.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
fimmtudagur, september 27, 2007

::EMMA ÖFUGSNÚNA....::

..."was my middle name" þegar ég vaknaði í morgun. Ég var helst til sybbin eftir að hafa unnið fram yfir miðnætti í gærkvöldi og já....mikiðmiiiiiiikið síðustu daga/vikurnar. Ræktinni var líka sleppt, sem útskýrir líka svona 85% pirringsins. En viti menn, árla morguns fékk ég bara svo sætt bros.....að ég brosti til 11 í morgun, en varð þá að hætta vegna brosverkja. Fljótt skipast veður í lofti segi ég nú bara..... :)

~Ellan~ kl. 5:08 e.h. © ::

::


laugardagur, september 22, 2007

::HÚSVÖRÐURINN...::

...gerði sér lítið fyrir í dag og sló garðinn á meðan ég var að vinna. Góður þessi húsvörður, hann er sko BESTUR :)

...partýið í gær var áhugavert, án þess að ég fari nánar út í það. Ég fékk ýmsar lýsingar;
  • þú ert töffari
  • þú ert jaxl
  • þú ert æðisleg
  • þú ert yndisleg
  • þú ert frábær
  • þú ert toppurinn

...deginum í dag eyddi ég svo í vinnunni, einhverjum hluta af morgundeginum verður líka eytt þar. Dásó!!!

...mig langar í höfuðborgina að spreða monníum. Þegar maður er svona bizzý, og nær ekki að sinna kreditkortinu verður það bara dapurt!

...en jæja, mín bíður vídjó með húsvörðinum og hans tilvonandi.


~Ellan~ kl. 9:49 e.h. © ::

::


fimmtudagur, september 20, 2007

::ÞESSI BLÓM...::



....fékk ég afhent í dag. Alltaf æði að fá blóm, takk takk kæri blómagefandi :)

~Ellan~ kl. 12:54 e.h. © ::

::


miðvikudagur, september 19, 2007

::LANGT SÍÐAN SÍÐAST...::

...*skamm skamm*...

...enda hef ég lítið annað gert en að vinna, fídddfíjúúú. Erfinginn hefur af þeim sökum verið óvenju mikið hjá ömmu sinni og afa. En það sér fyrir endann á þessu, og það verður bara fínt :)

...kíktum í “vitlausar réttir” síðustu helgi. Veit ekki hvort að ég eða erfinginn var fúlari. Það þýðir hins vegar ekkert annað en bíta á jaxlinn og fara aftur í Hamars að ári, enda styttist í að bústofninn í Græna verði slíkur að hjálp okkar verði vel þegin við að koma rolluskjátunum til síns heima.

...júmm og svo hringdi maðurinn á 12 á lau.kvöldið og sagði “við förum á ball”. Ég gegndi því vitanlega. Þetta fór allt í vitleysu, Tequila vitleysu. Ég var ekki aaaalveg geim í annað partý næstkomandi föstudag þegar ég vaknaði á sun, en núna er ég sko aftur orðin geim. *Glugggglugggluggg*, 2 dagar í næsta djamm hehe.

...ég er búin að borga Póllandsferðina, eða sko búin að strauja kortið. Ekki aaaalveg búin að borga. Verður þetta fjör, eða meira fjör :)

...ræktin er á sínum stað, alla virka morgna fyrir vinnu. Mí lækí lækí. Ég brýst á fætur fyrir þrjóskuna eina saman en þetta er svo lovely. Ef ég stend mig út þessa viku verða það 3 vikur í röð, sem er svalt.

...ekki má heldur gleyma að Hafdís og lillan kíktu í heimsókn um helgina. Lillan er bara flottust (og þú líka Hafdís mín :))

...jæja, meira síðar...

~Ellan~ kl. 9:25 e.h. © ::

::


þriðjudagur, september 18, 2007

::STJÖRNUSPÁ.....::

....dagsins fyrir Sprelluna í boði mbl.

Varúð! Þú ert í hættulega alvarlegu skapi. reyndu að koma auga á það sem er fáránlega fyndið við aðstöðu þína. Það verður ekki erfitt.

....mér finnst hins vegar fáránlega erfitt að finna hvað er fáránlega fyndið við aðstöðu mína.

~Ellan~ kl. 6:03 e.h. © ::

::


laugardagur, september 01, 2007

::KÖBEN 2007::


...júmm fólk er farið að heimta ferðasöguna. Voilá.


-miðvikudagur, dagur gleðinnar-
Eftir að börnum og mökum (í einstaka tilfellum) hafði verið komið í "pössun" var haldið af stað á völlinn. Aldrei þessu vant lentum við ekki í neinum erfiðleikum með að fá stimpil á rassinn og var hleypt inn í fríhöfnina í fyrstu tilraun. Þar var aðeins hlaupið í búðir, aðallega til að kaupa birgðir fyrir Köben. Namminamminamminammi og já Tópas...sko í fljótandi formi:) Svo varða bjórinn, bjórinn ó bjórinn.

Við gleymdum samt ekki að fara í vélina sem var á réttum tíma og lentum í Köben á áætlun. Köben tók á móti okkur...fagnandi...með mígandi rigningu. Við gerðumst alvöru túristar, gáfum skít í leigubílana og skunduðum heim á fjögurra stjörnu hótelið okkar með lest. Vorum reyndar hálfhræddar um að við myndum lenda einhvers staðar út í buska (sem hefði svooooo verið týpískar við) en þetta gekk eins og í sögu. Þurftum svo að tölta nokkur skref heim á hótel....í rigningunni....og ég hef aldrei nokkurn tíman verið jafn blaut og þá (ekki áfengis....og ekki hönkítonkís...heldur bara blaut). Skunduðum út í sjoppu að kaupa kók og snakk og lögðumst svo í leti og planlögðum verslunarleiðangra ferðarinnar.

-fimmtudagur, dagur Fields-
Ræst var árla morguns, 6AM að íslenskum, eftir góðan nætursvefn. Þetta var dagurinn sem eyða skildi í Fields sem er ágætis verslunarmiðstöð í kóngsins köben. Kokhraustar yfir velgengni í notkun danskra lesta var skundað á lestarstöðina og vorum við m.a.s. svo pró að við notuðum sjálfsala. Erum við heimsborgarar eða hvað...allavega í Fields komumst við í fyrstu tilraun og var rokið beint í H&M, já hittum líka Helgu Villa og Adda bara fyndið. Þegar Sprellan sá að Danirnir gengu um með innkaupakörfu var henni nóg um (enda klyfjuð af góssi er skildi kaupa í H&M og ekki komin í gegnum alla búðina) og strunsuðum við því að finna svona kerru. Það gekk reyndar mun erfiðlegra en að nota lestirnar en það hafðist samt, með aðstoð manns er aumkaði sér yfir okkur hehe. Til að gera langa sögu stutta þá tókum við Taxa (eftir að hafa keypt bjór og aðrar guðaveigar) heim úr Fields (jájá hann hristi hausinn á sér og hugsaði með sér “aaaaaaahhhh Islændinger, shopalcaholicers”) rétt fyrir lokun.

Já í Fields fann Sprellan 4 danskar myndir til kaups....og það var eins og hún hefði unnið í lottó. Slík var ánægjan!!!

Svona var ástand innkaupakerrunnar við heimferð (á þessum tímkapunkti klóruðum við okkur í hausnum yfir því hvar í veröldinu leigubílarnir héldu sig eiginlega...en þeir voru bara hinum meginn....fjúfffff). Ég geri ráð fyrir að hún hafi verið fegin að losna undan kaupsjúkum Íslendingum.







Eftir að hafa kastað aðeins mæðinni var strunsað á uppáhalds veitingastaðinn okkar í Köben, Café Zirup. Reyndar er þetta líka bar...og óóó hvað það er gott að borða þarna. Mæli með Nachos Supreme og Miss Maria´s Quesodillas. Njomm njommmmmm...Næst settumst við úti á Europa og fengum okkur Mojito, sumar ánægðari með drykkinn en aðrar.

-föstudagur, dagur Striksins og tilraun til skammarstrika-

Aftur var ræst árla morguns og þetta var dagur Striksins. Þetta var í sjálfu sér ótrúlega afslappaður dagur. Versluðum ekki svo mikið enda ágætlega "fullnægðar" eftir verslunina deginum áður. Ákváðum svo að fá okkur hádegismat á McDonalds...átum aldrei þessu vant ekki yfir okkur og munum næst að panta okkur bara sér hamborgara og sér franskar!

Komum okkur snemma heim á hótel, til að undirbúa okkur undir kveldið ógurlega. Sáum okkur líka til mikillar gleði og ánægju að gay pride liðið var í óðaönn að koma sér vel fyrir á Ráðhústorginu, því viti menn það var GAYPRIDE í köben þessa helgi, heppnar....

Barinn á hótelinu var með ágætum. Þjónninn var æði sem var fljótur að læra hvað væri "the same as usual" hjá okkur, en það voru vitanlega þrír Callar...."Verndarar" okkar voru jafnframt sammála okkur um ágæti barnsins. Þessir "verndarar" okkar klæddust stuttum leðurvestum, voru breiðleitir, vöðvastæltir, svolítið fyrir bjórinn og já kenndir við víti. Jebb, það voru VÍTISENGLAR á hótelinu!!! Eins gott að þeir voru vinir okkar.....

Í lyftunni hittum við mann frá Norge sem var búinn að koma 12 sinnum til Íslands á 2 árum og gefa út fjölda íslenskra bóka. Hann var svo hrifinn af okkur að síðar um kveldið er við sátum ÚTI að drekka bjór að hann fékk að sitja hjá okkur (og félagi hans sem var fyllri en allt, en sem betur fer var hann bara stilltur greyið). Þá kom í ljós að hann þekkti Helga og Denna, menn sem hjálpuðu á sínum tíma ungdómi Hvammstanga að komast til manns....við losuðum okkur svo við kallana með því að gefa þeim afganginn af Tópasnum.

Júmm....við sem sagt vorum komnar á trúnó fyrir klukkan fimm á íslenskum, gerðum tilraun til rrrrrrosalegs djamms sem endist í svona nær klukkutíma. Fórum heim á hótel...gerðum aðra tilraun til djamms á Strikinu....sáum í hvað stefndi svo við fórum á Burger King og upp í rúm að sofa!

-laugardagur, dagur túrismans, lífsháska, skotapilsa o.m.fl. -

Þennan dag var sofið út...við rétt sluppum inn í morgunmat. Þetta var mikill rólegheitadagur, flestar voru búnar að versla vel upp í 20 kílóin svo það var ákveðið að gerast túristar. Fórum í 2ja hæða rútu, staðráðnar í að þefa upp það helsta í kóngsins köben. Fórum náttúrulega upp á efri hæðina og vorum fremstar. Heyrnartólin okkar virkuðu ekki, bílstjórinn kunni ekki að keyra og gerði tilraun til að taka koma Kristíönnu fyrir kattarnef....en hún sá við honum bwahahahaahahaaaaa. Stendur svo sem ekki mikið eftir þessa menningarferð okkar, annað en við sáum litlu hafmeyjuna....og hún er hæðar sinnar virði...hún er svo lítil...ég hefði þurft kíki til að sjá hana almennilega og það var eingöngu fyrir glöggsemi dönsku genanna sem ein okkar býr yfir að hún fannst.

Fórum aðeins á strikið svona af gömlum vana og ég verslaði ekkert fyrr en um fjögur...ég veit...hlýt að hafa verið eitthvað lasin. Við heimkomu var aldeilis orðið fjör á torginu...gay pride í hámarki og svo heppilega vildi til að rétt hjá hótelinu var bar sem hefði ekki boðið okkur vinkonurnar velkomnar....Við ákváðum því að setjast út í blíðunni, drekka bjór og virða fyrir okkur fólkið. Við sáum konur kyssast, karla kyssast, frjálslega vaxna karlmenn í sadómasó átfitti, dragdrottningar og maaaargt fleira. Ég sá meira en hinar, er karlmaður rölti framhjá í skotapilsi....svo kom vindhviða....og blobbsssss ég sá djásnið hans bwahahahahahaaaaa.
Það settust líka hjá okkur hjón, íslensk kona og danskur fyr sem búa í Köben. Það kom náttúrulega í ljós að hún átti ættir að rekja hingað í sæluna. Maðurinn hennar var líka ótrúlega flottur m.v. aldur og fyrri störf. Ef minn maður myndi nú eldast svona vel.....

Við nýttum líka tímann vel við bjórdrykkjuna. Búið er að skipuleggja fjölskylduferð næsta sumar...en ekki er loku fyrir það skotið að við 3 munum samt skjótast aaaaðeins til Köben í eins og einn dag.....það eru nú bæði morgun- og kvöldflug sko!

-sunnudagur, dagur heimferðar og Hvalfjarðarins-
Síðustu tímarnir í Köben voru rólegir. Tókum nú taxa út á flugvöll þó svo að innkaupin hafi verið minni en við síðustu heimferð. Við erum að tala um svona HELMINGI minni. Frammistaðan er til skammar, ég veit. Okkur létti nú reyndar stórum þegar við vigtuðum töskurnar og sáum að við vorum ekki með yfirvigt. Við tókum góða heilsubótargöngu í flugstöðinni til að fá stimpilinn fyrir TaxFree-ið og svo loks að koma okkur í gegnum þetta venjubundna. Engin yfirvigt, ekkert pípti á okkur og vorum á góðum tíma.....einhvern tíman er allt nýtt!

Heimleiðin gekk vel....alveg þangað til við úr Norðurlandinu vorum komnar að Hvalfjarðargöngunum. Viti menn...þau lokuð og við brunuðum Hvalfjörðinn í kapphlaupi við Bónus. Jú, báðar voru í þeirri stöðunni að ekkert var til matarkyns í hinum íslenska ískáp en þetta reddaðist. Það var reyndar fínt að fara Hvalfjörðinn....hvorug búin að fara hann síðan göngin komu og rétt sluppum inn í Bónus hehe.

Það var ljúft að komast heim að knúza púkann...en samt farin að sakna Köben...

~Ellan~ kl. 11:14 e.h. © ::

::