veðja reyndar á b) og svo laumumst við skvísurnar til útlanda þess á milli :)

...júmm, svo verð ég doldið mikið að vinna næstu daga. Ég hringdi því í móður kæra sem ætlar að ættleiða erfingjann minn á meðan. Hvað get ég sagt, ljúft þegar ég klára þetta wíííííí :)

...þorrablótið er svo á næsta leiti. Miðarnir eru komnir í hús og í æsingnum yfir að ná góðum sætum gleymdi ég að skutla bílnum í gír svo hann rann út í skafl blessaður. En við ræðum þetta ekki meira (samt spurning um að biðja bara móður kæra að ættleiða bíllinn líka, er greinilega ekki aaaaaalveg með öllum mjalla).

...og ég er svooooo sybbin eftir BC í morgun að ég er skriðin upp í rúm. Það var endalaust mikið af "froskum með hoppi" og það eina sem olli því að ég kláraði þessa fja***** æfingu var þrjóskan :)

...gn...

~Ellan~ kl. 9:48 e.h. © ::

::