| ............................. |
|
SPRELLAN
|
|
::JÓLIN...:: ...nálgast, enda ku vera 8 vikur í þessa dásemd. ...ég er ekki búin að kaupa eina jólagjöf. ...það sem verra er að ég er ekki einu sinni búin að gera skipulag. ...samt er ég búin að kaupa 6 rúllur af jólapappír, og gjafabönd. ...hvernig er eiginlega forgangsröðunin hjá fröken Sprell??? ...annars hlakka ég óóóó svo mikið til jólanna. Langar að kaupa mér eitthvað jóla jóla.....vonandi kemst ég bara í jólafrí í kringum 15. des, og svo nýja vinnan 2. janúar 2007. Langar líka að fara að baka smákökur, þó svo að mér finnist þær ekkert spes, og já laufabrauðið verður tilbúið eigi síðar en 23. nóv því foreldrarnir fara út 24. nóv, til Flórída USA. Mest hlakka ég samt til að fá að hafa litlu sys í tvær vikur. Henni fylgja oft líka einhverjir gestir, svo það verður pottþétt kátt í höllinni :) ~Ellan~ kl. 6:11 e.h. © :: ::ÞAÐ ER....:: ....kominn föstudagur og ég fer heim í sveitina í dag veiveivei. ...samt er tíminn fyrir sunnan búinn að vera fínn. Við Kolla, Gunni og Rósa höfum þrætt alla helstu veitingastaðina í hádeginu, eða sko Núðluhúsið og Deviots, til skiptis. Upp á síðkastið hafa "boðflennur" slegist í hópinn, enda erum við svo skemmtileg :) Ínan fékk að koma með í gær, en þá brugðum við út af vananum og skelltum okkur á Pítuna, djörf ó já..... Í dag kom Ragginn með á Núðluhúsið, reyndar er hann ekki beint boðflenna bara æstur í að vera með okkur skemmtilega fólkinu. ...svo er ég fegin sem aldrei fyrr að eiga ekki kall. Búin að snappa aðeins í búðum, rærærææææææ.
....fjúffff, að það fer enginn kall yfir yfirlitið og skammar mig fyrir eyðsluna. ....og svo fórum við á Mýrina. Bojjjj ó bojjjj......mikið "ÓGEÐSLEGA" er þessi mynd góð. Svei, segi ég bara. ....jæja, ég er hætt. ~Ellan~ kl. 1:49 e.h. © :: ::HÖFUÐBORGARLÍFIÐ...:: ...er með ágætum. ...er að skríða upp úr flensu, en nú er nóg komið. Búin að vera í þessu í nær 2 vikur. ...plan næstu daga er eftirfarandi:
...meira síðar. ~Ellan~ kl. 8:14 f.h. © :: ::FRÖKEN GEÐSTIRÐ...:: ....hefur verið viðurnefni mitt síðustu daga. Ekki skemmtilegt, en því er bara ekki að neita. Hverju er um að kenna.....? Jaaaaa, kannski: - hreyfingarleysi - flensufjanda - svefnleysi 2 nætur í röð - væli í karlmönnum - kvíða yfir að skilja við barnið ....kannski, og ef til vill einhverju fleiru. ...ég verð hins vegar að bíta á jaxlinn. Erfinginn farinn til föður síns þar sem hann verður í góðu yfirlæti á meðan móðirin verður í höfuðborginni. Í kveld tekur við að pakka niður fötum fyrir næstu 10 daga bojjjjóbojjjjj, en gleðitíðindin eru þau að ég er búin að strauja búúújaaaaa. Svo leggjum við íþróttaálfurinn af stað fyrir allar aldir í fyrramálið. Ðí kapítal sitttí, hííír vííí kommm. Í höfuðborginni ætla ég að.... - eyða peningum í einhvern algjöran óþarfa. - kannski skoða túlvu. - eiga gæðatíma með vinkonunum. - fara á Mýrina (Björn Hlynur njomm njomm). - og vitanlega, kíkja í IKEA hehe. ...jæja, best að fara að gera eitthvað. ~Ellan~ kl. 6:13 e.h. © :: ::VILJIÐI.....:: ...spá!!!!! Mér finnst þetta vart sniðugt. Hélt að mér myndi duga eitt á svona 300þús, en svo er víst ekki. 600+ nauðsynlegt. Frjáls fjárframlög eru vel þegin, og svo á ég líka stórafmæli á næsta ári :) ~Ellan~ kl. 12:23 e.h. © :: ::MIKIÐ....:: ...ógisslega ógisslega ÓGISSLEGA var gaman á ballinu í gær. Og svo er ég svona líka hress í dag, nema hvað ég finn núna að ég er pínu sybbin hehe. ...ég hafði ekki tíma til að klára missionið mitt fyrir gærkveldið, þrátt fyrir að Hjöddan minnti mig ítrekað á það hehe. Ég geri það bara næst :) ...öðru mission sem ég og húsvörðurinn höfum ákveðið að fara í, klúðraði ég. En það mission er til langs tíma, svo fokkk itt :) ...og jamm, ég verð fyrir sunnan 16.- 27. okt í starfsþjálfun. Það verður lúvlí. Lunch með "viðhaldinu", kaffihús, búðarráp og bara allur pakkinn :) ...jæja, ég ætla að fara að spisa kökur njomm njomm, og svo ætla ég að fara að æfa mig á pianoið. Svo er Örninn í kvöld wúhúhúhúhúhúúúúú. ~Ellan~ kl. 3:26 e.h. © :: ::ÞAÐ ER....:: ...helgarfrí á morgun. Svei hvað ég ætla að hafa það notalegt, úíúíúíííííííí. ...svo er búið að bjóða í "fyrirstóðréttaball" partý. Eymingja gestgjafarnir, því að ég er búin að bjóða fullt af fólki hehehehe. ....og í ljósi þess að það er verður ekki partý hjá sprellunni fyrir ball, ætla ég hér með að bjóða í þynnkupartý á sun. ...og svona að lokum. Gurry og Offsinn. Innilega til hamingju með stúlkuna :) ~Ellan~ kl. 4:13 e.h. © :: ::NÚ....:: ...er þessari blessuðu vinnutörn lokið. Hætt að gista hjá ma&pa og farin að eiga mér eitthvað líf að nýju. Yfir því ber að gleðjast, og geri ég það hér með wúhúhúhúhúúúúúúú. Er alveg heavy sybbin eftir að hafa t.d. ekki komið til míns heima fyrr en 2 sl.nótt af því að ég var að vinna ojojojojojojjjjjjj. ...mikið djö....verður dásamlegt að fara í ræktina í fyrramálið. Múgurinn hlýtur að gleðjast ógurlega þegar ég fer að venja komur mínar þangað að nýju, og já það er ekki laust við að ég sé farin að sakna þess að rökræða heimsmálin við sjúkraþjálfarann. ...jamm, og svo styttist í að maður hætti bara í Forsvari og fari í nýju vinnuna. Ekki að það sé orðið ljóst hvenær ég losna hjá Forsvari, en það styttist allavega :). Sumir eru ekki alveg nógu ánægðir með þessa ákvörðun mína og sagði minn kæri barnsfaðir við einn í morgun sem var að ræða þetta við mig: "hún verður bara kölluð Júdas" hehe ...og svo eru hva, 5 dagar í stóðréttaballið, sunnudagurinn verður frátekinn fyrir leti :) ~Ellan~ kl. 4:11 e.h. © :: |