| ............................. |
|
SPRELLAN
|
|
::ÉG ESSSSSKA ÞIG:: "Ég essssska þig, Ella" var sagt af einlægni við mig um helgina. Ég fór næstum að grenja þetta var svo sætt :) Þessi herramaður á sko eftir að bræða þær nokkrar í framtíðinni, svo mikið er víst. Annars er allt déskoti fínt að frétta. Smá vinnuálag í upphafi nýrrar viku, og á sjálfsagt eftir að vera strembið fram að helgi, en maður bítur á jaxlinn. Jólafríið alveg að bresta á og svona. Síðan vann ég í "happdrætti" í dag. Get ekki alveg ákveðið hvort að ég splæsi í nýjan sjónvarpsskáp, eða úlpu. Held samt að upplífgunar stofunnar sé mikilvægara, og þó...kemur í ljós. Og já...sei sei sei. Haldiði ekki að meistarinn hafi stungið mig með nálum í gær. Þetta var fyndið. Hann hefur einstakt lag á að láta mig gera alls konar vitleysu. Honum fannst þetta nauðsynlegt til að slappa af eftir álagið. Svolítið spes að liggja þarna og slappa af.....með NÁLAR skagandi út í loftið. Uppáhalds fyrrverandinn (kannski af því að hann er sá eini múahahahahahaaaa) hafði svo samband í gær. Hann hafði fengið tiltal af lögreglunni, þegar hann sat í sakleysi sínu að snæðingi hjá Sveinssyninum. Tiltalið fékk hann fyrir tilstilli erfingjans, sem upplýsti það víst í lögreglufræðslu hjá menntastofnun staðarins, að ruslinn spennti aldrei beltið, keyrði stundum of hratt og notaði aldrei hjálm á vélsleðanum. Hann er náttúrulega bara snillingur, sko erfinginn :) Jæja...nóg í bili.... ~Ellan~ kl. 7:11 e.h. © :: ::KVÖRTUN:: Jebb, ég fékk eiginlega kvörtun í dag. Ég væri ALLTAF í góðu skapi hehe. Var í afar góðu skapi fyrir í ljósi þess að ég bætti mig enn og aftur á hlaupabrautinni (nú skaltu fara að vara þig, kæri meistari). En þetta kætti lund mína enn frekar. Þá hringir litli jón...og fer að ræða ákveðin mál...og við það fór ég í fúlt skap. Sko...JÓN...ég meina litli jón. Þetta málefni verður ekki rætt frekar innan félagsbúsins...því það er tabú og hananú!!! Ég er sem betur fer aftur komin í gott skap :) Ég hef þann djöful að draga að ég get sjaldnast verið fúl lengi. Hugsa að þessi fíla hafi enst alveg í 5...ok...10 mín hehehe. Annars var helgin ljúf...þurfti reyndar ekki mikið að hlaupa eftir þessum hrossum. Þegar ég mætti voru þau svo glöð að sjá mig að þau hlupu til mín, eða svona lá við. Djöfull langaði mig að skvera mér bara á bak...hvað eridda með mig og sveita þetta og sveita hitt. Sveiattann...er ekki alveg að lítast á þetta. Jamm og svo var náttúrulega snilldin eina að fara að stórbýlinu í LandRovernum. Við erum sko laaaaaaangflottust á honum bwahahahaha Svo langar mig bara að deila með ykkur þeirri staðreynd að ég fer í jólafrí 16. des og mæti ekki aftur til vinnu fyrr en 5. jan 2006 spáiði í því... Þangað til næst.... ~Ellan~ kl. 4:42 e.h. © :: ::Í DAG ER...:: ...föstudagur og er það vel. Fékk feeeeitan móral á mánudagsmorgunn þegar blessunin hún Sigrún mín fór að segja mér frá sumu sem ég gerði og mundi svooooo ekki eftir því. Svo fór ég í ræktina...pústaði aðeins...og ákvað að ég nennti ekki að eyða tíma mínum í e-n móral og hananú!!!! Svei hvað maður var nú skuggalegur samt...ræræræææ Jamm og svo er ég búin að vera "einstæð 2ja barna móðir" síðan á mánudaginn. Gamla settið komið til Florida og litla sys hjá mér á meðan. Þar er heitt...og ódýrt að versla...ég öfunda hehe. Annars er ég AFAR spræk. Ýmislegt spennandi að gerast. T.a.m. er ég að fara að smala hrossum í fyrramálið, djö verður það áhugavert. Eins gott að þetta er alveg út í afdal!!! Engu að síður vona ég að ég þurfi að hlaupa miiiiikið. Komst ekki í ræktina í gær og heldur ekki í dag. Það heldur í mér lífinu að ég var svaka dugleg á miðvikudaginn, setti persónulegt met á brautinni og eftir lyftingarnar loguðu upphandleggsVÖÐVARNIR (skvabbið er sko á hröðu undanhaldi og kögglarnir búnir að taka yfirhöndina múahahahahahaaaa). Jamm og svo eru náttúrulega bústörfin að stórbýlinu um helgina (ég er nokk viss um að ég fæ e-ð sveitapíulegt í jólagjöf frá sumum þessi jólin hehehe). Ættfaðirinn er búinn að gera við LandRoverinn, svo félagsbúið strunsar í þeim eðalkagga til þeirra athafna í vetur. Hver þarf á Ford 350 að halda, þegar þessi græja er til. Haaaa...mér er bara spurn (mig langar sko "ekkert" í Ford 350, og finnst "ekkert" gaman að keyra svoleiðis sveeeeeei) :) Hey já...haldiði ekki að ein rolluskjátan heiti SPRELLA. Hún er æði æði, ótrúlega frek, kann sig samt, ótrúlega fríð og með dökkt "hár", just like me aaaaaaa, æm verrrí prááád of itt !!! Jæja....ég er farin heim að undirbúa kveldmat, brjóta saman tonn af þvotti og ýmislegt fleira ~Ellan~ kl. 4:59 e.h. © :: ::RÆRÆRÆÆÆ...:: Helgin fór dulítið öðruvísi en ég ætlaði. Fyrir helgi ætlaði ég sko EKKI á þetta hestamannaball í gær. Hvað gerðist??? Við píurnar tókum skyndiákvörðun og drifum okkur á ball....hott end swííít flaskan sem átti að koma með á Bifröst kom líka með (bjútíbombur...ég kaupi bara nýja). Komum ekki á ballið fyrr en hálftvö og tjúttuðum eins og við ættum lífið að leysa. Allt í einu uppgötvaði ég að Sveinssoninn var farinn heim að lúlla (surprise...surprise), svo við Hjöddan smöluðum saman liði til að fara heim að vekja hann. Vorum sko búnar að fá leyfi til þess hjá konunni hans, henni fannst þetta nett fyndið og hvatti okkur til dáða. Strunsuðum heim til hans, ábyggilega svona 10 stk, og að því loknu var farið í partý. Jeeeee....ég fór í eftirpartý....drakk Jamison, æsti einn svolítið upp hehe, faðmaði klósettið og ýmislegt fleira. Ég kom ekki til míns heima fyrr en undir morgunn. Dagurinn í dag er svo búinn að fara í þreytu dauðans, og ekki laust við að það þjaki mig svona hefðbundinn þynnkumórall...hann fylgir víst stundum með. En mikið djöööööö...var gaman. Við skemmtum okkur konunglega, og vitanlega skemmtum við líka öðrum. Þetta djamm fær fullt hús stiga svei mér þá.... Over and out.... ~Ellan~ kl. 6:16 e.h. © :: ::HELGI.....:: ....og nokkrar staðreyndir því tengdu: * Ég er í púkaskapi... * Mig langar að gera eitthvað af mér (ekki á Hvamms, veit að ég er þrjósk hehe)... * Styttist í að ég verið einstæð 2ja barna móðir.... * Styttist í djamm... * Ég er komin í jólaskap, ætla að kaupa mér nýtt jólatré, og langar að fara að skreyta höllina með jólaljósum, föndra jólakort, kaupa mér jólagardínur og líka jólakjól...jólajólajóla wííííí * Fullyrti á kaffistofunni í dag að næsti kærasti yrði sko víst hestamaður (litli jón, hvernig var með þennan danska, haaaaaaaaa).... * Svo sakna ég rolluskjátanna.... .....og margt fleira..... Annars hef ég margt að segja sem er óþarfi að ljóstra upp... Varist þið lömbin mín á að verða á vegi mínum í ljósi púkaástandsins....og svakalega er hann fallegur....og við líka :) Góða helgi og þangað til næst.... ~Ellan~ kl. 4:13 e.h. © :: ::ÉG ER...:: ...fúúúúúúla, og þá meina ég sko FÚÚÚÚÚÚLA skvízzzan í dag. Um huga minn þjóta öll heimsins blótsyrði non-stop. Ég fór í helv...öxlinni í morgun. Alveg eins og um árið, sem leiddi til ótrúlegustu læknisheimsóknar sem ég nokkurn tíman lent í. Fór inn á læknastofuna og eftir skoðun afleysingalæknisins sagði hann að fyrst fengi ég töflur og ef það dygði ekki yrði hann að sprauta mig. Svo þegar ég labba út, kallar hann á eftir mér "ég hlakka til að SPRAUTA þig"...við erum að tala um perra dauðans yuuuuuuk. En sumsé, ég þoli ekki þetta ástand. Get ekki lyft =ég er fúlari en allt fúlt, en þetta lagast vonandi fyrr en síðar. Á nefnilega ennþá dópið sem perralæknirinn lét mig fá um árið...og svo eru sumir búnir að lofa mér nuddi :) Annars lenti ég í undarlegum aðstæðum um daginn (virðist vera alveg ótrúlega dugleg í því, hverju á það að fyrirstilla hehe). Hitti að máli mann sem var að tala í símann. Nema hvað, hann segir við viðmælanda sinn, "hér er nú komin ein, sem þú þekkir nú tútturnar á betur en margur annar". Ég segi við manninn "er þetta XXXXXX????", og viti menn. Ég hafði rétt fyrir mér....er þetta eðlilegt??? Er nema von að maður spyrji hehehe.....en svei, lund mín er að léttast wíííííí. Enda eðlilegt. Styttist í djamm með þessari , þessari og síðast en ekki síst þessari. Mér segir svo hugur að þetta verði skuggalegt hehe... Þangað til næst.... ~Ellan~ kl. 4:06 e.h. © :: ::JIIII....:: ....ég var næstum því farin á rjúpu, sko RJÚPU í dag!!!! Fékk boð þess efnis, en eftir að hafa afþakkað, hélt ég áfram leiðar minnar með kökk í hálsinum yfir að hafa ekki komist. Ég meina, hvað er eiginlega í gangi, maður spyr sig??? Jæja, ég ætla að skunda heim til erfingjans. Erfingjans sem langar í MUGISON og hringdi í móður sína um kaffileytið í dag til að spyrja hvort að hann mætti fá sér sviðasultu hehe. Svo vall upp helv....góður punktur upp úr honum um daginn sem tengist sms auglýsingu símans þegar piltur einn situr snöktandi í sófa sökum þess að kærastan sagði honum upp. Ekki hafandi eftir á þessum vettvangi, en áhugasamir hafið bara samband....múahahahahaaaaa En ég var samt alvarlega að spá í að fara á rjúpu.....svei :) ~Ellan~ kl. 4:36 e.h. © :: |