.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
miðvikudagur, maí 31, 2006

::ÞRJÁ...::

...daga í röð hef ég verið mætt í ræktina upp úr sex á morgnana. Í morgun dreif ég mig auk þess í ljós líka fyrir vinnu. Þetta er dásamlegt. Reyndar doldið þreytt í dag, í ljósi þess að ég var óvenju vinsæl í gærkveldi :), en gvööööð sé lof fyrir hörbó te-ið!

...kosningarnar eru afstaðnar. Ég er miður sátt, en svona er þetta bara!

...erfinginn er búinn í skólanum þennan veturinn. Nú held ég að fjörið hefjist fyrst fyrir alvöru. Þyrfti að geta límt á hann gps tæki, og setja á hann falda myndavél svo ég gæti fylgst vel með ferðum hans.

...það eru allir í útlöndum eða á leiðinni til útlanda, NEMA ég. Ég er samt að reyna að öfunda ekki enda kom upp sá möguleiki ekki alls fyrir löngu að ég færi kannski í smá helgarferð út í sumar. Það þýðir að ég færi þá út í sumar, eina viku í sól og sælu e-n tíman með haustinu með Kristíönnu og svo fer Forsvar huxanlega líka til útlanda á þessu ári. Ég hef mínus ástæðu til að kvarta hehe og reyni að bíta á jaxlinn, úfff...

...næstu helgi ætla ég að reyna að skella mér aðeins suður á bóginn, það verður ljúft. Sæti strákurinn er búinn að þurfa að koma norður undanfarið vegna anna hjá minni, en nú er komið að mér :)

Over and out...

~Ellan~ kl. 12:11 e.h. © ::

::


miðvikudagur, maí 24, 2006

::HRÍÐARVEÐUR....::

...er búið að vera ríkjandi hér í borg sælunnar undanfarið. Ojjjjjj bara, væri ekki hissa á að fólk væri búið að fara í stríðum straumum til doktoranna að heimta gleðipillur!!!

...hvað um það, 3 dagar í kosningar, og 2 dagar í föstudaginn. Ef ég á að segja alveg eins og er hlakkar mig meira til föstudagsins en laugardagsins. Sumir eru nefnilega að koma norður um helgina sjáiði (Halli minn, okkar á milli, þá heitir hann Ævar hehe).

....jæja, verð að skunda í búð að kaupa ammlispappír og kort....sumir eiga nefnilega ammli á laugardaginn :) Jamm, og svo er kosningakontórinn í kvöld, kosningastúss á morgun, kosningafótbolti á laugardaginn, kosningakaffi á laugardaginn og muniði svo lömbin mín að kjósa rétt, allir sætir kjósa X-S hehe.

~Ellan~ kl. 5:31 e.h. © ::

::


föstudagur, maí 19, 2006

::HVAÐ ER Í GANGI....::

...mér er bara spurn. Í vikunni fékk ég sms frá e-m sem ég hef ekki hugmynd um hver er og það var svona;

"Sorry ;)"

Nú var ég að fá sms í gegnum simann....og það er svo;

"hæjj sæti minn kvad ert tu ad bralla? hvad ætlaru ad gera í kvöld??"

Fröken siminn.is (eða kannski er þetta bara herrra siminn.is hvað veit maður), því er hér með komið á framfæri til yðar að þetta sms fór á rangan stað.

Jæja, við Dísa ætlum í ríkið.

~Ellan~ kl. 6:13 e.h. © ::

::


mánudagur, maí 15, 2006

::ÉG....::

...hef verið beðin um uppfærslu á blogginu. Síðan síðast hefur svo sem margt gerst, sumt skemmtilegt og annað minna. Ég nenni nú ekki að fara út í þetta minna skemmtilega en hvað varðar þetta skemmtilega er þetta helst:
  • Ég elska PUMA skóna mína ennþá alveg brjálæðislega mikið.
  • Sumir komu um heimsókn um helgina, eins og glöggir Hvammstangabúar urðu væntanlega varir við. Hann hefur nú þegar fengið alveg dásamlegt viðurnefni, heppinn :)
  • Ég fór í fóbolta ásamt fleirum á sparkvellinum, það var gaman :)
  • Jamm, prufaði líka trampólínið hennar litlu sys í gær. Alltaf gott að vernda barnið í sjálfum sér.

Annars veit ég ekkert hvað ég á að bulla hérna. Nema jú, er að renna yfir júróvisjón lögin, komin í P. Mér er bara ekki að lítast á þessi lög, kannski verið 2 lög sem mér hefur litist á hingað til.

Þangað til næst....


~Ellan~ kl. 5:40 e.h. © ::

::


sunnudagur, maí 07, 2006

::SUNDAY SUNDAY...::

...jamm helgin er víst bara búin. Hvort ég náði að uppfylla verkefni helgarinnar, er svo annað mál. Við skulum nú sjá....

  • ég vann minna en ég ætlaði um helgina. Kenni ég um syndsamlega góðu veðri, og mögulegu ferðalagi að ná í sæta strákinn. Því miður fundust varahlutir arrrrrrrg.
  • fundarsetan stóðst.
  • tiltektin....jaaaaa, tók minna til en til stóð. Ég á enn eftir að gera húsið "fjölskylduvænt".
  • spilaði svolítið á pianoið, með óvæntum afleiðingum. Eins gott að ég er heimilistryggð segi ég nú bara.
  • ég náttúrulega synti, enda mikil sól, alveg 300 metra hehehe.
  • svaf óþarflega mikið...enda leiddist mér...hehe.

Annars bættist við háleit plön mín fyrir helgina að ég átti dásamlegt vidjó kveld á fös (ég svaf yfir myndinni), og í gær fór ég ásamt frumburði Ása Ben á rúntinn íhaaaaaa.

En í síðasta pistli frú Elínar eins og Ína pína nefnir mig stundum, gleymdi ég að minnast á nýju PUMA skóna mína. Ma&pa gáfu mér þá í ammlisgjöf og svei hvað þeir eru fagrir. I lúúúúúv them, ríllí ríííllí lúúúúv them :)

Jæja, ég á deit með Dísu skvísu, við ætlum út að borða :)


~Ellan~ kl. 6:59 e.h. © ::

::


föstudagur, maí 05, 2006

::FÖSTUDAGSVEIKI...::

....jamm, ég er með föstudagsveikina. Hún lýsir sér þannig að ég veit ekki hvort ég á að stíga í hægri eða vinstri fótinn, geðraskanir segja til sín, ég verð pirruð, og já, langar helst af öllu til að skríða upp í rúm og fara að sofa. Veiki þessi plagar mig aðra hvora helgi, er erfinginn fer til föðurhúsa. Ekki hef ég áhyggjur af að það sé ekki hugsað vel um hann. Hef ég trú á að orsök þessarar veiki sé sú að allt í einu þarf ég ekki að hugsa um neinn nema sjálfa mig hehehe

....og svo er ég í þessum töluðu orðum að missa af Bifrastar djamminu. Ég skal meika það næst og ekkert væl!!!!

....annars mun ég hafa yfirdrifið nóg að gera um helgina, svo sem...
  • Vinna, vinna, vinna og já vinna aðeins meira.
  • Fundarseta.
  • Taka til, ættingjarnir gætu hafið innrás í næstu viku.
  • Liðka til fingurnar með pianoleik.
  • Verði sól, ætla ég að synda.
  • Og já, ég ætla að sofa miiiiiikið.

....það skal viðurkennast að ég myndi t.a.m. vilja vera gera allt nema VINNA, t.d. sinna massanum, en svona er þetta. Eitt er þó víst að mikið djö...verð ég fegin þegar maí mánuður verður búinn. Þá ætla ég að láta eftir mér að taka mér laaaaaangt helgarfrí, enda verð ég að taka suma í æfingabúðir hehehe.

...jæja, nóg af þessu væli....


~Ellan~ kl. 7:15 e.h. © ::

::


miðvikudagur, maí 03, 2006

::OJJJJ...::

....þetta er búinn að vera fúli dagurinn. FÚLI ég er að segja ykkur það. Ennnn bráðum kemur bjartari tíð með blóm í haga :)

....annars var helgin fín og ég svíf um á bleiku skýji :)

Over and out....

~Ellan~ kl. 7:08 e.h. © ::

::