| ............................. |
|
SPRELLAN
|
|
::FERÐASAGAN Í ÖRMYND:: Dagur 1: - Tveggja tíma seinkun á vélinni - Ég varð að taka beltið af mér til að komast í gegnum öryggisvörsluna (hvað ætli það verði næst???). - Flugvöllurinn er orðin hommanýlenda - Þekktum aðstoðarflugstjórann. Hann var eitt sinn mér ætlaður...hann er ennþá kjútípæ (og ég hef séð hann í mjög annarlegu ástandi)...njomm njomm "slef slef". Stelpurnar köstuðu á hann kveðju, ég tók þetta á kúlinu :) - Gistiheimilið reyndist vera herbergi inni á dönskum hjónum. Húsið var æði, stiginn var æði, rúmin voru æði, herbergið var æði, staðsetningin var æði og hjónin voru æði. Dagur 2: - Sofið út. - Strunsað á strikið. - Konan sem lifir í synd, var dugleg að versla. Ég öfundaði yfir dugnaðinum, en ákvað samt að kaupa mér smá til að halda á einhverju heim. Gifta konan var líka spök í versluninni. - Ég sá tilvonandi Puma skóna mína og BLEIKU Puma peysuna mína...ólgeymanleg stund :) - Uppgötvuðum að allt er lokað á sunnudögum í Köben. Næsta dag skyldi vaknað snemma og vera skipulagður. Dagur 3: - Keypti PUMA skóna, bleiku PUMA peysuna og eina hvíta PUMA peysu (vitanlega með bleikum stöfum), restin er í móðu vegna alsælu hehe. Man reyndar að ég stóð inni í H&M með vinstri höndina útrétta og raðaði svo á handlegginn fötum...á MIG tíhí... - Skriðum inn á Hard Rock, algjörlega orðnar orkulausar eftir daginn...skriðum svo upp í rúm og fengum okkur bjútíblund um miðjan dag vegna átakanna hehehe. Dagur 4: - Sváfum út. Hittum frænku konunnar sem lifir í synd og fengum okkur svo dásamlegan mat á Zirup að ég fæ enn vatn í munninn þegar ég hugsa um hann. Mikið spjallað og hlegið. - Fundum eina opna búð, sem bjargaði deginum. Keypti mér dásamlega inniskó, I lúv them, lúúúúúv them. - Löbbuðum Istegade, minnir mig að hún heiti. Gatan með skuggalega fólkinu og hjálpartækjabúðunum. Dammmnnnn þær voru lokaðar hehe. Dagur 5: - Nú var búið að skrifa lista, og skipuleggja áður en hafist var handa. - Keyptar voru aukatöskur til að koma varningi til síns heima. - Slappað af og borðað Snickers Dagur 6: - Slappað af áður en haldið var af stað út á flugvöll. - Vorum teknar með yfirvigt í fyrsta skipti á ævinni (en vitanlega alltaf verið með yfirvigt). Helv...tæfan sem tékkaði okkur inn!!!! - Ætlaði að kaupa mér Den Store Dag á dvd (bara fyrir litla jón), en var ekki til á flugvellinum. Varð geðveikt fúl. - Vorum blikkaðar af flugþjóninum sem fylgdi okkur heim yfir fjöll og fyrnindi (þessi sem flaug með okkur til Köben var svooooo pottþétt ekki straight) á leiðinni inn í vél. Það var nett fyndið, enda maður ábyggilega á sextugsaldri. Svo sagði hann nokkuð við mig í vélinni, sem ég kýs að hafa ekki eftir bwahahahahaha. Jæja, þetta var kannski ekki svo mikil örmynd. En svona fór nú um sjóferð þá. Núna ætla ég að fara heim og bíða eftir að móðursystirin klári að vinna. Við eigum nefnilega vaktina að stórbýlinu í kveld, litli jón er að fara út að skemmta sér!!! Smá vonsvikin með að veðurspáin hafi ekki gengið eftir því við frænkur sáum fram á miklar svaðilfarir við að komast þangað hehe. En já, fyrst að ná í nýja sálardiskinn minn, wííííííí..... Þangað til næst.... ~Ellan~ kl. 5:51 e.h. © :: ::JÁ JÁ...:: ...það styttist í ferðasöguna, hvur veit nema ég skelli henni inn um helgina. Erfinginn verður í föðurhúsum og ég veit satt best að segja ekki hvað ég á að taka mér fyrir hendur. Langar í útilegu, en gengur víst ekki alveg m.v. tíðarfar. Langar að detta í það, en ekki á Hvamms. Langar að ganga á fjöll...Langar á rjúpu (ég veit, ég er að tapa mér...). Langar á kajak. Langar á snjósleða (spurning um að stela sleða kökumannsins, kannski vill kökumaðurinn bara gefa mér hann hehehe). Langar í nýja diskinn með Sálinni. Langar bara eitthvað, EITTHVAÐ!!!! Annars fékk ég geðveikt "kikk" á mánudaginn. Meistarinn var búinn að setja mér fyrir ákveðinn kílómetrafjölda á brettinu sem ég þyrfti að vera búin að ná fyrir 20. des. Nema hvað ég var í stuði, og lauk þessu bara af 24. okt íhaaaaaaa og bætti m.a.s. 40metrum við, maður þarf að vera viss. Mér leið svoooo vel. En nú er ég með strengi í mínum stælta sitjanda. Ekkert kinkí þar í gangi, prufaði bara eitthvað stígvél á þriðjudaginn og fékk svona líka þessu fínu strengi. I lúv it...lúúúúúúv it :) Núna er svo bara að hysja upp um sig brækurnar og ná köllunum í kílómetrafjöldanum, er víst ekki langt síðan þeir náðu því sem ég náði á mánudaginn fíddddfíjúúúúú (þess má líka geta að í síðustu mælingu hafði ég bætt þol mitt um 42% spáið í því), en þeir eru víst búnir að bæta aðeins við sig dónarnir... Svo er nú ekki nema von að ég hafi húkt aðeins inn í herbergi í afmælinu, þetta var vandræðalegra en ég átti von á, en líka skemmtilegt "blinkeríblink" hehe. En ég var nú komin framm undir lokin...og var m.a.s. með sumum inni í eldhúsi (ásamt Unnsteini reyndar) í smá stund. Dugleg, ekki satt :) Hey já, Fúúútböllers wæves að byrja í kveld. Þeirra hefur verið sárt saknað. Stórgott sjónvarpsefni þar á ferð, stenst næstum samanburð við bóld end ðí bjútífúl hehe. Allir að setjast fyrir framan imbann kl. 21 :) Þangað til næst... ~Ellan~ kl. 4:30 e.h. © :: ::KOMIN HEIM:: Jebb, ég er komin heim. Ferðasagan kemur síðar.....að vanda skrautleg. Við mæðgin erum svo að fara í afmæli niður í Bgnes á morgun. Sumir verða víst líka þar hehehe...Annars er ég í fáránlega góðu skapi, og gott ef mig langar ekki bara til að hrynja í það, en það verður að bíða betri tíma. To be continued :) ~Ellan~ kl. 4:46 e.h. © :: ::KÖBEN:: Jæja, lömbin mín og aðrar fullvaxta rollur (verð að viðurkenna að þessari setningu er stolið, en mér finnst hún bara viðeigandi hehehe). Ég fór í niður að stórbýli í Fitjárdalnum á sunnudaginn, í þeim tilgangi að vigta rollur. Hélt ég myndi sleppa og virða bara þennan merkilega atburð fyrir mér.....en ég slapp sko ekki svo vel. Auðvitað fór ég í actionið...fannst það dásemdin eina...en eymingja lærin mín stæltu. Þau státa af svo hrikalegum marblettum, að ég þori ekki að hátta mig á kveldin fyrr en ég hef slökkt ÖLL ljós, ella fengi ég martraðir dauðans. Hvað um það. Ég ætla bara að kveðja. Píuferðin hefst í fyrramálið. Planið er að kippa Borgarnespíunni upp í á miðri leið, því næst kippa höfuðborgarpíunni upp í og skunda beint á Subway njomm njomm. Að því loknu verður haldið straight to Keflavik airport. Tékka sig inn, upp rúllustigann og beint á barinn :) Segi ekki meira í bili...já, og ég ætla að óska ammlisbörnum laugardagsins innilega til hamingju. Svei, hvað þeir eru orðnir gamlir símamaðurinn og tóbakshausinn, en segi ekki meir...ég skála bara fyrir þeim í Köben. Bleble..... ~Ellan~ kl. 4:45 e.h. © :: ::KLUKKIÐ:: Jæja, það er víst komið að þessu klukki. Dæræræræææææ...svei þér deeze að gera mér þetta... 1. Ég á oft auðveldara með að skilja flóknari hluti en hina einföldu. Minnist ég þess þegar Vilhjálmur nokkur Bjarnason, fjármálaspekúlant með meiru og kennari í HÍ skrifaði á prófið mitt "Það er nú helvíti hart að geta ekki einfaldasta dæmið á prófinu!!!". Var hann með því að vísa til þess að dæmið sem allir hinir gerðu rétt, gerði ég vitlaust hehehe, en öll hin dæmin gerði Sprellan rétt. 2. Ég er rosalega rík. Ekki peningalega, þó að ég sé nú háskólamenntuð í þeim fræðum ræræræææ, en ég á alveg frábæran son, þar af leiðandi er ég alveg moldrík :) 3. Ég fer í ræktina í hádeginu, og finnst það DÁSAMLEGT. 4. Eitt sinn, þegar ég áttaði mig á því að ég var orðin hrifin af ákveðnum manni, varð mér svo um og ó...að ég bakkaði í hríð á brunahana, ábyggilega 50 metrum frá sjálfri heimkeyrslunni. Eftir á að hyggja, hef ég trú á að þetta hafi verið skilaboð frá manninum þarna uppi hehe. Tek meira mark á honum næst... 5. Ég missi smá tímaskyn þegar ég fer í sturtu...en þegar ég fer í bað tapa ég því algjörlega (fer ekki upp úr fyrr en ég er búin að hita það upp nokkrum sinnum hehe). Eitt sinn setti litli jón mér það takmark, að ég mætti ekki vera lengur en 10 mínútur í sturtu. Ég hélt að þetta væri nú ekki mikið mál, og dreif mig í sturtu, rakaði, skvetti á mig body lotion og hugsaði sem svo að ég hefði ekki verið meira en 5 mín að þessu enda rösk með eindæmum við þessa athöfn. Viti menn...11 mínútur...svei. Jæja, svona er það nú :) ætla samt ekki að klukka neinna annan. Geri ekki vinum mínum þennan óskunda hehe. Og afsakið kæri yfirmaður, mest krassandi sögurnar mun ég ekki skrifa hér inn. Verður að athuga að mínir kæru foreldrar eiga það til að kíkja á síðuna hehehe Og það er vika í Köben....íhaaaaa ~Ellan~ kl. 10:05 f.h. © :: |