.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
þriðjudagur, febrúar 28, 2006

::NOHHHH...::

...það er bara fjör í ykkur lömbin mín.
...ég þakka hlýjar kveðjur í minn garð, enda finnst mér ég alveg eiga það skilið hehehe.
...ég öfunda myndarlegar húsmæður sem bökuðu bollur ólíkt sumum sem keyptu sér bollu og klæddu sig svo í skjóli nætur til að komast í bollukaffi til móður kærrar sl. sunnudagskveld (eins gott, rakst á einn rokkara á leiðinni hehe). Öfunda samt minna yfir veikindum erfingja :(
...og þið sem ausið efasemdum yfir dugnaði Sprellunnar. Auðvitað eru til vitni að göngunni miklu. Jón Ágústs ásamt Hadda "hárfagra" keyrðu fram á mína akkúrat þegar ég var að ná Kárastaðaafleggjaranum, og jú líka Eydís og Óli þau voru í útreiðum. Ég flaska nú ekki á þessu, kæra Þórhildur. Ferðir sem slíkar fer maður í björtu, svo það séu alveg áreiðanlega til vitni fyrir afrekum sem þessum hehe.

Annars er lítið að frétta. Ég er ólm í að fara meira út að hlaupa eða taka svona langa göngutúra, en það er einn galli á gjöf Njarðar (it always is). Ég þarf að fjárfesta í aukapari af skóm, maður verður nú að eiga eina úti og eina inni. Hinir gömlu eru samt eins og nýjir því þeir fengu sko að fara í þvottavélina eftir gjöfina í Græna, undarlegt...Svo ef einhver er til í að gefa mér rándýra og góða skó, gjösssovel, ég nota nr. 37.

Over and out...

~Ellan~ kl. 11:43 f.h. © ::

::


sunnudagur, febrúar 26, 2006

::Í GÆR...::

....var gott veður. Sólin skein, það var logn og fuglarnir sungu. En ég var að VINNA. Þegar ég fór heim um fimm, ákvað ég að drífa mig merkurhringinn. Ég joggaði af stað, upp brekkuna til að koma púlsinum í gang. Þegar upp á hæðina var komið gerði ég mér ljóst að það væri fásinna að ætla merkurhringinn. Hann væri allt of stuttur. Ég ákvað að labba út í Græna, svo að Lindarbergi, svo að Gröf og að endingu ákvað ég að drífa mig bara út að Kárastöðum. Sem ég og gerði.

....ég hitti ýmislegt skemmtilegt fólk á leið minni sem og einn fjórfættann sem ég held að hafi bara viljað að ég skveraði mér á bak. Fólk var almennilegt og bauð mér reiðskjóta til heimleiðarinnar og mátti ég velja um að mig minnir 7 stykki. Ég afþakkaði og hélt ákveðin heim á leið. Þegar ég var komin að Lindarbergi var nóg komið af hægagangi svo ég joggaði bara alla leið að brunahananum mínum fína.

....nú er ég endurnærð, með smá strengi í sitjandanum, og afar glöð yfir forminu sem ég er komin í. Ég gæfi líka ýmislegt fyrir að sjá aftur svip karl föður míns er ég sagði honum frá dugnaði mínum.

...ættfaðirinn telur að þessi ferð mín í gær telji 10km og er það ærin ástæða til að gleðjast.

...nú held ég heim á leið, ennþá montin yfir afrekum gærdagsins, og ætla að halda með móður minni út á nes að ná í systur kæra. Við heimkomu hef ég grun um að ég joggi bara út í Græna að gefa rolluskjátunum og Hjalla. Það er víst minn dagur í dag :)

Au revoir ....

~Ellan~ kl. 3:04 e.h. © ::

::


fimmtudagur, febrúar 23, 2006

::TÍÐINDI VIKUNNAR...::

...eru þessi helst.

- Á mánudaginn fékk ég bón, á þriðjudaginn sagði ég já. Tilfinningar eru blendnar, en meira um það síðar, samt held ég að þetta hafi verið rétt ákvörðun og bara doldið mikið spennandi.
- Haraldur frændi er farinn að kommenta á síðuna mína. Það er svalt :)
- Síðustu helgi náði ég að éta á mig 3kg í kökumaraþoni dauðans....ég fékk líka gistingu í "fína" svefnsófanum hennar Þórdísar hehe.
- Prinsessunni dreymdi að ég væri orðin næstum því jafn grönn og Aldísin Bjé. Þá er nú fokið í flest skjól segi ég nú bara....
- Meistarinn móðgaði mig all svakalega. Hann varð að biðjast auðmjúklega afsökunar til að fá áheyrn mína að nýju ó já...dóninn sá arna.
- Það er vor í Sprellunni. Ég hlakka til vorsins, merkurhringsins, sólarinnar og ehmmm örugglega til einhvers fleira úíúíúííííí.

Annars luma ég á dæmisögu, sem ég mun kasta fram við tækifæri....

~Ellan~ kl. 1:12 e.h. © ::

::


föstudagur, febrúar 17, 2006

::ER ÉG SVONA...::

...ljót að skilja fólk eftir í reiðuleysi við þessi skrif mín. Tjaaaa, ég verð nú bara að bæta úr þessu við fyrsta tækifæri. Ég skal gera lista yfir viðurnefni þau er ég nota í skrifum mínum mjög svo fljótlega og reyna að vera hnitmiðaðri í orðavali. Annars er ykkur velkomið að hafa samband any time, síst af öllu vil ég valda ykkur sálarkvölum lömbin mín hehe.

...um daginn, þegar ég keypti bleika armbandið fyrir ippann minn, sór ég þess eið að það væri það síðasta bleika sem ég myndi kaupa þetta árið. Í síðustu viku keypti ég mér bleikan íþr.bol á þriðjudegi og sjúklega flott bleikt pils á miðvikudegi. Í gær keypti ég garn í ullarsokka með bleiku ívafi. Mér er ekki viðbjargandi, sveiattan.

...spilað var á tónleikum í vikunni. Fjórhent með litlu sys, ég stirnaði þegar ég settist fyrir framan pianoið. Hendur urðu kaldar og ég sver að ég fékk náladofa í fingurgómana. En þetta reddaðist, sem betur fer hehe.

...svo á ég uppáhalds lag þessa dagana. Dísan var svo almennileg að redda því. One með Mary J Blidge og Bono. Sveeeeei...svalara en allt wúhúhúúúú.

...annars er ég svolítið súr í dag. En ekki dirfast að vera "músímúsí"-leg við mig og hananú.

...nóg í bili.

~Ellan~ kl. 4:40 e.h. © ::

::


þriðjudagur, febrúar 14, 2006

::ÉG MÓTMÆLI...::

....veðrinu. Ég er að glata sólinni í hjarta mér við þessi ósköp hehe.

Annars er ég djö...spræk. Náði fótgetanum í dag, sko á brautinni, komin 70 metrum á undan honum. Frekar fyndið að vera alltaf að keppa við hann, en ég er skrítin, veit ég vel :)

Undanfarið hef ég svo verið að dunda við að segja vinkonum mínum svolítið....sem veldur mikilli lukku hjá þeim í flestum tilfellum...... Lifi rock´n roll :)

Jæja, best að skunda í háttinn. Er í föðurhúsum aldrei þessu vant, og það verður ræs árla morguns (svona í anda herra Jessens) til að vekja litlu sys. Hún er sko 11 ára á morgun, skvísan.

Bleee.....

~Ellan~ kl. 11:45 e.h. © ::

::


sunnudagur, febrúar 12, 2006

::SÖGULEGT...::

...djamm fór fram um helgina. Jebb, við hófum drykkju 4 skvísur. Það var fjör, og það var gaman. 2 gubbuðu (ekki ég), 1 fylgdi annarri heim, og sú fjórða fór ein niður í bæ. Sms voru send aðilum, sem höfðu ekki fengið sms í svona....tja.....2 ár. Sprellan sendi eitt sms og skammaði suma fyrir að hafa ekki svarað sms-i frá annarri píu (úfff....þetta var flókið). Nóg um þetta hehehe.

...ég var sumsé í höfuðborginni um helgina. Lagði af stað suður eftir vinnu á fös....ég hélt að það myndi kvikna í bílstjórasætinu á leiðinni. Slíkur var hitinn...ég nefnilega ákvað að skella mér í ljós í hádeginu á fös, og fór síðast e-n tíman á vordögum í fyrra. Húsvörðurinn misskildi e-ð sms frá minni, og hringdi í öngvum sínum, hélt að ég væri ein upp á miðri heiði og bíllinn að fuðra upp hehe. Svo var ég að vinna á lau, og mikið var nú dásamlegt að labba út í hádeginu, skunda 10 skref og þá bara komin niður á Laugarveg. Þegar ég skreið loks á fætur í dag, var borðaðu þynnkumatur og svo skrönglaðist ég bara beint heim. Og sveiiiiii, ég er bara ekki búin að gera handtak af viti í dag.

...KJ veit hvar jakkinn sem mig langar svo í er til sölu. Hann kostar fúlgur fjár, en hí is ó só bjútifúl. Er að spá í að kaupa mér hann bara þegar við Hvamms píurnar förum í húsmæðraorlofsferðina í mars. Hvernig er annars með þessa ferð, verðum við ekki að fara að skipuleggja okkur??? Mér finnst að við eigum að setja á fót skipulagsnefnd!!!

...jamm, og svo er það nú bara þannig að bestu samræðurnar mínar við suma fara fram þegar ég er í sturtu. Undarlegt, en satt :)

~Ellan~ kl. 7:19 e.h. © ::

::




::ELSKU..::

...Dísan mín. Ég kann þér bestu þakkir fyrir....

4 störf sem ég hef unnið um ævina:
- Meleyri
- Póstur og sími (jeeeee það var einu sinni til)
- Söluskálinn Hvammstanga
- Forsvar...5 ár að verða komin kræst...

4 kvikmyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
- Cocktail (fossaatriðið er klassík)
- Leathal Weapon myndirnar. Melli Gilli er náttúrulega bara svalur :)
- James Bond
- Bridget Jones...við vinkonurnar eru ótrúlega nánar hehe

4 staðir sem ég hef búið á:
- Hvamms
- Akureyri
- Reykjavík
- jaaaaa, þar með er það bara upp talið :)

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:
- Sex and the City
- Grey´s Anatomy
- Örninn, og flestir danskir þættir
- Desperate Houswives

4 lönd heimsótt í fríi:
- Danmörk
- Frakkland
- Mexico
- Spánn

4 síður á netinu sem ég heimsæki daglega:
- mbl.is
- rosinbergið vitanlega
- aldisojoh
- aolmusic.com

4 matarkyns sem ég held upp á:
- saltfiskur
- kjúlli
- félagsbúspizzan
- saltkjöt og baunir
...og maaaaaargt fleira :)

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
- í einhverju dundi með erfingjanum
- í heitu baði
- í afdal, í dásamlegum sumarbústað og ekki í símasambandi
- upp í sófa með einhverjum algjörum gogga njomm njomm

4 aðilar sem ég klukka:
- aldísin...bjé
- kollan
- ínan
- prinsessan

....over and out.

~Ellan~ kl. 4:28 e.h. © ::

::


fimmtudagur, febrúar 09, 2006

::BLESSAÐ BLÓTIÐ::

Jæja, þá er nú blessað blótið búið. Ég er strax farin að telja niður í það næsta :) Kveldið hófst á því að það var smá fyrirpartý í höllinu, og þess skal sérstaklega getið að Ragnheiður og Pétur mættu fyrst, m.a.s. á undan gestgjafanum "blinkeríblink". Þar var setið við smá sumbl, og hárreddingar, og beðið eftir því að Silvía Nótt mætti á svið í júróvisjóninu. Þegar klukkan var orðin rúmlega hálfníu var ekki beðið boðanna og skundað á blótið (en misstum af Silvíu Nótt). Ég held samt að við höfum ekki verið alveg síðust hehe.

Þá var fljótlega komið að hákarlinum, NJOMM NJOMM. Oooooo ég elska hákarl (á meðan dísan elskar harðfisk og part hehehe)....og dadararaaaaa....skemmtiatriðin. Viti menn, það var m.a.s. minnst á mig...."Sprellan fer í ræktina í hádeginu, nú skal sko koma línunum í lag" var sungið. Manidda ekki alveg en e-ð á þessa leið. Skemmtiatriðinu voru dásamleg að vanda, enda er nema von, það var líka minnst á hina klobbana (reynar á meðan einn klobbinn fór heim að tappa af).

Drykkja, var skynsamleg og ég hagaði mér. En dásamlegt, öngvir skandalar enda ku aðrir víst hafa séð um þá deildina í þetta skiptið (ekki nema sanngjarnt að skiptast á). Á næsta þorrablót verður samt hott end swííít borið í hús, þetta er ekki hægt, ég var bara hálf manneskja hehehe. Þegar ég var farin að fá undarlegar augngotur ákvað ég að stinga af heim.

Hrós kveldsins fær samt meridesið....fyrir að bjarga mér frá korter í þrjú gæjanum sem ég lennti í :)

Sunnudagurinn fór svo í gestagang, sem var dásamlegt, og skúbbið.....bojjjj ó bojjjj.

~Ellan~ kl. 11:50 e.h. © ::

::


laugardagur, febrúar 04, 2006

::ÞORRABLÓTIÐ...::

...er víst í kveld og eigi er ég komin í stuð. Fór í mjólkurbúðina í gær og hott end swííítið var búið. Klippiskvísan sendi þá manninn sinn í búð, og hann þræddi hverja mjólkurbúðina á fætur annarri þangað til hann fann GAJOL. Svo vonandi kemst ég í stuð...vildi samt að ég ætti nýtt hár eins og Rakelin mín...habbbði því miður öngvan tíma til slíks dekur fyrir blót.

En svei hvað ég er samt sybbin. Erfinginn byrjaði kl. 04:33 í nótt "mamma, er kominn dagur" og svona gekk þetta á klukkutíma fresti. Ég var ekkert að tapa mér. Afleiðingarnar: ég er tussulegri en andsk...í dag hehe. Gajolinn reddar þessu samt alveg áreiðanlega....er haggi :)

....og já takk. Ég þygg stóra manninn með feddd exxxx....strax í gær :)

~Ellan~ kl. 2:28 e.h. © ::

::


fimmtudagur, febrúar 02, 2006

::O JÆJA::

Leikurinn búinn og svo fór sem fór. Oggopínkupons súr, en það þýðir ekki neitt. Þeir hafa staðið sig eins og hetjur þessar ´sssskur. Tröllið mitt stóð sig vitanlega vel...eins og alltaf hehehe. Hér er partý í vinnunni og ég sit hin fúlasta inni í horni. Enda þyrstir mig hvort sem er ekki í þessar veigar sem eru í boði. Er að spara mig fyrir lau. Annars er ég eiginlega í mínus stuði fyrir þetta blót, eigi líst mér á, en það verður samt skundað í mjólkurbúðina á morgun.

Samspilstíminn gekk vel. Hjartað var samt í brókunum á meðan á stóð, en Ms Sigurgeirsdóttir sagði að það hefði ekki heyrst. Ég hefði spilað eins og engill tíhí. Svo sendi ég inn umsókn fyrir næsta haust, og krosslegg fingur um að ég komist að.

Jæja, held ég sé komin með rugluna. Ætla heim og fara úr pinnahælunum og í puma skónna áður en haldið verður til vinnu í kveld....

Au revoir :)

~Ellan~ kl. 6:26 e.h. © ::

::