| ............................. |
|
SPRELLAN
|
|
::LUND MÍN....:: ....er bein endurspeglun þess að:
....hið góða er:
....jæja, þangað til næst :) ~Ellan~ kl. 8:46 e.h. © :: ::ER....:: ![]() ...þetta eðlilega fallegur maður? Jaaaaaa, maður spyr sig! ~Ellan~ kl. 8:35 f.h. © :: ::NÝJA VINNAN...:: ....er sem sagt hjá Fæðingarorlofssjóði. Búið að ráða frábært fólk og þetta verður pottþétt skemmtilegasti vinnustaðurinn í Húnaþingi vestra jaaaaaa og áreiðanlega á öllu landinu, haaaaaa er haggi :). Ég á von á því að fjöldi fæðinga hér á Fróni muni stóraukast enda fólki í mun að eiga samskipti við okkur skemmtilega fólkið. Svo fjölgið ykkur allt hvað þið getið lömbin mín, enda mun ég borga ykkur fyrir það hehe. ...samt skrítið að fara frá Forsvari. ....en meira síðar, ég er venju samkvæmt að vinna, enda laugardagur, og þegar allir aðrir eiga frí, er ég að vinna hehe. Ætla samt að láta það eftir mér að eyða hádeginu í ræktinni, enda ekki hreyft mig síðan á mán.morgun. Spennan þvílík út af nýju vinnunni og svo er bara heavy mikið að gera í vinnunni. ....þangað til næst. ~Ellan~ kl. 11:56 f.h. © :: ::UPPSÖGN...:: ....jamm, ég fylgdi nýjustu tísku í dag og sagði upp vinnunni (ekki viðhaldinu, tími því sko ekki "hint hint"). ....more díteilsss leiter :) ~Ellan~ kl. 5:35 e.h. © :: ::ÁRÁSIR...:: ....úr öllum áttum dynja á mér og mér skipað að blogga. En að ég viti um hvað ég eigi að blogga það er nú svo annað mál. Þessi vika er búin að vera helst til undarleg af ýmsum ástæðum sem ég kýs minna að tjá mig um. Við erfinginn erum búin að vera í mat hjá móður kærri svo dögum skiptir, og sjálfsagt einnig í kveld, í ljósi þessa að ég ætla að vinna frameftir í sköttum landans. Ég held að Ínan hafi bara rétt fyrir sér að ég sé vinnualki. En að þessari törn liðinni, förum við Kristíanna til heitu landanna, nýjasta dillan er Kanarí. Hiti, leti og óhóflegt sælgætisát...mí lækí lækí :) ....annars er lítið að frétta. Hey jú, ég ákvað að boða mig í göngur haustið 2007 með Sveinnssyni og Gumma Jóhhh. Þá kom í íþróttaálfinum "af hverju kemurðu ekki núna?". Ástæðan er einföld, ég hef ekki tíma og svo á ég ekki almennilegt skótau til þess arna. ....þá sagði Þórdís "af hverju kemurðu ekki með mér á hesti". Ég ætla nú að lifa göngurnar af, og ekki hírast lafhrædd í brúnum fjallgarðsins! ....að lokum sagði Aníta "þú bara kemur með mér og Bobbu". Úffff, á þessum tímapunkti var ég orðin uppiskroppa með afsakanir, en minnir að ég hafi borið vinnu á lau.morgun fyrir mig. ....hins vegar ætla ég í réttir um helgina, og hlakkar erfingjann mikið til, og ekki laust við að ég sé full tilhlökkunar líka. Sérstakt tilhlökkunarefni er þó að njóta veitinga á ættaróðali húsvarðarins, en móðir hans skaffar mikið góðgæti til átu, njomm njomm :) ....jæja, best að fara að vinna. Ég þarf víst að gera það stundum, en bara stundum hehe. ~Ellan~ kl. 12:56 e.h. © :: ::JA MAN...:: ....búin að ná að mæta alla morgna þessarar viku í ræktina fyrir vinnu. Mér finnst ég eiga skilið verðlaun fyrir vikið :) ....mætti reyndar ekki í vinnu fyrr en 08:45 í morgun vegna þess að við erfinginn tókum því rólega. Kvinnurnar í vinnunni voru undrandi á þessari hegðan minni hehe. ...jæja, best að fara að vinna! ~Ellan~ kl. 9:17 f.h. © :: ::GAMLI...:: ...ísskápurinn minn hefur dáið drottni sínum. ...nýr hefur því verið pantaður. ...samt á ég eftir að sakna þessa gamla, enda einkar lunkinn við að hrella kærasta múahahahaaa. ....meira síðar :) ~Ellan~ kl. 1:01 e.h. © :: ::DUGLEGA...:: ....sprellan fór á barinn í gær :) ....sprellan er líka á leiðinni á ball næstu helgi. Lofaði Dísu því :) ....sprellan er líka á leiðinni á djamm á Bifröst :) ....sprellan er mætt í vinnuna, fyrir hádegi á laugardegi :) ~Ellan~ kl. 11:01 f.h. © :: |