.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
fimmtudagur, júní 29, 2006

::ÉG HEF...::

...verið latur bloggari undanfarið, en það er bara búið að vera svo mikið að gera. Til að mynda:

  • Knattspyrnumót með erfingjanum í bgnesi síðustu helgi. Þetta var bara snilld, auk þess gistum við hjá Þórdísi í góðu yfirlæti, eiginlega of góðu...
  • Húsvörðurinn kom og framdi skógarhögg við höllina. Trén mín voru höggvin niður við rót...og nú er útsýnið yfir til Gvendar nágranna helst til mikið...oooogggg eigi þýðir lengur að valhoppa fáklædd um höllina, jaaaa nema þá vera búin að draga fyrir hehe.
  • Við Dísa förum í ræktina allflesta morgna :)
  • Í vikunni dreymdi mig að ákveðinn maður var helst til nærgöngull við mig, og já ég við hann. Maðurinn er frægur, fyndinn og sjálfsagt ágætlega múraður en mér finnst hann mínus kynferðislega kósý. Það sem hrellir mig þó mest er að þetta var í annað skipti á tiltölulega skömmum tíma sem mig dreymir viðkomandi...
  • Ég hef tekið að mér aukavinnu næsta vetur...vonandi þrauka ég í svona eins og eitt ár...úffffff...

Framundan er svo SUMARFRÍ jeeeee beibí. Ég hlakka alveg brjálæðislega mikið til wúhúhúúúúúú. Ég mun m.a.s. bregða undir mig betri fætinum og skunda í sumarbústað í heila viku. Þessa viku ætla ég að...

  • Sofa út...
  • Reyna að jogga eða fara í langa göngutúra dag hvern...
  • Prjóna eina lopapeysu á litlu sys...
  • Flatmaga í heitapottinum nokkra klukkutíma dag hvern (eins gott að það verði sól)...
  • Og já, bara hafa það notalegt.

...þangað til næst, hafið það gott lömbin mín.


~Ellan~ kl. 4:45 e.h. © ::

::


fimmtudagur, júní 15, 2006

::TANGA NOSTRALGÍA...::

....jamm, sumir eru víst með nostralgíu varðandi gamla góða tangann. Ég er ánægð með það, tími til kominn segi ég nú bara. Viðkomandi er búinn að vera að skanna hvt bloggsíðurnar og sagði eftir svona hva...12 ára fjarveru að sumir hefði bara ekkert breyst. Hvað um það, ég hef boðað þennan fræga mann á "deit" á unglistarballið 29. júlí. Engar afsakanir leyfðar, og allir að mæta wúhúhúúúúú.

...annars þjáist ég af eyðslulöngun. Langar í föt (kemur á óvart), nýjan ísskáp, uppþvottavél og nýjan bíl. Ég bít á jaxlinn og ætla að haga mér í þessum efnum.

...það var reynt að dobbla mig til útlanda í dag. Ég sagði pent nei, enda förum við Kristíanna út í haust. Viku í hitann, ég hlakka mjöööög svo til :)

...jamm, og svo hefur sumarbústaður verið bókaður í viku. Vonandi, VONANDI verður nú gott veður á fróni þann tíma. Það væri dásamlegt að stunda útivist og svamml í heita pottinum í góðu veðri.

...úffff, það er víst girðingavinna um helgina. Finnst það nú minna spennandi, langar að liggja í leti. Sé helgina í hyllingum enda er ég doldið buguð af litlum svefn. Það getur tekið sinn toll að vakna fyrir allar aldir í spriklið hehe.

...jæja best að strunsa á melaveginn. Ég hringdi í móður kæra og tilkynnti henni að það væri fulllangt síðan að okkur mæðginum hefði verið boðið í mat, sniðug hún sprellan :)

~Ellan~ kl. 6:20 e.h. © ::

::


mánudagur, júní 12, 2006

::BYTTA...?::

...í gær, uppúr tvö PM fékk ég mér eitt staup af hottendswít. Haldiði að ég eigi við vandamál að stríða? Þetta var spurning um það eða cognac hehe.

...nú hefur hafist vika 3 í ræktinni á morgnana. Svei mér þá, ég held að þetta sér framtíðin. Ég er búin svooooo snemma að vinna wúhúhúúúú (hvað er ég þá ennþá að hanga í vinnunni og blogga hehehe).

...í 10 daga hef ég ekki farið í sturtu heima hjá mér. Samt er ekkert bilað, og ég er ekki skítug. Er bara farin að stunda sund líka (eða sko, pottana), bíð spennt eftir að sólin fari að láta sjá sig.

...ég vann um helgina, vooooooða skemmtilegt. En er að vonast til þess að ég þurfi ekki að vinna næstu helgi. Mig langar að fara að eiga amk helgarfrí, fyrirséð er rúm ein vika í sumarfrí, krapp! Jamm, og Ínan kom í heimsókn. Umræðurnar blátt áfram, eins og alltaf.

...svo er ég farin að hlakka voða mikið til jónsmessunætur. Sundlaugin verður t.d. opin til 03:00 AM, og margt fleira skemmtilegt wúhúhúúúúú.

Jæja, bleeeeeee....

~Ellan~ kl. 4:30 e.h. © ::

::


mánudagur, júní 05, 2006

::LETIHELGI...::

...dauðans er senn á enda. Vann lengi á föstudaginn, og var orðin doldið þreytt eftir dugnað vikunnar (tekur sinn toll að mæta svona fyrir allar aldir í ræktina, I must be mad hehe). Brunaði þá suður og stoppaði hjá Þórdísi minni kæru í Bgnesi, og fékk kökur hjá myndarlegu húsmóðurinni enda átti hún ammli þessi elska. Því næst var haldið áfram suður á bóginn til sæta stráksins. Helgin var dásamleg...mikið sofið, rúntað og jáááá bara notalegheit, njomm njomm.

...ég ákvað að bregða mér aðeins í búð á heimleið minni í dag, nema hvað það var bakkað á mig, og já, ætli ég hafi ekki líka bakkað á hinn. Frúin sem var undir stýri á hinum bílnum sagði svo bara "jiiiiiiii, ég bara leit EKKERT í kringum mig", ágæt alveg hreint.

...annars er ég doldið að fíla þetta sumar sem ákvað loksins að láta sjá sig. Erfinginn leikur lausum haga og er doldið eins og hann hafi fengið frelsi eftir að hann ákvað loksins að prufa að hjóla án þess að nokkur héldi í stýrið hehe. Hann er kominn með alvarlega veiðisýki og hann og móðursystir hans vilja helst af öllu vera niður á bryggju. Þau komu áðan með marhnút heim, og eru að reyna að halda lífinu í honum í glerskál bakvið hús, as we speak, bojjj ó bojjjj.

....jæja, best að fara að taka sig til fyrir morgundaginn. Ræktin ó sixxx hundred ey emmmm :)

~Ellan~ kl. 9:46 e.h. © ::

::