.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
mánudagur, ágúst 28, 2006

::SVONA...::



...gekk mér nú vel í spilum á laugardaginn. Miðað við frammistöðuna hefði mátt ætla að í bóli mínu biði e-r algjör goggi. Svo gott var það nú ekki (kannski af því að það var læst hehe).

...það sem af er liðið af degi þessum hef ég þó orðið vitni af atviki sem ætti að láta sjálfa "Chippendales" eða hvað þeir heita skammast sín. Slík voru tilþrifin...

...annars er kominn matur, og komin þessi líka dýrindis safapressa á kaffistofuna :)




~Ellan~ kl. 12:06 e.h. © ::

::


föstudagur, ágúst 25, 2006

::HVERNIG....::

...er annað hægt en að elska blogger.com. Maður er búinn að sitja heillengi að skrifa um heimsmálin, þegar blobbbbsssss....allt dettur út. Dásamlegt! Það vill til að það er föstudagur, annars yrði maður nú fojjjjj.

Sumsé, já, föstudagur. Dásamlegt, DÁSAMLEGT alveg hreint.

Plön helgarinnar eru hér um bil svona:

- föstudagur, eða það sem er eftir af honum. Slappa af og hafa það ógó notó (ég er nb komin í náttfötin, kl. 18:11 hehe), prjóna og glápa á imbann. Ég á t.d. eftir að horfa á lokaþátt fútbollers vævvvs úíúíúííííí.
- laugardagur. Vinna, nema veðurspáin rætist ekki þá verður það pallurinn hjá ma&pa. Um kveldið verður skundað út í sveit með Dísunni, að spila við frú Sigríði. Kellingin er m.a.s. búin að redda kökunni njomm njomm.
- sunnudagur. Vinna, veiveivei, nema maður svíkist um, hvernig væri það nú bara hehe.

Og hvað athugasemdir Mr. Zakk varðar. Þá fór ég ekki í 10 km þetta árið af því að ég var að hvíla mig fyrir hlaupið að ári. Ég fór nú reyndar í Latabæjarmaraþonið en sjálfsagt svitnaði ég álíka og ég hefði farið 10km. Djöss troðningur og meira ruglið. En innilega til ham dear Zakk með 10km þína, ekki einu sinni rauður í framan eftir þetta....

Jæja, bleee....

~Ellan~ kl. 6:15 e.h. © ::

::


fimmtudagur, ágúst 24, 2006

::BLÓÐ, SVITI....::

....og strengir plaga mig í dag. Skundaði í gærmorgun sem og í morgun í gymið. Ippinn búinn að fá upplyftingu með fullt af nýjum lögum og ég í stööööði. Joggaði rólega, en alveg nóg til þess að svitna heavy mikið, og djö....elska ég það. Svo eru komin ný tæki, og mér semur bara ekki við eitt þeirra....kannski er ég ekki nógu sterk til að ráða við það, en ég bara SKAL og ekkert væl.

...spáið samt í einu. Í gamla daga þegar ég var ehmmmm, yngri en ég er í dag og fór merkurhringinn sem ég skokkaði svona af og til (jaaaa 5x á ári) var outfittið svona.....

- íþr.buxur (kr. 3.000)
- bolur (kr.0 enda e-r gefins bolir)
- toppur (kr. 3.000)
- vasadisko (kr. 3.000)
- íþr.skór (kr. 2.800).

....í dag fer ég svona í ræktina:

- púlsmælir (kr. 6.000)
- toppur (kr. 3.000 (og já, keyptann sjálf))
- íþr.buxur (kr. 5.000, PUMA keyptar í Köben)
- ipod (kr. 21.000 held ég, sko gefins fjúffff)
- bolur, bleikur offf korsss, (kr. 3.000)
- íþr.skór (kr. 15.000)

...sem þýðir að outfittið sem ég notast við í ræktinni í dag, kostar svona 53 þús, í stað 11.800 í den. Mér er samt nokk sama, bekösss æ lúúúv it all.

- Ég essssska ippann minn enda tapar maður geðheilsunni ef hann er ekki meðferðis. Mjússsík does the magic :)
- Íþróttaskórnir eru dásamlegir og forða mér frá undarlegum fótakvillum.
- Og púlsmælinn hefði ég nú þurft að hafa meðferðis í gamla daga, enda buguð af blóðbragði og vanlíðan við heimkomu er tengist víst því að púlsinn er langt yfir því sem eðlilegt getur talist við áreynslu. Mesta furða að ég hafi ekki bara fengið hjartaáfall á unga aldri!

Jæja, ekki meira í dag :)

~Ellan~ kl. 4:57 e.h. © ::

::


þriðjudagur, ágúst 22, 2006

::TILKYNNINGARSKYLDAN..::

...í næsta Reykjavíkurmaraþoni ætlum við Kristíanna að hlaupa 10km. Í ljósi þess að hún er mun sprettharðari en ég, mun ég nota veturinn til hins ítrasta. Og svei, það yrði brilliant ef þetta gengi upp! Að hlaupi loknu, ætlum við að sturta okkur, snáfa niður í bæ og enda herlegheitin á góðu djammi um kvöldið :)

...næstkomandi þriðjudag, er fyrsti píanotíminn. Úfff, þetta verður skrítið, enda 13 ár síðan síðast!

...ég er búin að vera doldið dugleg í garðinum undanfarið, en nóg og þá meina ég NÓG er eftir.

...mig langar til að dansa frá mér allt vit!

...foreldrarnir eru á faraldsfæti. Fara út í næstu viku, og svo til USA er nær dregur jólum. Eymingja þau, enda munu þau fá sveran innkaupalista frá dótturinni hinni eldri.

...ég er buguð af ýmsum komplexum, ekkert endilega slæmum.

...ef ákveðinn maður yrði á vegi mínum í dag, myndi ég flaðra upp um hann eins og kisulóra (ok, þetta er slæmur komplexi hehe).

~Ellan~ kl. 12:24 e.h. © ::

::


þriðjudagur, ágúst 15, 2006

::SMÁ...::

....örblogg.

- Bgnes 2006, var dásamlegt. Mikið etið, hlegið, sofið og jáááá.....síðast en ekki síst...við píurnar fórum á HESTBAK. Mér var skaffaður hestur, sem var helst til viljugur til spretta, en ég datt ekki af baki. Og við vorum í hartnær 2 klst í reisunni. Svei, gott með Sprelluna :)
- Ég er að fara í ammli, Noinn er 1 árs í dag. Þarf að drífa mig að pakka gjöfinni inn, ná í Ólann, ná í Smárann og skunda með peyjana í ammli....þar verða kökur, þar af ein bláberjaskyrkaka sem ég skellti í í gærkveldi, smá tilraunastarfsemi í gangi...eymingja gestirnir ef hún hefur mistekist ræræræææææ
- Jamm, og Þórhildur kom í heimsókn með erfingjann sinn í gær. Hann er bara æði sko.....(og Þórhildur vitanlega líka).
- Mig langar til að gera eitthvað af mér. Ég er í púka-/görlpáwerskapi....það boðar ekki gott.
- Ætli tónlistarskólinn fari svo ekki að byrja.....úfff....ÚFFF!!!
- Jamm og úti skín sól. Ágætt, enda vaknaði ég við læti í veðrinu í nótt, skundaði út á snúru klukkan 02:12 að bjarga þvottinum mínum. Það verður að segjast, að ég hef litið betur út!!!!

Over and out....

...sprellan....ðí móst duglegi blogger in ðí hóól væææd world...eða svo gott sem.

~Ellan~ kl. 3:09 e.h. © ::

::


þriðjudagur, ágúst 01, 2006

::TRALLALALAAA::

Sæl veriði lömbin mín. Ég er búin að vera alveg svakalega lélegur bloggari undanfarið, svei mér. En margt búið að gerast síðan síðast, smá updeit:
Ammli hjá Dísunni
Ammlið hjá Dísunni var dásamlegt, en ég lánaði húsið undir herlegheitin (og já reddaði grilli klukkutíma fyrir grilltímann, Dísa mín "hint hint"). Eftir ammlið, var skundað niður á bar, þar sem ég entist í hálftíma áður en ég stakk af heim og upp í ból. Vonaðist náttúrulega til að sumir hefðu tekið tiltali og biðu mín í bólinu, en það var ekki svo vel. Enn aðrir ákváðu að hvíla sig í Tommelilla eftir barinn, óboðnir, þar til móðir viðkomandi hringdi í kringum hádegi að bjóða í sunnudagsmatinn og svarið var "ég er í sófanum hjá Ellu" hehe. Á sunnudeginum tók svo við baggatýnslu púl að stórbýlinu, mátulegt á mig í þynnkunni!
Sólin....
....heldur áfram að fela sig. Ég þoli það ekki!!!
Missti....
....af púlinu í sveitinni í síðustu viku vegna anna í vinnunni. Ég er enn ósátt við það. Það sem vekur þó enn meiri undran undirritaðrar, er að hafa frekar viljað fara í pjúra púl (aka hjólbörum með möl), en að vinna!
Vero Moda....
...er ekki í uppáhaldi hjá mér þessa dagana. Sé eftir skyrtunni sem mér var gefin, en var gölluð og ekki til í réttu númeri þegar átti að skipta buhuhuuuuu. Og hvað eridda með H&M, fékk sendan e-n PRUMP lista frá fólk.is í gær. Bojjjj ó bojjjj, það fyrirtæki verður fyrr en síðar tilkynnt gjaldþrota í lögbirting og hananú!
Borgarvirki
Fór vitanlega í Borgarvirki ásamt fríðu föruneyti. Það var mjööög flott.
Buffið og Love Guru...
...svei, það var hrikalega gaman á þessu balli. Ég dansaði frá mér allt vit (hélt að það væri ekki hægt hehe), og sæti strákurinn er MJÖG liðtækur dansari wúhúhúúúúúú. Þykir samt pínu miður að hafa misst af eftirpartýinu, slættinum og því öllu saman.
Borgarnes 2006...
...er framundan næstu helgi. Ég hlakka svooooo til að borða á mig gat í góðum félagsskap. Reyndar hefur verið reynt að plata mig upp á jökul í sleðaferð, langar, en ég tek það samt ekki fram yfir Bgnes! Ég fer bara seinna í sleðaferð....kannski bara sleðaferðir :) En mín kæra Þórdís, verðum að heyrast varðandi skipulag helgarinnar. What to eat, watch og minna karlana á að þeir sjá um að elda og hugsa um börn hehehe.
Erfinginn...
...heldur áfram að gubba út úr sér fyndnum athugasemdum. Sú nýjasta varðar ástarmál móðurinnar og verður svo sannarlega ekki sett fram á opinberum vettvangi hehehe.

Jæja, sæl að sinni.....

~Ellan~ kl. 5:21 e.h. © ::

::