.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
miðvikudagur, janúar 31, 2007

::3...::

...dagar í blót wííííííí. Þar sem ég svaf í foreldrahúsum varð ég vitni að búningaleit í gærkveldi. Reyndar heyrði bara hvað fór foreldranna á milli og tísti eins og lítil mús. Ég hlakka mjög til. Kristíanna mín ætlar að koma norður, og hefur "sleepover" verið rætt. Ég ætla að ganga í barndóm um helgina hehe. Svo kemur hún Dísa mín líka norður...og átlúkkið heldur óvenjulegt....samt ógissslega sæt eins og alltaf. Ínan kemur líka, Erlan og Hafdís (er það ekki alveg á hreinu). Þetta verður óóóóó svo mikið fjör.

...fyrsta útborgunin mín var í dag, fyrsta af vonandi mjööööög mörgum. Morgundagurinn verður líka skemmtilegur :) Ég er að hugsa um að drífa mig bara í mjólkurbúðina á morgun, ó já.

....Í dag fékk ég líka skemmtilegt "pólitískt" símtal.

....handboltaleikurinn í gær....ætla ekki að ræða hann neitt frekar. Ég fletti framhjá allri umræðu um hann í blöðum dagsins. Samt ánægð með frammistöðuna þeirra.

...jæja, ekki meira í bili :)

~Ellan~ kl. 10:17 e.h. © ::

::


laugardagur, janúar 27, 2007

::JIBBÍKEYYYYYY....::

....og ég verð prúð og stillt....þangað til ég gleymi því. Við erum komin í undanúrslit trallllalalalallaaaaaa. Og ég er að hugsa um að fara að leggja mig, eiginlega alveg búin á því :)

...og jamm. Var að setja inn myndir síðan á stóð 2006. Gjösssovell :)

~Ellan~ kl. 6:28 e.h. © ::

::




::ÍSLAND-SLÓVENÍA....::

...hafinn og ég ligg á bæn. Lofa að vera stillt og prúð bara ef.....7-4 núna...vonandi halda þeir þetta út.

~Ellan~ kl. 5:08 e.h. © ::

::


föstudagur, janúar 26, 2007

::ÚFF...::

...gleymdi alveg að segja frá því að ég lenti í smá "atviki" í höfuðborginni. Er að keyra í mestu makindum mínum nálægt höfuðstöðvum Skýrr. Mæti ég þá ekki bíl, og ég get svo svarið það að hjartað fór á billjón slög, ásamt rjóðum kinnum og viðeigandi titringi. Fór samt betur en á horfðist, annar á bílnum, en so much for the kúlheit rærærææææææ.

...jæja, og 8 dagar í blót. Er samt nokk róleg, en það æsast sjálfsagt leikar í næstu viku. Mesta áhyggjuefnið er fataskortur....sko þá þorrablótsdressið. Whuuut tú dú???? Veit í hvaða skóm ég á að fara, og hvað svo væl ó væl hehe.

...svo verð ég að sprikla á morgun. Ég er með plan...spá í að prufa að fara á brettið um leið og leikurinn er. Gengur kannski ekki....en sé til...kannski ok ef enginn annar verður líka að sprikla. Eitthvað verð ég líka niður í vinnu um helgina, jibbbíkey. Finnst það reyndar alveg í lagi, þar sem ég á von á góðum félagsskap.

...annars er ég voða ánægð í nýju vinnunni. Náttúrulega bara snillingar sem ég er að vinna með, ó já :). Kíkti aðeins í gömlu vinnuna áðan, var verið að kveðja gamla bossinn. Fékk þann heiður að kenna arftaka mínum að drekka cognac. Svipurinn á henni var samt álíka og þegar ég tók minn fyrsta snafs. Bojjj ó bojjjj, það var hræðilegt. En að drekka cognac í dag, er eins og að drekka vatn. Sprellan kallar ekki allt ömmu sína, oooo níííííí.

...well, best að finna sér eitthvað til dundurs.

~Ellan~ kl. 9:59 e.h. © ::

::


fimmtudagur, janúar 25, 2007

::KOMIN...::

...heim eftir ferð í höfuðborgina. Þar sem "mítíngum" sem ég átti að fara á var sífellt frestað, var ég "tilneydd" að drepa tímann í búðum. T.d. keypti ég mér gallabuxur og peysu...sem ég mátaði aldrei þessu vant. Ýmislegt fleira keypti ég án þess að máta, hehe.

...keypti líka skó á erfingjann, sem hann ákvað að sofa í!

...það er svoooo ekki sniðugt að vera á akstri og hlusta á landsleik á sama tíma. Gengur bara betur næst. Ekki öll von úti enn, enda Íslendingar vanir að fara fjallabaksleið á svona stórmótum :). Ég er líka ennþá svo ánægð með "strákana okkar" eftir Frakka leikinn, að ég fyrirgef þeim allt, eða svona næstum allavega hehe.

~Ellan~ kl. 10:36 e.h. © ::

::


föstudagur, janúar 19, 2007

::FÖSTUDAGSKVELD::

...og komin í notalegu buxurnar og notalegu inniskónna og á leiðinni að horfa á síðasta þátt af Grey´s Anatomy. Jamm, hann var á mánudagskvöld og ég er fyrst að komast í að horfa á hann núna. Obbb bobb bobbb.

...peysan er loksins komin í hús. Ekki til rauð *grrrrrr*, svo ég fékk bláa. Sem er svo sem betra af því að þá eigum við Þórdís alveg eins peysur hehe.

...jamm, svo er ég á bullandi siglingu í tónfræðinni. Dunda mér við þetta líkt og ég fái greitt fyrir þetta.

...svo eru bara 15 dagar í blótið. Blótið ó blótið, hlakka ég til eða hvað.

...jæja McSteamy bíður njomm njomm :)

~Ellan~ kl. 9:07 e.h. © ::

::


sunnudagur, janúar 14, 2007

::SUNDLAUGIN...::

...var fyrsti viðkomustaðurinn í morgun. Ó já, mig greip stundarbrjálæði og skellti mér í sund. Aðallega af því að ég ætlaði í pottinn vegna einhvers seiðings í bakinu, en fór beint í laugina. Synti alveg rúmlega tvo kílómetra, úúúúújeeeeee. Veit ekki hvenær ég fór eiginlega síðast og synti, og ekki laust við að ég sé hálfaum í öxlunum eitthvað. En fokkk itt, þetta var dásamlegt :)

...að þessu loknu kom ég heim og skellti á mig smá brúnku. Svo var það píanóið....sat við það í tæpar 3 klst (í gær í rúmar 3 klst). Svo er ég búin að vera að dunda mig að taka niður jólaseríurnar, það var annað hvort það eða láta þetta hanga upp þangað til næstu jól hehe.

...svo mér finnst ég búin að vera ágætlega dugleg í dag. Reyndar eftir að taka til í eldhúsinu, en dagurinn er ekki ennþá liðinn ehhmmmm. Svo er það saumó (eða kjaftó hehe) í kveld, ég spái fjöri :)

...hey, ég kom í fréttunum í gær. Ég er frææææææggggg, ég er að segja ykkur það. Fékk reyndar ekki einkaviðtal eins og sumir (bossinn og félagsmálaráðherrann), en kannski næst hehe.

~Ellan~ kl. 6:42 e.h. © ::

::


föstudagur, janúar 12, 2007

::Í RÆKTINA....::

....fór ég alla morgna þessarar viku FYRIR vinnu. Í heiðarlegri viðleitni minni til að komast aftur í gömlu buxurnar mínar áður en ég kaupi mér nýjar. Í ljósi þessa afreks montaði ég mig vitanlega við meistarann, sem sagði "var ekki einmitt kominn tími til að þú færir að mæta alla morgna!!!". Spaklega mælt hjá herra meistara *hneiggggj* hehe.

....annars var ég í hófi áðan. Held að ég hafi alveg drukkið 2 hvítvínsglös og borðaði fullt af veitingum frá Gauksmýri. Njomm njomm. Reyndar er ég með góðgæti í ofninum svona fyrir háttinn :). Jamm og glápi á Superman Returns inn á milli.

....svo er það bara ræs árla morguns. Pianoinu ekkert verið sinnt síðan á mánudaginn. Ekki gott. Skemmtilegt þetta piano nám, er að fara að fá reikning upp á 21 þúsund og eitthvað fyrir námsbókum, reyndar líka TÓNFRÆÐI gögn frá A til Ö. Ojjjjjjjj, en maður verður víst að rifja þetta upp, en TUTTUGUOGEITTHVAÐÞÚSUND skál fyrir því *hikkk*.

...kannski að maður taki líka niður jólaskrautið um helgina. Spurning samt hvort að það taki því, ég meina það koma fljótlega aftur jól :)

~Ellan~ kl. 8:51 e.h. © ::

::


sunnudagur, janúar 07, 2007

::JÁ...::

....allt er svo dásamlegt eitthvað.

....maður er náttúrulega ótrúlega vel múraður eftir jólin, svo að ég ákvað að halda upp á það og panta mér eitt stykki peysu, wííííííííí :)

....helgin var bara ein alls herjar letihelgi, seint að sofa og seint á fætur. Mí lækí lækí.

....annars er ég orðin leið á svona spurningum erfingjans "mamma, ef þessi yrði góður við okkur, værir þú þá til í að vera með honum?". Hann fór endanlega með mig um helgina þegar hann spurði hvort að ég væri til í að vera með Krumma hans Bóóó Halldórs hehe.

....svo buuuuuuuurstaði Arsenal Liverpool um helgina, 3-1 *spaaaaank* :)

....og já, undirbúningur fyrir HM í fullum gangi hjá ísl.handboltalandsliðinu. Fer þar "fremstur" í flokki drengurinn sem mér fannst fegurstur allra nær öll menntaskólaárin. Skil það reyndar mínus í dag hehe.

...meira síðar :)

~Ellan~ kl. 9:36 e.h. © ::

::


föstudagur, janúar 05, 2007

::JÆJA...::

...þá er fyrsta vinnuvika nýs árs liðin. Skrítið að vera byrjuð í nýrri vinnu, en samt mjög fínt. Nú ligg ég í lögum og reglugerðum, og merkilega mikið fun :)

...bojj ó bojjj hvað ég verð að fara í diet *gubb*. Ég má teljast heppin að rassinn á mér pompi ekki út úr buxunum á óheppilegri stundu, eða tölurna af þeim ráðist ekki á saklausa borgara af minnsta tilefni.

...þar sem ég ætla að vera dugleg í að hreyfa mig á nýju ári (já, og verða ógisslega rík, ógisslega grönn, óggissslega fit, ógggissslega bara allt hehe), fór ég í vikunni og lyfti heilan helling, með viðeigandi strengjum njomm njomm.

...en þrátt fyrir óhóflega offitu, er ég bara spök sko :)

~Ellan~ kl. 9:50 e.h. © ::

::