.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
miðvikudagur, maí 30, 2007

::LÍF MANNS....::

....getur verið fljótt að breytast. Á einni örskotsstund, fyrir um 4 vikum síðan, var ég búin að koma mér í keppni og byrjuð í BC. Það stóð nú svo sem til að fara í BC-ið, en þessi helv....keppni er nú e-ð að vefjast fyrir mér. Keppni þessi felst í keppni um hver verður fyrstur til að missa exxx mörg kíló. Gekk þetta svo vel í fyrstu mælingu hjá mér, að ég ÞYNGDIST um foxxxxx 1,6 kg. Nú þarf ég því að byrja á því að missa þessi 1,6kg og snúa mér svo að hinum er keppnin snýst um. Týpísk ég, TÝPÍSK. Alveg spurning um að skella sér bara í súkkulaðisúpuna, gæti virkað betur :)

....en það er svo sem ekki nema von að þessi 1,6kg hafi komið á sprelluna. Mér var nefnilega skellt í hringferð um landið þar sem boðið var upp á Thailenskan, KFC, Greifann og Subway svo fátt eitt sé nefnt. Og þar sem við erum að tala um Ísafjörð, Selfoss, Egilsstaði og allt þar á milli voru þetta margar óhollustumáltíðir. En eigi get ég kennt þessu flandri mínu lengur um þar sem hringferðinni er lokið og nú verður maður að taka á því, þrátt fyrir að sumar sé á næsta leiti (=ís, grill, gos algjört möst) urr urr. Þessi hringferð var annars með mestu ágætum....vestfirðirnir voru þó fegurstir (en þó ekki fegurri en tanginn góði), og er ég ekki frá því að ég hafi keyrt framhjá....já, best að þegja bara.

....en eins og mér leiðast svona keppnir sem eru fyrirfram tapaðar, þá eeeeelska ég BC. Núna er undirbúningsvikum lokið og ðí rííííl þeing hafið. Tvær svona "alvöru" æfingar voru núna tvo morgna í röð og það var helv...ljúft þegar þær voru BÚNAR. Samt skal viðurkennast að ég hlakka til að fá að sofa út í fyrramálið, þarf ekki að fara á fætur fyrr en upp úr hálfátta...fæ alveg að sofa 2klst lengur en síðustu tvo daga og það er vel.

~Ellan~ kl. 6:42 e.h. © ::

::


mánudagur, maí 28, 2007

::RRRRRROOOOOOSALEGASTA....::

....starfsmannapartý sem ég hef á ævi minni farið í var á föstudaginn. Jaaaaaaa, eða ætli mér sé ekki bara óhætt að segja svaðilegasta partý ever. Fór ég reyndar af stað, með fögur fyrirheit um að vera stillt, vera létt (drukkin) og fara heim að sofa eigi síðar en klukkan tólf. Þetta fór gjörsamlega úr böndunum....svo ekki sé meira sagt. Talaði ég inn á talhólf vinkonunnar í tvígang á heimleiðinni, og ég var svaðilegri en allt svaðilegt. Samt hevvví fyndið :)

....júmm svo var farið í eftirpartý, þar enduðu hlutirnir í hamagangi sem fór algjörlega framhjá mér af einhverjum orsökum. Ég ákvað að sofa á 12 enda svo roooooosalega langt heim. Smart ákvörðun, enda var þjónustan um morguninn miiiiiklu betri en á 5 stjörnu hóteli.

....ekki verður farið út í frekari útlistanir á kveldinu á opinberum vettvangi, nema ég skammaði fólk fyrir skort á fíbblagangi, var höst vegna skorts á sms-viðbrögðum annarra og hvessti brýrnar út af reykingum samstarfsfólks (fékk það nú reyndar margfalt borgað til baka).

....annars er helgin búin að vera löt hjá okkur hundinum (jebb, var helgarmamma), nema þegar ég sleppti honum lausum í morgun og ætlaði aldrei að ná honum inn aftur.

....p.s. úlpan er fundin, lagði sig undir rúminu á 12 :)

....pps...hvenær er næsta starfsmannapartý? :)

~Ellan~ kl. 6:08 e.h. © ::

::


föstudagur, maí 18, 2007

::PARTÝ...::

...er í höllinni as we speak.
...jebb, við börnin mín liggjum yfir Night at the Museum.
...ógó notó að flatmaga svona í sófanum, með sæng og gotterí :)

...Akureyrin var tekin með trompi í dag. Við Bogga þræddum allar helstu búllurnar og fylltum bílinn af góssi. Svo er Skoda svo asskoti lipur í akstri, held bara að ég kaupi mér svona :)

~Ellan~ kl. 10:26 e.h. © ::

::


miðvikudagur, maí 16, 2007

::LAUGARDAGSKVELDIÐ...::

....síðasta kíkti ég aðeins í heimsókn til Þórdísar og Steina. Í grófum dráttum;
  • var þar til að verða hálffimm (hvað varð um "aðeins að kíkja"?????)
  • fór þá í partý (X-D m.a.s.)
  • kom heim klukkan 06:01
  • kynferðislega kósý var þema kveldsins
  • skilaboð voru látin berast um að sumir væru kynferðislega kósý, með hraustlega upphandleggi og ossssa sætir
  • blessunarlega veit þessi "sumir" ekki hver ég er og hef ég ákveðið að ganga með plastpoka yfir höfðinu á mér þar til þetta fellur í gleymskunnar dá

....annars er lítt tíðinda nema ég er enn á faraldsfæti. Og jággghhhh spilaði á tónleikum í vikunni, réttara sagt gerði ég óspil og hreinan óskunda. Hef ég ákveðið að hlægja bara aðissu (nú kemur plastpokinn samt að góðum notum hehe).


~Ellan~ kl. 10:39 e.h. © ::

::


laugardagur, maí 05, 2007

::HAHA...::

...bara fyndið :)







~Ellan~ kl. 2:45 e.h. © ::

::