.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
fimmtudagur, janúar 31, 2008

::ÉG HELD....::




...svei mér þá að það hafi ekki náðst svona góð mynd af okkur Gísla saman, síðan við vorum lítil með snuð og bleiju.


....og svei mér...


...ef þetta er ekki fyndnasta skorumynd sem ég hef á ævinni séð. Svipurinn, segir allt sem segja þarf hehe




~Ellan~ kl. 6:28 e.h. © ::

::


laugardagur, janúar 26, 2008

::NÚ ER FJEER....::

...í höllinni enda Klobbarnir komnir saman. Ekki nóg með það heldur eru aukaklobbar væntanlegir í fjeeerið í kveld. Eins og sjá má hér er allt á fullu í eldhúsinu, njomm njomm :). Þess skal getið að búsið er komið í kælingu og ég spái því að við strunsum á BARINN í kvöld.


....annars erum við búnar að fara á rúntinn, fara í torfærur, fara í babbín, flatmaga í heitapottinum, gera heiðarlega tilraun til að renna okkur og horfa á seggsið, úíúíúíííííí.
...jæja besta að redda kveldmatinum, sem er klobba málsins samkvæmt, fashionable late.
...þangað til næst :)

~Ellan~ kl. 7:50 e.h. © ::

::


miðvikudagur, janúar 23, 2008

::GARPASUND...::

...hefst í dag klukkan 19. Áætlað er að hafa það 3 daga í viku;

  • miðvikudaga kl. 19:00
  • föstudaga kl. 19:30
  • laugardaga kl. 10:00

...ErrEss hefur yfirumsjón, en Svenni bak ætlar að að synda með og redda æfingum.

...Sprellan lofar ekki 100% mætingarskyldu í ljósi þess að ræktin er tækluð 4 morgna í viku, en sjáum til. Þyrfti nú að hlussast á allar garpaæfingarnar líka svo ég líti ekki út eins og skelfilegt umhverfisslys í bikiníinu á Kanarí, en sjáum til.

...og aaaaðeins til að monta mig þá er ég bæði búin að taka ræktina núna í morgun og ljósabekkinn bújaaaaaa :)


~Ellan~ kl. 7:37 f.h. © ::

::


miðvikudagur, janúar 16, 2008

::Í DAG...::

...vaknaði ég sybbin kl. 06:15, eftir að hafa farið of seint að sofa. Fo** það var erfitt að vakna, en á fætur reis ég og snáfaði í ræktina. Gurrý gerði tilraun til að bregða mér, þegar ég var ein með ippanum mínum að gera magakreppur....það tókst ekki, ekki í þetta skiptið allavega :)

...fór í vinnuna og var dröslað suður á eitt stykki fund. Fundurinn var bara fínn og svo þurfti aðeins að fara í búðir fyrir vinnuna, t.d. IKEA. Í IKEA keypti ég mér skurðarbretti og rör, kostaði alveg innan við 500 kall. Ég var greinilega utangátta vegna þreytu, svo mikið er víst.

...lagt var af stað heim á leið og til að gera langa sögu stutta þá vorum við næstum því tvo tíma heim frá Bgnesi, sjalllalaaaa. Váááá hvað það var ljúft að komast heim.

...þangað til næst...

...

~Ellan~ kl. 8:16 e.h. © ::

::


sunnudagur, janúar 13, 2008

::Á MEÐAN....::

...ég þreif hýbýlí gæludýranna, þ.e. hjá gullfiskunum sem heita þeim frumlegu nöfnum Jón (sá stóri) og Dagur (sá litli) og Tístunni (þ.e. páfagaukurinn) sat vinkona mín á landsleik í handbolta. Sanngjörn skipti....ég skal ekki segja.

...helgin er búin að vera wúnderfúl. Ég er búin að haga mér eins og prinsessan á bauninni og bara gert eitthvað fyrir mig. Ljós, sund, göngutúrar, rúntur, sofið út og svo framvegis. Mér gengur sko æði vel með áramótaheitið wííííí :) Jamm, og svo er ég líka búin að æfa mig. Held að tónlistarkennarinn flái mig lifandi ef ég mæti enn einu sinni óæfð í tíma. Auk þess er ég líka uppiskroppa með afsakanir...

...vikan sem leið var líka algjör snilld. Þetta var vika strengja (jeeee BC er byrjað aftur og er alveg fjári dásamlegt), óvæntra uppákoma og æðislegs fíbblagangs. Vonandi verður sú næsta með svipuðu móti :)

...þangað til næst...

~Ellan~ kl. 5:53 e.h. © ::

::


föstudagur, janúar 04, 2008

::NÝTT ÁR....::

...mætt og mér finnst það bara fínt. Alveg spök á áramótaheitunum í ár, en eitt hefur þó verið sett. Ég ÆTLA að klára sundkortið sem ég keypti 2006 núna í ár. Ég skammast mín fyrir slælega sundástundum á síðasta ári. Og viti menn, ég er m.a.s. búin að fara 2x í sund á þessu ári og bara kominn 4. janúar hehe. Ogogog ekki nóg með það, heldur er ég aðeins byrjuð að synda og mikið fjári er það dásamlegt.

...annars er bara allt dásamlegt að frétta. Það er svo hátt á mér risið að ég bauð m.a.s. ma&pa í mat áðan í þessa líku dásamlegu mexíkó súpu með kjúkling og átum við öll á okkur gat, njomm njomm :)

...bloggarar eru sumir í óðaönn að taka saman hvað gerðist árið 2007. Ekki nenni ég að setjast í slíka naflaskoðun enda árið bara eins og hin fyrri ár, kærasti/loverbojjj kom og fór, sem og aukakílóin (reyndar komu þau aftur sem verður að teljast nýlunda urrr) hehehe.

...núna liggjum við mæðgin upp í bóli, ég með fartúlvuna og hann með DVD spilarann sinn sem móðirin var svo elskuleg að gefa honum í jólagjöf (en ákvörðunin er náttúrulega sprottin af pjúra sjálfselsku móðurinnar tíhí). Kannski að ég ætti að koma blessuðum erfingjanum í bólið, enda ræs eigi síðar en 9am þar sem nú skal snúa honum aftur til fyrra lífs og hætta þessari leti...samt eins og það taki því, bara 354 dagar til jóla ekki satt? :)

...hey og við vinkonurnar pöntuðum okkur svolítið sniðugt í dag. Ég svitna bara af tilhugsuninni einni saman, þetta verður rrrrrrrosalegt!!!

~Ellan~ kl. 11:25 e.h. © ::

::