.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
sunnudagur, mars 25, 2007

::ÓFORM...::

...er að plaga mig. Þegar mikið álag er í vinnunni þá lætur maður ræktina alltaf sitja á hakanum, sem er vitanlega algjörlega ólíðandi. Grrrrrrr, en ég er búin að setja ofan í tösku og skal í fyrramálið. Samt eru þetta oft þung skref þegar maður byrjar aftur eftir langt hlé og maður pirrar sig heil ósköp á því að vera ekki í eins góðu formi og maður var. En það þýðir ekkert væl, bara drífa sig aftur af stað :)

...nú taka við ávaxtatímar hjá mér og Þórdísi, veiveivei :). Betra væri samt ef maður gæti nú gengið að almennilegu grænmeti og ávöxtum í hverfisbúðinni...

...fór á árshátíð Grunnskólans á föstudaginn. Það var rosa gaman. Svo var svaka ball eftir skemmtiatriði og kökuát. Stuðið var slíkt...að mann langaði helst til að fara heim með börnin og gera þetta að almennilegu tjútti. Svei hvað maður er að verða skemmtanaþyrstur. Dönsuðum heil ósköp, og voru skref okkar vinkvenna (þessi ógifta) þung heim vegna verkja. Maður er vitanlega ekki vanur að vera á hælum hehe.

...svo er maður að heyra ýmislegt, hummmm.....

~Ellan~ kl. 10:11 e.h. © ::

::


fimmtudagur, mars 22, 2007

::Á HESTASÝNINGU...::

...fór fröken Sprella síðustu helgi og það var dásamlega gaman. Sumar frökenar höfðu óttalegar áhyggjur af því að leiði myndi sækja til sín, en svo var svo sannarlega ekki. Ætli ég verði ekki fastagestur í framtíðinni á slíkum samkundum og innan skamms alveg ógurlegur sérfræðingur í hestafræðum hehe.

...annars sækir að mér hor og slen, óþolandi. En gleðitíðindin eru þau að það styttist óðum í að vinnutörninni ljúki *fídddfíjúúúú*.

...úffff, nýtt pólitískt afl í TV. Ekki skemmtilegasta sjónvarpsefnið.

~Ellan~ kl. 7:00 e.h. © ::

::


sunnudagur, mars 18, 2007

::INGUNN ELSA...::

...skömm þér fyrir grikkinn sem þú gerðir mér í dag, grrrrrr!!!!!

~Ellan~ kl. 9:30 e.h. © ::

::


sunnudagur, mars 11, 2007

::ÞETTA VAR HELGIN...::

...sem sonurinn skoraði sína fyrstu körfu á stórmóti. Bojjj ó bojjj hvað ég varð stolt.

...sem ég skældi ógurlega í bíó, ásamt öðrum mæðrum og systrum. Myndin sem var sýnd fyrir krakkana var óþarflega sorgleg helvítið á henni.

...sem ég var kölluð ungamamma, enda með bílinn troðfullan af börnum/unglingum og dóti. Ég þarf að fara að kaupa mér jeppa...:)

...sem níu ára gutti tilkynnti mér að búið væri að semja um mig lag. Reyndar 3 lög, og höfundurinn væri áreiðanlega skotinn í mér. Bara fyndið :)

...sem ég fann görlpáwerið mitt aftur. Var þvílíkt gott að komast aðeins í burtu og kitla pinnann á þjóðvegi 1. Ég hlakka svoooooo til að fara í ræktina í fyrramálið, wíííííííí. Ég er farin að sakna heimspekilegra rökræðna við meistarann.

...svo er ég að hugsa um að reyna að finna mér tíma til að kíkja í höfuðborgina í píuferð :)

~Ellan~ kl. 9:32 e.h. © ::

::


fimmtudagur, mars 08, 2007

::VIKAN...::

...er búin að vera þreytt.

...vinna ó vinna, hvílík dásemd :)

...fékk fyndna spurningu í vikunni *smjaður blaður*

...við fjölskyldan (moi, ðí erfingi and ðí lil sys) erum að fara til Keflavíkur á morgun. Körfuboltamót aaaalla helgina, wíííííí. Það vill til að það eru oft doldið flottir þjálfarar þar á sveimi...marr má nú horfa í kringum sig þó ég nenni engu stússi ó já.

...ég ætlaði að pakka niður í kveld og fara í shower. Hvorugt hefur verið framkvæmt. Lenti óvart á smá kjaftatörn.

...svo skilst mér að það sé stefnt að teiti miðvikudag fyrir páska. Þá verði píum svalað í bíla og ferjaðar suður í stríðum straumum. Er það satt????

...jæja, best að fara að gjöra eitthvað.

...

~Ellan~ kl. 10:16 e.h. © ::

::


föstudagur, mars 02, 2007

::LATUR....::

...bloggari er ég veit ég vel. Mestum tíma hef ég eytt niður í vinnu undanfarið og erfinginn búin að vera í eldi hjá ömmu sinni og afa. En núna fer þetta vonandi að lagast :)

...ég hef endurheimt fyrra líf mitt aftur sem er vel. Eins gott að það fari að róast fyrst að KVH stjórafrúin tilvonandi er að flytja heim wííííííí :) Það verður sko nóg að gera, skál fyrir því.

...svo er ég fallin....í Grey´s sukk. Þórdís búin að smita mig og ég farin að taka forskot á sæluna obbb bobbb bobbb.

...við erfinginn vorum að koma heim af leiksýningu. Það var alveg æðislega gaman, frábærlega dásamlegt barasta. Takk fyrir mig :)

...núna er X-factor í imbanum. Voðalega vorkenni ég greyjunum sem eru að taka þátt í þessu.

...en ekki meira að sinni.

~Ellan~ kl. 10:20 e.h. © ::

::