| ............................. |
|
SPRELLAN
|
|
::ÞAÐ VAR FJÖR...:: ...á söngvarakeppninni, ó já. Svo mikið fjör að ég er æst í meira....eigum við ekki bara að detta í það :)
Jæja, ég ætla að fara að hafa það huggó :) ~Ellan~ kl. 9:05 e.h. © :: ::AÐEINS...:: ![]() ...komin fram úr fjárheimildum! ~Ellan~ kl. 10:31 e.h. © :: ::JEBB...:: ....það er orðið opinbert. Ég er orðin þrítug....ekki að maður hafi fengið að gleyma því; - sjá hér - únd hér - and hér - og hér ....takk fyrir að gera þetta ljóst fyrir alþjóð :) ....svo er ég búin að boða til píupartýs. Lét nú einhverja orðsendingu fljóta út í tölvupósti í gærkveldi, svo kíkið á hann dömur mínar. Ef þið fenguð ekki línu, þá biðst ég forláts og mætiði bara. Húsið opnar um hálfseggs :) (ég er m.a.s. búin að kaupa pylsurnar njomm njomm). ....annars er ég bara sátt við að vera þrítug. Fyrir það fyrsta græddi ég fúlgur fjár, og svo græddi ég kampavín, grétuskál og ó svoooo fögur blóm. Og NB, ég fékk V.S.O.P. Elegance frá vinnunni...ætlaði að geyma hana fram að næsta vinnudjammi en núna langar mig bara að leyfa henni að koma með á söngvó :) Innslag dagsins átti samt tilvonandi eiginmaður góðvinkonu minnar á 14, sem lét Mr. Hemm lögg koma með blóm handa mér í vinnuna og svo fékk tilvonandi eiginkonan líka rós. Ég bilaðist úr hlátri. ~Ellan~ kl. 9:18 e.h. © :: ::SÍMTAL...:: ...fékk ég í gærkveldi frá Tallin. Þar var fjör og þar var gaman. Mest um vert þó að mér var tilkynnt að búið væri að finna handa mér tvo, já TVO, menn. Ég gæti valið. Þeir væru vel vaxnir, annar stærri, hinn yngri (en báðir vel vaxnir njomm njomm...og Íslendingar) o.s.frv. Meiri munurinn að þurfa ekkert að hafa fyrir þessu :) ...mikið hlakka ég til þegar þessari viku lýkur. Það er ársreikningsgerð, héraðsþing, stórafmæli og svo er HEIL vinnuvika obbb bobb bobb. Sem betur fer verður nú tjúttað um helgina íhaaaaa. ~Ellan~ kl. 10:40 e.h. © :: ::ÖLL HEIMSINS....:: ....blogg er ég búin að skoða síðustu mínúturnar. Sit hér í vinnunni og er að á vaktinni....en þar sem ég er aðallega búin að vera að skoða blogg, er þetta varla vinna *hint hint kæri húsvörður*. En grínlaust....þá er ég búin að finna alveg ótrúlegasta fólk í bloggheimum. ....annars er lítið að frétta. Þrátt fyrir að það mætti vera aðeins hlýrra, hef ég ekki eirð í mér að vera inni að hreyfa mig svo ég er búin að fara út á tveimur jafnstuttum daglega síðan á páskadag, nema með einni lítilli undantekningu sem var nauðsynleg vegna strengja. ....styttist óðum í að ég verði ári eldri. Alveg farin að sjá það út að það er kannski ekki svo slæmt, enda sagði eitt sinn einn ágætur maður að til þess að maður kæmist á fertugsaldurinn yrði maður að vera orðinn 31 hið minnsta. Ég ætla því að halda mig við þessa speki. Eins og það var fjarlæg hugmynd þá getur nú barasta meira en vel verið að það verði boðið til hófs vegna þessa merkilega tilefnis...fyrir píur :) ....júmm og svo hef ég komist að því að ég er voða veik fyrir tveimur ágætis bræðrum, og já Jude Law. Ég horfði reyndar á nýju Bond um daginn og skil næstum hana þarna hornösina, hvað heitir hún Sienna Miller, að hafa haldið fram hjá Law með Craig ALLA MALLA :) ....annars langar mig að djamma. Ég bíð í ofvæni eftir söngvarakeppninni (eða er þetta söngvakeppni?). Síðan er ég búin að ákveða ferð til Reykjavíkur til að tjútta....og síðast en ekki síst þá er ég búin að panta mér tíma í haircut. Eins og alþjóð veit hefur lífið að mestu snúist um vinnuna, og hlakka ég heil ósköp eftir þessum munaði. ....erfinginn skellti sér í haircut í dag, og hann er kominn með hanakamb blessaður. Ákvað að leyfa honum þetta og hann myndi þá ekki suða um þetta oftar :) ....júmm, svo höfum við stöllur ákveðið að skunda til Köben, eigi síðar en í ágúst í góða helgarferð. Wííííí, hvað ég hlakka til. Sitja úti og drekka rauðvín og bjór og horfa á þessa sætu dönsku...við erum á blússandi siglingu, ég er reyndar sú eina sem hef leyfi til að kíkja :) ....og svona að lokum, þá er búið að fíbbla mig. Af hverju kann ég ekki að segja nei? Meira um það síðar....ef ég lifi þetta af! ~Ellan~ kl. 7:03 e.h. © :: ::I LIKE YOU....:: ...just the way you are! Jebb...samkvæmt orðanna hljóðan er ég að horfa á Bridget. Hún er í imbanum og því sit ég hér í stássstofunni í stað þess að skúra gólf eða brjóta saman þvott. I lúúúúuv Bridget. Þvílík samsvörun á milli okkar vinkvennanna, nema kannski reykingar ásamt skorti á Mark Darcy og svo á ðí Sprell engan svona hommavin hahaha. ...síðustu dagar voru dásamlegir. Skaust í Bgnes og grísabúðina. Sló persónulegt met, ég veit ekki hvort að ég eða búðardaman tísti meira :) ...kíkti líka á leikjakvöldið, það var skemmtilegt. Alveg ótrúlega fyndið að sjá keppnisskapið brjótast fram í liðinu yfir stólaleikjum, keppni á milli kynjanna í ýmsum þrautum (btw stelpurnar unnu bújjjjaaaaa), limbói og ýmsu fleira :) ...gærdagurinn einkenndist af guðdómlegum mat, rauðvíni, brandy-i, brjálæðislegum hlátursköstum yfir gömlum myndum.....og JUDE LAW *slefslefsleeeeeeef* ...í dag er ég svo búin að gera lítið annað en glápa á fótbolta í íþróttamiðstöðinni, borða rauðmaga og vera einstaklega löt. ~Ellan~ kl. 6:47 e.h. © :: ::PÁSKAEGG...:: ...var mér fært í dag. ...frá Nóa Sir. ...númer SJÖ. NJOMMNJOMMNJOMMNJOMMnjommm......................... ~Ellan~ kl. 7:01 e.h. © :: |