.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
sunnudagur, desember 31, 2006

::GAMLÁRSDAGUR....::

...er víst upprunninn. Það er m.a.s. búið að kaupa "fragettur" fyrir Melaveg seggs....hleypur kostnaðurinn á tugum þúsunda....grínlaust. Litli Jón verður eins og lítill krakki í sælgætisbúð er hann kemur inn í Káraborg á þessum árstíma. Réttari líking væri reyndar týpísk íslensk kvennsa í H&M (erlendis), aha. Sonurinn var litlu skárri, þó að hann væri nú búinn að fara með karli föður sínum að versla slíkt hið sama. Það var gott að við fórum á Cruisernum til að ferja þetta heim á leið....og ef þið viljið fragettufjör, mætið þá á Melaveginn. Við rústum keppinautunum, þ.e. ef einhver leggur í okkur múahahahahahaaaaaaa.

....júmm og svo fórum við Þórdís á barinn í gær. Það var fyndið....lenti hún t.d. í því að gamlir sjénsar rifjuðu upp viðreynslur sínar við hana á unglingsárum og ég veit ekki hvað og hvað. Ég lenti hins vegar í því að einn sagðist ekki flengja GIFTAR konur og átti þar með við mig. Hann veit greinilega eitthvað sem mér er ekki kunnugt um!

....svo veit ég hreint ekki hvað ég er búin að vera að gera í dag. Reyndar fórum við Ína í laaaangan göngutúr, og það var lúvlí. Fór aðeins með húsverðinum að sjæna bíllinn til. Kíkti í Græna. Fór í búð. Fór í búð. Keypti fragettur. Fór í búð. Straujaði. Skúraði oggopínkupons. Bjargaði þvottinum inn af snúrunni. Jaaaaa, ég hef greinilega komið ýmsu í verk :)

....góða nótt :)

~Ellan~ kl. 1:16 f.h. © ::

::


föstudagur, desember 29, 2006

::GÓÐVERK...::

....gerði ég í dag. Fór með ylvolga skúffuköku og ískalda mjólk í pakkhúsið handa vinnandi mönnum.

....síðan er húsvörðurinn að gera góðverk fyrir mig. Tók bílinn og ætlar að sjæna hann til. Takk ´ssssskan :)

....nú er ég á leið til Þórdísar og Unnsteins í bjór. Njomm njomm, ég er í stuði og langar m.a.s. á barinn. Ætli það sé ekki bara góðverk fyrir, jaaaaaa sálina...eða eitthvað :)

.... ta ta.

~Ellan~ kl. 8:45 e.h. © ::

::


fimmtudagur, desember 28, 2006

::BLESSUÐ...::

...jólin voru dásamleg. Ég fékk fuuuuullt af pökkum. Ég fékk:

- harða pakka
- mjúka pakka
- segggsí pakka
- notó pakka
- partí pakka
- gólden pakka

...og allir ó svooooo dásamlega fagrir. 10000 þakkir fyrir mig ´sssskurnar.

....annars er ég búin að njóta þess að vera í fríi. Fara seint að sofa, vakna seint (við erum að tala um að þegar klukkan hringdi kl 09:30 í morgun var ég þvílíkt morgunfúl), hey já ég er m.a.s. búin að fara í ræktina...alveg í gær og í dag hehe :)

...hey og já....það getur verið að ég fái mér öllara annað kveld....erfinginn ætlar a.m.k. að gista hjá ömmunni og afanum á morgun...kannski að maður kíki bara aðeins á barinn wúhúhúhúúúúúú.

...jæja, sófinn og One Tree Hill bíður njomm njomm :)

~Ellan~ kl. 11:30 e.h. © ::

::


laugardagur, desember 23, 2006

::JÓLIN...::

.....ó jólin koma brátt. Eða svona eftir c.a. 9 mín. Hér sit ég einmitt að sjóða hangikjét og egg, alvöru húsmóðir eða þannig hehe.

.....en í tilefni jólanna er vani að taka ærlega til hendinni. Var mér því ekki til setunnar boðið og tók aðeins til í nótunum mínum. Henti sumum, og henti öðrum í bunka á minna áberandi stað. Nema hvað, fann ég ekki nótur að einhverju jólalagi sem ég hafði spilað undir með Skúla Hún á sínum tíma. Ekki að ég muni nokkurn skapaðan hlut eftir þessu samspili...en eftir öðru samspili með þessum mæta manni man ég....líkt og það hefði gerst í gær.

....haldiði ekki að dag einn hafi stjórnendum Tónlistarskóla V-Hún (eins og hann var og hét) dottið í hug að láta mig og Húninn spila saman lagið ONLY LOVE, yuuuuuukkkkk. Að detta þetta í hug, að láta börn á viðkvæmum aldri spila þetta tregablandna lag. Við vorum svo sem góð og gegn og létum þetta yfir okkur ganga.....en í minningunni man ég það helst að á æfingum fyrir tónleika stóð einn gutti fyrir framan svið í Félagsheimilinu og stríddi mér hvað mest hann gat á þessu. Bojjj ó bojjj hvað ég var reið við viðkomandi.

....jæja, þá er ég búin að ausa úr skálum reiði minnar yfir þessu voðaverki og er að hugsa um að fara að strauja þvott, jaaaaaa eða kíkja á TV :)

~Ellan~ kl. 11:51 e.h. © ::

::




::JÚMM....::

...þau eru víst að koma, blessuð jólin. Jólaskapið er týnt, sömuleiðis jólasnjórinn. En hún Ína mín er komin norður og hún lofaði jólaskapinu. Í stað þess að vakna árla morguns og gera það sem ég þarf að gera, sef ég til að ganga 11 á morgnana og fólk segir bara að þetta sé uppsöfnuð þreyta. Mín skýring er bara pjúra leti og eymingjaskapur. Hvað um það, svona er staðan;

- búin að skrifa öll jólakortin, jibbíkey.
- búin að pakka inn öllum gjöfum nema einni.
- forstofan, eldhúsið og baðið er orðið eins og hjá venjulegu fólki.
- stofan er "afþurrkuð".
- búin að græða eitt stykki eldavél, hún er reyndar ótengd frammi í forstofu og sú gamla í bílskúrnum hjá ma&pa (jammm, engin eldavél tengd).
- ég á sumsé eftir smá skúringarvinnu, únd ef ég næ ekki að klára öll herbergi, þá bara....þá bara loka ég múahahahahahahaaaaa.

Svona er plan morgundagsins;

- vakna um 8 (hopefully)
- skúra
- skella þessu græna upp
- kannski baka oggopínkupons
- sjóða hangikjétið
- fara í skötuna upp á Gauk
- leggjast svo með fæturnar upp í loft, og glápa á eitthvað dásamlega tilgangslaust í TV :)

Þangað til næst.....

~Ellan~ kl. 12:06 f.h. © ::

::


laugardagur, desember 16, 2006

::9 DAGAR...::

....til jóla, eða reyndar 8 dagar (ég þarf að fara að sofa hehe), og staðreyndir eru þessar:

- ég byrjaði að pakka inn jólagjöfum í kvöld, fídddfíjúúúú.
- ég er ekki búin að skrifa eitt jólakort.
- ég er tussuleg eftir miklar annir undanfarið.
- ég fór í ræktina 5 daga í röð, fyrir vinnu, svo ég þyrfti ekki að borga meistaranum kippu af bjór.
- ég er í öngvum mínum yfir ástandi hallarinnar.
- ég er komin í jólafrí, jólafríjólafríjólafríJÓLAFRÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ :)
- ég er elskuð af ótrúlegasta fólki.
- ég er að fara til Reykjavíkur eigi síðar en 8 AM í fyrramálið. Hvurn andsk.....er ég að gera á fótum, jáááá jólagjafainnpökkun.
- ég elska að Þórdís mín og fylgifiskar séu fluttir norður.
- ég hlakka til að borða skötu, weird haaaa....
- ég þarf að finna jólaskapið, sem hefur ekki látið sjá sig það sem af er árinu.

...jæja, ég er farin í bólið.

~Ellan~ kl. 1:08 f.h. © ::

::


föstudagur, desember 15, 2006

::SÍÐASTI....::

....dagurinn í Forsvari er í dag. Það voru blendnar tilfinningar sem fóru um mig í morgun þegar ég labbaði upp stigann. Er nú pínu með fyrir hjartanu núna og í svolitlu spennufalli.

....en það voru veglegar veigar hér í kaffinu og ég fékk æðislega kveðjugjöf.

....á sama tíma hlakka ég til að byrja í nýju vinnunni ó já :)

....jæja, þarf að klára smá áður en ég geng út í jólafrí. Byrja ekki í nýju vinnunni fyrr en 2. jan. Ágætt að fá smá frí áður en ég byrja þar. Er einhvern veginn hálf útbrunnin!

~Ellan~ kl. 4:22 e.h. © ::

::


miðvikudagur, desember 06, 2006

::ERFINGINN...::

....hellti niður í gærmorgun og kom móðirin að honum í óða önn við að þurrka óskundann upp eftir sig. Þurfti heil ósköpin af eldhúspappír til að þurrka pollinn upp og að lokum var pappírinn orðinn eins og vænn bolti enda búið að þjappa honum vel saman. Spyr þessi elska svo að lokum hvort að hann eigi að henda þessu í ruslið eða setja í klósettið. "Í klósettið" svarar móðirin (sem var á brókum og haldara enda nýkomin úr sturtu) og finnur skyndilega kalda vatnsgusu dynja á bakinu. Móðirin hefði nú getað sagt sjálfri sér að minni líkur væru á að pappírsboltinn yrði látinn falla varlega í klósettið......

~Ellan~ kl. 9:19 e.h. © ::

::