| ............................. |
|
SPRELLAN
|
|
::SYND:: Ákvað í dag að athuga hvort að ég væri ennþá synd, hef sko ekki farið meter síðan ég rétt svo hlunkaðist fimmhundruð metra í júní á síðasta ári. Ég fékk mjög svo blíðar móttökur hjá starfsmanni íþróttamiðstöðvarinnar, en hann var farinn að hafa áhyggjur af því að þau hefðu e-ð móðgað mig. Undarlegt hvað ég kæmi sjaldan hehehe. Ég lýsti yfir áhyggjum mínum yfir því að ég væri efins um sundhæfni mína, og þegar starfsmaðurinn var búinn að lofa því að fylgjast með mér með viðeigandi varrúðarráðstöfunum var haldið af stað. Í ljós kom hins vegar að þetta var bara pís of keik, hætti þegar ég var búin að synda 2,6 km og blés varla úr nös. Dásamlegt alveg hreint....þangað til ég leit í spegil. Líkaminn var ekki alveg að höndla klórinn eða e-ð, ég var öll út í svona líka fögru ofnæmi hehe. Núna er bara að fara oftar og venja kroppinn við, það er nú einu sinni að koma sumar og svona. Svo fór ég til ma&pa í dag. Tók systur mína í tónfræðikennslu, ég lærði ýmislegt sjálf sem ég var búin að gleyma, sem var vel. Vitanlega tókum við líka aðeins í píanóið. Þetta var notalegur dagur, fyrir utan leikinn. Ekki nema von að hann fór sem fór. Íslendingar orðnir helst til kokhraustir blessaðir. Jæja, húsvörðurinn kallar. Það á að flatmaga fyrir framan imbann í kveld wúhúhúúúú ~Ellan~ kl. 8:39 e.h. © :: ::EM...:: ...í handbolta hófst í gær. Hjartað í mér var farið að slá fremur ört og prjónfestan orðin skuggalega föst á smá kafla (þegar machoman var hvíldur), en þetta reddaðist :) Annars er ég ekkert voða bjartsýn á leikinn í dag, Óli Stefáns ekki með og danski markvörðurinn er nú bara ekki mennskur. En ég vona að þetta fari allt saman vel, ella er mér hætt við að fara í e-ð Kenny G þunglyndi, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum hehehe. ...jamm, og svo er ég að fara í samspilstíma í næstu viku. Hvað gerir maður ekki fyrir gamla kennarann sinn og litlu sys. Finnst þetta samt svolítið skrítið, fara í spilatíma á gamals aldri, en ég verð að undirbúa mig. Ég hef nefnilega tekið þá ákvörðun að byrja aftur í tónlistarskólanum næsta haust ræræræææ... ...jæja, best að fara að koma erfingjanum til föðurhúsanna og undirbúa sig fyrir leik. ~Ellan~ kl. 5:13 e.h. © :: ::"ERTU...:: ...hætt að éta. Þú ert að detta í sundur" var skotið á mig í gær. Ég rauk því heim á vigtina vongóð um að loksins í maaaaarga mánuði hefði helv...vigtin farið niðurávið, en viti menn...ég hef þyngst síðan ég steig á hana síðast. En hey það er gott að vera fitubolla svo ekki ætla ég að kvarta :) Hvað um það. Ég kom til míns heima í gærkveldi eftir nokkurra daga fjarveru. Tilefnið var ráðstefna og menningarreisa, með ma, pa, glingló og erfingjanum. Fórum í bíó og á Kalla á þakinu. Þessi sýning var tær snilld hehe. Jamm, og svo eyddi ég laugardagskvöldin með Axel Noa og móður hans. Töffarinn er inni á spítala :( Annars var bara fínt að fara til höfuðborgarinnar, merkilegt nokk. Keypti mér nú ekki mikið merkilegt annað en spilabækur og jú, svona líka bleikt og fínt armband fyrir ippann minn. Núna get ég hlaupið á trilljón á brettinu og slepp við að sækja hann á ehmmm...áhugaverða staði hehehe. Svo er ég bara í undarlega góðu skapi...samt er mánudagur...heimili mitt er á hvolfi og allt á vonarvöl...bwahahahahaaaaa ~Ellan~ kl. 5:09 e.h. © :: ::VIKAN....:: ....er liðin og þvílíkt sem hún búin að vera dásamleg :) Ég fór hamförum í ræktinni og komst að því að kallarnir eru orðnir eftirbátar mínir á brautinni múahahahahaaaa. Meistarinn tók líka púlsinn og leiddi það í ljós að ég er í toppformi, svo hef ég fengið nýtt viðurnefni "Ella sterka", það er doldið svalt finnst mér. Eðlilegt viðurnefni fyrir Sprelluna, í ljósi kögglanna hehehe. Ég fór líka hamförum í fataskápnum hjá mér, núna er fuuuuuullt af plássi fyrir ný föt. Eins gott, nýji H&M listinn er lagður af stað norður fídddfíjúúúú. Jamm, og svo hringdi ein vinkona mín í gær, alveg uppgefin eftir að hafa dreymt mig 3 nætur í röð. Fyndnir draumar, gæti alveg hugsað mér að sumt myndi gerast hehehe. Annars var hún e-ð frekar pirruð yfir þessum ágangi í mér, gott áana!!!! ....jæja annars er margt framundan um helgina, svo sem
Jæja, þetta dugar ekki. Á eftir að fara í mjólkurbúðina, skila bílnum, sjæna mig til og svona....ég hef 32 mínútur til stefnu ræræræræææææ ~Ellan~ kl. 4:51 e.h. © :: ::TRALLALAAAAA:: Í dag er sunnudagur ef þið skylduð ekki vita það hehe og ég er búin að vera svooooo dugleg um helgina. Á laugardag, sem og sunnudag, fór ég í mitt besta púss og málaði eins og ég ætti lífið að leysa. Þess á milli passaði ég annarra manna börn, gekk frá jólaskrautinu og já svo lagði ég land undir fót (vitanlega í fögru NOKIA stígvélunum mínum) og skoðaði hænsna-, dúfna- og andabúskap.....Sveiiiiii það er bara allt búið að vera að gerast. Óvæntir, en kærkomnir, næturgestir létu líka sjá sig, ég skal segja ykkur það :) Ble ble..... ~Ellan~ kl. 7:03 e.h. © :: ::I´M BACK:: ...og slíkt gefur tilefni til örbloggs. Undanfarið hef ég:
....og nú er ég að spá í að gera nokkuð sem ég hef ekki gert í maaaaaaaaarga mánuði ~Ellan~ kl. 4:53 e.h. © :: |