| ............................. |
|
SPRELLAN
|
|
::HÉR...:: ...sit ég í vinnunni ...klukkan er 17:42 ...á föstudegi ...úti skín sól ...ojjjjjj ~Ellan~ kl. 5:41 e.h. © :: ::SÍÐAN SÍÐAST...:: ...er margt búið að gerast.
~Ellan~ kl. 5:17 e.h. © :: ::ÉG ER....:: ....svo gott sem gengin út m.v. samræður 2ja aðila í sjoppen í gær. Ég hefði allt eins getað verið heima hjá mér, þau létu amk eins og ég væri ekki þarna dónarnir. Nýjasta "fórnarlamb" mitt ku vera jarðeðlisfræðingur já og fyrirsæta í hjáverkum. Finnst þetta aðallega fyndið, en viðurnefni tilvonandi eiginmanns míns (að þeirra sögn) fær mig reyndar til að kikna í hnjám....enda með viðurnefnið "vinnumaður" :) ....djammið á fös var fínt svo langt sem það náði. Ég er samt alveg búin að sjá það út að það á alls ekki við mig að sitja bara og drekka. Ég vil dansa og sjússa mig í hott end swííít. Eins gott að það verði e-ð band á barnum að kveldi föstudagsins langa því þá er verið að skipuleggja tjútt dauðans og ég ÆTLA að kaupa mér hott end swííít enda eini snafsinn sem virkar úíúíúííííííí. ....annars er ég buguð af íþr.meiðslum. Höfðabrautarliðið fór í bandí á fös og svei hvað það var gaman....ég lenti í smá hnjaski við frkv.stjóra SSNV og fékk "kylfuna" í hnéð. Í gær þegar ég vaknaði var eins og e-r hefði snúið upp á vinstri handlegginn á mér og ég er laaaangt frá því að vera til stórræða þessa dagana. Ætli ég verði ekki að semja við meistarann að snúa honum til baka eða e-ð á morgun. Ég hef enga þolinmæði í að vera svona "vælukjói". ....talandi um meistarann. Hann er búinn að kenna mér dásamlega magaæfingu....ég fæ m.a.s. smá strengi þegar ég geri hana. Gæti sem best trúað að geri ég hana reglulega, verði ég búin að fá sixpack jaaaaaa, svona eftir eins og 10 ár hehehe. Jæja, ég er að spá í að skunda heim til mín, eða amk út úr höfuðstöðvum Forsvar International. Uppáhalds móðursystirin (var t.d. að gefa mér fagurbleika Nike skvísu wúhúhúúúúú) var að baka í gær, svo ætli ég kíki ekki til hennar á heimleið. Jamm, og svo er félagsbúið....eða amk húsvörðurinn....með SEXHJÓL í láni. Það gæti verið fjör.... Bleeeee..... ~Ellan~ kl. 2:44 e.h. © :: ::FRAMHJÁHALD....:: ...aldrei hélt ég að ég ætti nokkurn tíman eftir að gleðjast yfir framhjáhaldi. En það gerðist engu að síður sl sunnudag. Ég var búin að bíða eftir því að þetta gerðist í svona eins og 1,5 ár. Svei hvað ég varð glöð, en þetta var sumsé ekki alveg í alvörunni heldur í Kroniken á RÚV hehehe. ...og talandi um framhjáhald. Af e-m orsökum varð mér á að sjá í lokin á þætti Bóld end ðí bjútífúl í vikunni. Þar var Brók (Brooke) að bíða eftir niðurstöðum úr þungunarprófi, og sjálfsagt hefur allur þátturinn snúist um þetta eina þungurpróf (ekki eins og í þetta eina skipti sem ég hef notast við svona lagað, varla búin að pissa á prufuna þegar niðurstaðan var ljós, tók engar 30 mín eða e-ð viðlíka hehehe). Nema hvað, skv.áreiðanlegum heimildum Siggu bók er daman ólétt eftir TENGDASON sinn. Síðan var það víst þannig að á meðan hún Brók var að pissa á prufuna var tengdasonurinn að endurnýja heitin með dóttur hennar, úffff....þetta er flókið. Hér er náttúrulega á ferðinni sjónvarpsefni af bestu gerð haaaaaa....og svei mér ef þetta jafnast ekki á við góða kjaftasögu hér frá Hvamms!!!! Over and out í bili.... ~Ellan~ kl. 12:39 e.h. © :: ::Á FÖSTUDAGINN...:: ...héldum við mæðgin, ásamt Helenu og Baldvini, á vit örlaga okkar á Suðurlandinu. Ínan bauð okkur í mat áður. Það var ljúft :) Áfram héldum við för okkar suður á bóginn og enduðum í Keflavík. Tilefnið; erfingjarnir að spila körfubolta bwahahahaaa. Þetta var bara gaman. Við vinkonurnar vorum skipaðar í mjög svo vafasamt hlutverk liðsstjóra hehe. Ég varð svolítið æst í fyrsta leiknum og það spurðist e-ð út, ehmmm. Þarf að passa mig framvegis... ...nú styttist í fyrsta kveld prjónaklúbbs Forsvarspía. Ég ætla að dunda mig við að reyna að lykkja saman áður en ég hefst handa á næsta verkefni (sko pilsinu). Jebb, í þetta skiptið ætla ég að klára stykkið í stað þess að láta það liggja inn í skápi óklárað svo árum skipti. Dugleg :) ...í dag sótti ég um fæðingarorlof, ekki fyrir mig samt fjúfff :) ...jamm, og svo er Höfðabrautarpartý á föstudaginn. Ég spái miiiiiklu fjöri enda við Sigrún að skipuleggja wúhúhúúúúú. ~Ellan~ kl. 8:43 f.h. © :: ::ÉG ÞARF...:: ...í peningalegt aðhald, jaaaaaa eða að ná mér í ríkan mann. Á einni viku er ég búin að taka í notkun dásamlega strigaskó, sundbol, 2 peysur og rándýrt krem. Í ljósi þess að ég er engan vegin tilbúin til að stíga á bremsuna held ég að hið síðarnefnda sé ákjósanlegra! Hann verður reyndar að vera vel skorinn, myndarlegur og skemmtilegur. Já...þetta ætti ekki að verða neitt probb hehe. ...um helgina verður fjör. Þá verður sko mikið hlegið, farið í bíó, öskrað og aldrei að vita nema fagrir menn verði á vegi Sprellunnar. Ég hlakka til úíúíúíííííí... ...annars er ég spræk sem aldrei fyrr *blinkeríblink* ~Ellan~ kl. 3:48 e.h. © :: ::Í KVELD...:: ...er ég glöð í hjarta mér. Við mæðgur brunuðum suður í morgun að hitta ættmóðurina. Ættmóðirin er sem betur fer ótrúlega hress eftir erfið veikindi undanfarið og nú vonast ég bara til að hún skveri sér norður og fari að braggast hvað úr hverju. ...kíktum örlítið í búðir. Ég sá bleika peysu, sem og bleika salatskál. En í ljósi þess að ég er í "bleiku bindindi" hélt ég að mér höndum. ...keypti mér hins vegar dásamlegt krem og eina peysu. Obbbobbbobbb, var ekki alveg á fjárheimildum hehe. ...nú er ég að hugsa um að skvera mér til míns heima og þvo af mér höfuborgarlyktina. Setja á mig nýja kremið og koma mér svo vel fyrir í tommelilla og horfa á aðþrengdu eiginkonurnar. Annars ætti ég náttúrulega bara að skvera mér upp í ból og fara að sofa. Komið fram yfir minn háttatíma, amk m.v. gærkveldið. Sofnaði með erfingjanum og svaf til morguns hehe. ~Ellan~ kl. 10:01 e.h. © :: ::ÖSKUDAGUR:: Jebb í dag var öskudagur og að því tilefni mætti starfsfólk Forsvars í mis dásamlegum múnderingum til vinnu. Ég er samt eiginlega að vona að við hér gerum þetta að árlegum viðburði! Minn búningur getur amk ekki versnað, það er ekki erfitt að toppa tíkarspena og kúrekahatt.... Hvað um það, á morgun verður pilsadagur í vinnunni. Hef heyrt að sum pilsin séu helst til glyðruleg (m.a.s. að eigandans sögn), svo ég hvet alla til að kíkja á okkur á morgun hehe. Jamm, og svo erum við Forsvars píurnar að skipuleggja prjónaklúbb. Ég hef hug á því að prjóna mér pils, pilssjúk sem ég er nú að vera. Heyrist svo á prinsessunni að hún ætli að smala liðinu út í haust.Þá eru reyndar líkur á því að ég fari 2x í haust. Isssss, ég er alltaf til í að fara til útlanda :) ~Ellan~ kl. 5:15 e.h. © :: |