| ............................. |
|
SPRELLAN
|
|
::ÉG Á....:: ...ammli í dag wúhúhúúúú. Var það kunngjört á opinberum vettvangi sennilega fyrir tilstuðlan kökumannsins!!! ...ammliskveðjurnar byrjuðu að streyma árla morguns, og var sæti strákurinn fyrstur. Ekki nóg með að hann sé sætur heldur maaaargt fleira hehe ....þúsund þakkir fyrir kveðjurnar í dag. Það er alltaf gaman að eiga ammli. ....á næsta ári hef ég trú á því að það viðri sérstaklega vel til ammlisveislu þar sem ég er næsta viss um að sumardagurinn fyrsti sé daginn eftir. ....erfinginn labbaði einn út í Döggubúð í dag til að kaupa blóm handa móður sinni. Er ég nú svona líka bleikri rós ríkari, amk næstu daga hehe. ....í tilefni ammlisins býður mútta í plokkfisk veiveivei og svo er ég að hugsa um að bjóða fjölskyldunni til vöffluveislu í kveld. Over and out :) ~Ellan~ kl. 6:17 e.h. © :: ::MÁNUDAGUR...:: ...jæja, þá er ný vinnuvika hafin enn og aftur. Skilst mér að fólk vilji vita af ferðum Sprellunnar undanfarið. Þær voru svona.... ...föstudagur. Súperstelpan og M komu í mat ásamt erfingjum og já eftir atvikum einnig mökum. Þetta var dásamlegt. Fátt skemmtilegra en hittast, borða og kjafta í góðra vina hópi. ...laugardagur. Ætlaði að vinna frá svona átta til fjegur. Niðurstaðan varð hins vegar sú að loks er ég skundaði til vinnu minnar að verða níu, nennti ég ekki að vinna en um pólitík hugsaði ég. Fór svo í ræktina og ákvað að skella mér til höfuðborgarinnar. Kom við hjá Þórdísi og spjallaði við hana...þar til ég fékk boð að sunnan þess efnis að beðið væri eftir mér. Fór í heimsókn....fíííííína heimsókn..."blinkeríblink" ...sunnudagur. Fór í smá búðarráp, hitti Kristíönnu mína, og fór svo á rúntinn. Jamm, og svo fékk ég líka svona fyrirfram afmælisgjöf, hvítvín, nammi, bók og blóm :) ...mánudagur. Mætti seint til vinnu, eða ekki fyrr en um 10. Ég hafði hreinlega öðrum hnöppum að hneppa hehe. Ætla svo núna að skunda niður í búð og redda einhverjum veitingum fyrir morgundaginn. Ekki viss um að vinnufélagar yrðu sáttir við að fá ekki neitt gott í gogginn í fyrramálið....eins og ég nenni þessu nú. Held ég láti Betty hjálpa mér. Og nú er svo komið að leita að erfingjanum...hann hefur ekki látið sjá sig....sveiiiiii. Jamm, og svo er ég að spá í að fara út að jogga. Ekki nógu mikil sól fyrir sundferð, en e-ð verður að gera. Það var kaldavatnslaust í hádeginu á hluta staðarins, og auðvitað ekkert vatn á sjúkrahúsinu!!! Jæja, bleeeee..... ~Ellan~ kl. 5:16 e.h. © :: ::SÍÐASTI VETRARDAGUR...:: ....jæja, þar kveður hann blessaður. Fegin er ég :) ....byrjaði að vinna í dag. Það var svo sem ok. Ég frétti ýmislegt skemmtilegt wúhúhúúúú. ....fór líka í ræktina í dag. Það var svalt. Magaæfingin fína hefur tekið mið af því að nauðsynlegt er að æfa HLIÐARmagavöðvana. Veðja popp og kók að á morgun verð ég með strengi. Jamm, og svo misþyrmdi meistarinn bakinu á mér, það heyrðust brak og brestir í 5km radíus. ...well. Nóg í bili. ~Ellan~ kl. 6:24 e.h. © :: ::EHMM....:: ...hrikalega var gaman á djamminu í gær, oooooo svei. Fara í stórfiskaleik, flöskustút, hlaupa í skarðið og ég veit ekki hvað og hvað. Það er deginum ljósara að leikurinn verður endurtekinn að sama tíma að ári. ...annars er nú erfinginn minn bara fyndinn. Áttum svolítið skemmtilegt samtal í gær, sem var svona: Erfinginn; mamma, ég vil ekki sofa hjá ömmu. Ég ætla bara að vera heima hjá þér. Móðirin; ekkert svona. Ég er að fara út að skemmta mér. Erfinginn; mamma, ekki þá vera neitt að reyna við einhverja stráka!!! Móðirin; hehe, jájá. Ég lofa því, enda eru það þeir sem eru vanir að reyna við mig... Erfinginn; já, en mamma. Þú mátt ekki ná þér í neinn kærasta. Þú lofar!!! Ég hló að þessari vitleysu í erfingjanum, en efndi ég loforðið, það er svo annað mál.... Over and out.... ~Ellan~ kl. 5:26 e.h. © :: ::DUGLEGA....:: ...skvísan er ég búin að vera, ó já. Þvottahúsið er reddí, ég var að mála til hálftvö í gærkveldi, ég er náttúrulega ekkert þrjósk trallallaaaaa. Svo á húsvörðurinn eftir að koma og hengja upp allar hillurnar sem ég tók niður ALVEG SJÁLF og fékk þvílíkt hrós fyrir :). Húsið er þar af leiðandi á hvolfi....HVOLFI...verð að taka til ræræræææææ. ...morgundagurinn þarf að vera skipulagður. Taka til, fara á fatamarkað, fara í KVH, fara í mjólkurbúðina, fara í ræktina, jamm og svo fundur annað kveld. Hvað skal kaupa í mjólkurbúðinni...það er búið að banna mér að kaupa uppáhaldið mitt. Kannski ekki svo vitlaust, ég geri bara einhvern óskunda af mér hehe. ...það styttist í fyrra skrallið, það verður á fös (Þórdís, hringi í þig á eftir, þú ert sko líka að koma), hið síðara á lau. Mig er farið að kvíða fyrir þessu, þynnka 2 daga í röð, en það þýðir ekkert væl. ...jæja, þangað til næst! ~Ellan~ kl. 7:52 e.h. © :: ::PÁSKA...:: ....frí er hafið. Þvílík snilld, mæti ekki aftur til vinnu fyrr en 19. apríl úíúíúúúúúí. Ég mun reyndar hafa nóg að gera. Strax í fyrramálið ætla ég að fara í KVH og kaupa mér málningu. Þvottahúsið á von á smá svona "extreme makeover". Babbín verður spilað helst upp á hvern dag. Jamm, og svo er það djammið....ekki einu sinni, heldur tvisvar um páskana.....og það 2 daga í röð.....það verður áhugavert :) ~Ellan~ kl. 6:22 e.h. © :: ::SMÁ...:: ...örblogg. Undarlegum spurningum hefur rignt yfir mig undanfarið:
...Sigrún bankaði svo upp á í foreldrahúsum mínum rétt í þessu. Rétti mér spilabók, fletti upp á bls. 16 sagði svo "æfðu þetta lag, og svo spilarðu undir með mér einhvern tíman í maí". Kvaddi svo og fór. Sigrún er náttúrulega engri lík hehe.
~Ellan~ kl. 7:55 e.h. © :: |