| ............................. |
|
SPRELLAN
|
|
::FIMMTUDAGSKVÖLD....:: ...og ég veit alveg um fleiri leiðir til að eyða því en í VINNUNNI. ...fór ekki á Mellow....geri það næst. ...sonurinn hringdi áðan. Hjá honum var heitt, og hjá honum var fjör. Hann spurði samt móður sína hvað það væru margir dagar þangað til hann kæmi heim. Móðirin var fljót til svara "11 dagar" :) ...við erum búnar að fara í ríkið og í okkur er púki.... ...annars gengur lífið sinn vanagang :) ...og mér finnst hann flottur ...næstum jafn flottur og...
~Ellan~ kl. 10:44 e.h. © :: ::HUMM...:: ...ætli það væri ekki sniðugt að skella inn smá pistli. ...erfinginn er farinn til heitu landanna. Hann kemur heim eftir 12 daga! ...ég velti næstum jeppa um síðustu helgi. Það er komin ný merking á að "leggja út í kant"! ...ég er hætt að segja vinum mínum leyndarmál! ...mig langar aaaaaðeins að skreppa til höfuðborgarinnar í oggopínkupons verslunarleiðangur. ...við stöllurnar fórum í ríkið í gær og gerðum sérpöntun. Tequila wúhúhúhúúúúúú :) ...unglist hafin. Við vinkonurnar röltum niður í Féló að horfa á. ...mellow musica á morgun, já? ...helga braga á föstudaginn, hell yeahhh. ...Borgarvirki á fös.kvöld, pottþétt :) ...laugardagur...ball...ég hlaaaakka til úhúhúhúúúúú ....já, merkilegur dagur í dag, eigandi "Ellu" á bara ammli :) ~Ellan~ kl. 11:59 e.h. © :: ::DOTTIN Í....:: ...Ísfólkið. Spennandi að sjá hvað það varir lengi. Les fram á nóttu og byrja morgunvaktina á nokkrum köflum. En hey, ekki eins og þetta sé ekki í lagi....ég er í sumarfríi. Sem lýkur víst formlega á morgun, vikan liðin, ööööössssss. ~Ellan~ kl. 1:45 f.h. © :: ::EINKAERFINGINN 8 ÁRA....:: ...í dag. Fyrir átta árum síðan var Sprellan á lokasprettinum að koma púkanum út. Myndi ég gera þetta aftur....pottþétt :) Annars finnst mér einstaklega sérstakt hvað hann eldist, en ekki ég!...svo er ég komin í sumarfrí...alveg fram á fimmtudag. Ég ætla mér að vera einstaklega LÖT og svamla í sundlauginni frá því að ég vakna (sem verður svona í kringum 11) og fram að sólsetri, því það verður svo mikil sól að annað eins hefur ekki sést hér í mannaminnum, og hananú!!! ~Ellan~ kl. 9:10 e.h. © :: ::SMÁ...:: ....föstudagsblogg. ....nýjasta orðið er SYBBALÓ! ....píanóið er væntanlegt í dag, en m.v. mína heppni kemur það vonandi fyrir jól. ....ég tók upp nýja sófaborðið í gær, og byrjaði að setja saman, en það eru spítur út um aaaallt hús. Ég þarf klárlega að fá múttu í heimsókn, ræræræræææææ..... ....ætlaði að vera ægilega dugleg í heimilisverkunum í gær....en datt inn í So You Think You Can Dance...Lúúúúúvvvv them :) ....það styttist óðum í að ég fari í frí.....alveg í rúma 3 daga....vonandi...wúhúhúúú :) ~Ellan~ kl. 2:58 e.h. © :: ::UMMM.....:: ...síðan síðast hefur ýmislegt gerst. Við skulum nú sjá.....
Í dag....
Framundan...
~Ellan~ kl. 8:04 e.h. © :: ::HEYSKAPUR...:: ...er í fullum gangi og líkur nú í kveld (þ.e. fyrri slætti). ...ég er endalaust mikið sólbrunnin. ...í heyskap fær maður rjómapönnukökur, afasultu, djöflatertu, brauð með hangikjéti og baunasalati = ég er í djúpum sk.. á morgun. ...og við frænkur geysumst á milli staða á fjórhjólunum. ...þetta er lífið :) ~Ellan~ kl. 7:33 e.h. © :: |