| ............................. |
|
SPRELLAN
|
|
::SONURINN...:: ...svaf út í dag, vaknaði ekki fyrr en 10. Jebb, ég get svo svarið það. Kannski er hann loksins loksins búinn að snúa sér yfir á sumartímann. Ekki seinna vænna :) Í gær kom hann rennandi blautur heim, hafði verið að vaða í ánni ásamt félögum. Hafði samt verið það forsjáll að taka með sér handklæði. Það er sem ég segi....sumarið er tíminn :) ...annars er vikan búin að vera lovely. Við mæðgin erum farin að vera asskoti dugleg við að fara í sund og erum að æfa okkur að synda. ...ég tók afdrifa- og árangursríka tiltekt núna í vikunni. Samt ekki heima hjá mér, né í garðinum...grrrrriddddssssjjjjj :) ...hluti af vinnunni ætlar að skella sér í fjallaskokkið, og þar á meðal ég. Það verður spennandi að sjá hvort að ég meika það yfir fjallið. Ég sé þetta fyrir mér....ég grenjandi og skríðandi á fjórum fótum upp fjallið á mörkum örvæntingar að þurfa að játa mig sigraða. En eins og það eigi eftir að gerast....HELL NO! ...í gær sló ég svo erfiðasta hluta garðsins hjá mér alveg sjálf, í fyrsta skipti síðan ég keypti höllina. Það er vegna þess að ég er dekurrófa hvað viðkemur garðslætti. En vá, hvað það er fínt workout að slá brekkurna wúhúhúhúúúú :) ...um helgina verður svo baggatýnsla, garðvinna, innitiltekt og vonandi að ég hunskist til að fara að baka. ~Ellan~ kl. 11:00 f.h. © :: ::MÉR...:: ....finnst þetta skyldulesning!!! ~Ellan~ kl. 8:35 f.h. © :: ::SÉRDEILIS...:: ...ágætis helgi er nú liðin. Gleymdist reyndar að slá. Einhverjir sjálfboðaliðar.....??? ...ég þurrkaði aðeins ryk, eftir hæfilegt morgunslór yfir mogganum og svona. ...rifjaði út í Græna á Massey Ferguson sem er ógissslega flottur og hæfir sprellunni sérdeilis aldeilis vel...hann er m.a.s. svona "blæjutraktor" griddddssssjjjjj :) ....skrapp aðeins út í sjoppu með félagsbúinu að kaupa ís. Fórum síðan niður í Miðfjörð, þá Fitjárdal, Víðidal og loks Vesturhópið. Ég hefði sko keypt mér meiri ís ef ég hefði vitað að bíltúrinn yrði svona langur :) ...Hafdís (og væntanlegur erfingi) kíkti og við þurftum svo mikið að tala að við gleymdum að fara á dansleikinn á Síróp. Gengur bara betur næst :) ...jámmm, og svo hengdi ég gardínu upp í herbergi sonarins...með BORVÉL...og mömmu á hliðarlínunni. Ég er sko óóóó sóóóó ánægð með mig. ~Ellan~ kl. 6:17 e.h. © :: ::HÓLÍ MAMMA...:: ....ég fór næstum að grenja í vinnunn í dag. Þvílíkur söngur haaaa...hafiði vitað annað eins ????? ~Ellan~ kl. 8:03 e.h. © :: ::10 ÁRA...:: ....stúdentafagnaðinum er þá lokið. Þetta var bara fjör :) Alveg merkilegt hvað við eldumst vel...reyndar erum við fegurri og unglegri ef eitthvað er :) ....við lentum á svo skemmtilegum gangi á eddunni að það hálfa væri nóg. Sökum þess hvað við litum unglega út voru við settar á gang með einhverjum ungum, sem; - drukku frá sér það litla vit sem þeir hafa í kollinum - ældu í 2 af 3 vöskum - "klæddu" einn hurðarhúninn í banana - bönkuðu non stop á herbergishurð eins af félögunum í svona hálftíma, rétt fyrir 6AM - reynt var að hringja í síma "nágrannans" í kjölfarið á bankinu ....það er því ekki laust við að ég hlakki til að skríða í ból. ....jággghhh, hitti vin minn um helgina sem er kominn út úr skápnum. Nú eigum við Bridget nánast allt sameiginlegt....nema reykingarnar :) ....og Ísland komið áfram á EM, bara svalt. Noregur jan 2008, já? ~Ellan~ kl. 9:47 e.h. © :: ::HOSTEL...:: ...í ljósi þess að einn ágætur vinur minn kallaði mig "KELLINGU" þar sem ég sýndi Hostel myndunum takmarkaðan áhuga...auglýsi ég hér með eftir félagsskap til að glápa á þessar mætu myndir, Dísa ertu geim? Þess skal jafnframt geta, að hann er sömuleiðis "KELLING", enda kann hann ekki að meta cognac. ...svo er pabbahelgi, og ég ákvað því að vinna til að verða 8 og er svo búin að sitja í BUBBLES síðan ég kom heim. Hugsa ég eigi hlýtt til Gunna Sveins, sem ákvað að halda keppni á vinnustaðnum og ég var 3ja neðsta. Þrátt fyrir að ég sé búin að hanga í þessum blessaða leik, meira en ég kýs að viðurkenna....er ég algjörlega ömurleg í honum. ...hey já. Við frænkur ákváðum að steikja parta og kleinur í gær. Ansi langt síðan við gerðum þetta síðast og var þetta meira svona tilraunastarfsemi. Ljóst er að þessi kleinuuppskrift verður ekki gerð aftur, en partarnir voru með ágætum. ....og ég er að hugsa um að fara að lúlla. Búin að vakna fyrir allar aldir nær alla daga vikunnar og það verður gott að sofa út í fyrramálið (8AM=sofa út, 9AM=slóðagangur). ~Ellan~ kl. 11:22 e.h. © :: ::HELGIN...:: ...var wúnderfúl. Þórdís átti afmæli á laugardaginn og bauð til veglegrar veislu, reyndar var þetta nær því að vera fermingarveisla, slíkar voru veitingarnar. Síðan kom Kristíanna norður til okkar með erfingjana sína og úr varð ein allsherjar gleði. Algjört æði æði :) ...í dag var svo vigtun, og sem betur fer eru tölurnar nú farnar að síga niður á við. Fjúff...veit ekki hvað ég hefði annars gert. ...nú er mér heldur betur farið að lítast á BC-ið. Sji....ti....og hó..... En það þýðir ekkert væl, bara bíta á jaxlinn og griddsa þetta :) ~Ellan~ kl. 7:58 e.h. © :: |