.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
miðvikudagur, júlí 19, 2006

::MAMMA MÁ BARA VERA FEIT....::

....jæja, Aldís mín. Hér kemur hluti ferðasögunnar.

...nokkra morgna í bústaðnum (nánar tiltekið 3) fór sprellan í góða klukkustundar jogg-/gönguferðir. Var þetta gert árla morguns (svona í kringum 10) á meðan erfinginn svaf á sínu græna. Þegar móðirin kom svo heim, var hann þá oft á tíðum rétt nýskriðinn á fætur í góðu yfirlæti hjá ömmunni og afanum. Einn daginn, sat erfinginn við eldhúsborðið, og móðirin sat í mestu makindum sínum að prjóna lopapeysuna á litlu sys, og hann tók greinilega ekki eftir mér (enda svo lítil og nett hehehe). Svo hefst samtal á milli hans og ömmunnar.

Erfinginn: Hvar er mamma?
Amman: Hún fór út að hlaupa.
E: Haaaa, aftur?
A: Jájá, hún bara dreif sig út.
E: Ohhhhhhh, til hvers eiginlega???? MAMMA MÁ BARA VERA FEIT, það er nú bara allt í lagi!

Hann er alveg ágætur þessi elska. Svo maður spyr sig, af hverju er maður að standa í því að vakna á ókristilegum tíma í ræktina, þegar erfinginn hefur látið þetta út úr sér hehehe.

Jæja, meira síðar...hehehe

~Ellan~ kl. 7:16 e.h. © ::

::


sunnudagur, júlí 16, 2006

::SÆTASTI STRÁKURINN....::

....á afmæli í dag. Kl. 22:49 í kveld eru nákvæmlega 7 ár síðan sprellan skaut honum út :) Finnst eins og það hafi gerst í gær. Ooooooooo, hann er svo sætur þessi elska. Liggur við að ég væri til í að gera þetta aftur, ef það væru bara ekki ansi mörg EF í spilinu hehehe....

....jæja, 13 dagar í buff ballið. Vonandi verður þetta bara fjör. Á ekki bara að vera partý í höllinni?

....mér áskotnaðist frystikista gefins í gær. Dásamlega fögur og sómir sér vel í eldhúsinu (gamall dúkur, gömul eldhúsinnrétting og gömul frystikista lúvlí) og það verður því hægt að búa til marga klaka fyrir cosmpolitan-ið njomm njomm.

Bleeee.......

p.s. dísa mín, fer alveg að koma með ferðasöguna hehe

~Ellan~ kl. 7:17 e.h. © ::

::


fimmtudagur, júlí 06, 2006

::KOMIN HEIM....::

....jamm, komin heim. Ferðasagan kemur síðar. Ákvað að skella mér heim fyrr en áætlað var til að bregða mér eins og á eitt stykki fund hehehe.

....annars er allt fínt að frétta. Styttist í að erfinginn verði sjö ára!!!

....svo er ég orðin doldið þyrst, langar að fara að djamma. Það verður í síðasta lagi á dansleik í féló 29. júlí, finnst bara of langt þangað til, og þó....ég er að fara í ammli 22. júlí fjúfff.... Haldiði að það sé nú munur, maður verður búinn að hita vel upp fyrir dansiballið með buffinu úúúúúííííííúúúúúúííííííí :)

....amm, og hvað með menningarnótt. Á maður ekki bara að skvera sér suður, taka þátt í maraþoninu (er ekki í lagi að labba þetta bara???), og svo á skrall um kveldið????

Jæja, best að halda áfram að gera ekki neitt, það getur verið notalegt á tíðum.

~Ellan~ kl. 2:32 e.h. © ::

::