.............................
SPRELLAN


:: Um Elluna ::
Nöfn:Ellan, Sprellan, Maddsjóvúmman
Lýsing:Góóólden bjútífúl
..eitthvað meira sem þið viljið vita?


Bloggin!
Klobbarnir
Deeze
Nitta
Ínan
Alda vöðvafjall
Aldísin Bjé
Amalía
Anítan
Bernííí Bráááán
Brynjan
Emm
Erlan
Eydís
Gurrý
Haddý
Hafdís
Helenan
Helga Villa
Hillan
Hjöddan
Hófý
Kengúran
Kiddý
Kollan
Kristínin
Prinsessan
Rakelin
Rikkarinn
Rósan
Sólrún


Gamalt!
03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 07/01/2006 - 08/01/2006 08/01/2006 - 09/01/2006 09/01/2006 - 10/01/2006 10/01/2006 - 11/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 08/01/2007 - 09/01/2007 09/01/2007 - 10/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 07/01/2008 - 08/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 10/01/2008 - 11/01/2008 11/01/2008 - 12/01/2008 12/01/2008 - 01/01/2009 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 03/01/2009 - 04/01/2009 05/01/2009 - 06/01/2009 06/01/2009 - 07/01/2009 07/01/2009 - 08/01/2009 08/01/2009 - 09/01/2009 07/01/2011 - 08/01/2011 09/01/2011 - 10/01/2011 10/01/2011 - 11/01/2011
mánudagur, ágúst 29, 2005

::DÚDÍRÚÚÚÚ::
Í dag er mánudagur, og þá er sko tími til að gleðjast. Tilefnin eru margvísleg. T.a.m. kemur erfinginn heim í dag, íhahahahahaaaaa, verður dásamlegt að fá hann heim eins og alltaf. Svo er vika í sprikl hjá Mikka, Íþróttamiðstöðin verður ekki lengur mitt annað heimili, heldur SJÚKRAHÚSIÐ, spookie!!!! Hef ákveðið að ræktin verði fyrst og fremst til að koma mér í gott form (þangað til meistarinn segir að fituprósentan sé 200% yfir meðallagi hehe). Slíkt líkamlegt atgerfi er nauðsynlegt í ljósi þess að til standa ýmis verk, svo sem girðingavinna og fleira, að stórbýlinu Grænahvammi. Litli jón kvartaði yfir því í gær að ég kæmi ekki að hjálpa sér að reka niður staura en ég skýldi mér á bakvið lélegt form. Stundum getur maður verið ótrúlega góður í að finna sér hinar ýmsu afsakanir. Litli jón er líka búinn að finna mann fyrir mig...svei mér...tjaaaaaa...hann býr m.a.s. í Danmörku, sem er STÓÓÓR bónus :)

Jamm...og svo er það kökumaðurinn. Þegar ég fór til höfuðborgarinnar bankaði víst upp á hjá mér maður, með KÖKU. Jebb...ótrúlegt en satt. En í ljósi þess að ég var ekki heima, át hann sjálfur kökuna. Hann hefði nú getað misnotað sér aðstöðu sína (sem hann gerði hvort sem er) og sett hana inn á eldhúsborð...en niiiiii...dóninn :/

Annars er ekki mikið að frétta. Nú fer að fara í hönd vinnutörn dauðans...ætla reyndar að gefa mér tíma til að fara í réttirnar með soninn. Hann getur ekki beðið eftir þeim herlegheitum. Ég ætla náttúrulega að draga nokkrar kindur, enda stóð ég mig með eindæmum vel í því síðastliðið haust (eins og þið munið kannski var það þannig að litli jón ætlaði að halda í rolluna, sem hann gerði náttúrulega ekki, svo ég lenti í smá svaðilförum eftir að ég var komin á "bak"). Til að ná markmiði mínu að draga fleiri rollur en í fyrra, sem var ein, ætla ég að taka með eitthvað góðgæti handa rolluskjátunum til að lokka þær til síns heima, þar sem klofstærð mín leyfir eiginlega ekki svona svaðilfarir hehe

Að lokinni vinnutörn dauðans verður vitanlega lífið að nýju dásamlegt, er reyndar alveg dásamelgt þó ég þurfi að vinna mikið. Þá förum við skvísurnar til kóngsins köben...og þá verður nú tjúttað og trallað...farið í H&M ogogogoooooogggg íhahahahahaaaa ég hlakka til njomm njomm. Enda aldrei að vita nema...tíhí....

Jæja?maður á nú ekki að eyða hádegishléinu sínu í svona vitleysu. Over and out...eða over og ud :)

~Ellan~ kl. 12:15 e.h. © ::

::


laugardagur, ágúst 20, 2005

::ÉG ER BÚIN AÐ...::
"eignast" barn, tíhí. M eignaðist gullfallegan dreng á mánudagsmorgun. 14 merkur og 51 cm, og hann er ÆÐI ÆÐI. Innilega til hamingju með gripinn kæra vinkona :)
Félagsbúið hélt svo til höfuðborgarinnar á þriðjudaginn, og kom ekki heim fyrr en í gær. Ég fór af stað með þau háleitu markmið að kaupa mér sjónvarpsskáp og nýja cameru. Hvorugt var til, en ég borgaði cameruna þó og fæ hana vonandi í næstu viku....íhahahahaaaa....ég hlakka til :) Mér tókst samt að kaupa mér ýmislegt annað ó já....
Úfff....svo lenti ég í svakalega vandræðalegum aðstæðum í Kringlunni. Erfinginn sá þar "mann" einn, sem ætlar að verða kona, eða er kona....eða úfff....hvernig er best að útskýra.....og með e-m félaga sínum, eða vinkonu sinni....eða sko einhvern sem er ekki alveg viss hvort að hann vill vera. Kjálkinn á syninum hrundi niður á miðja bringu, litli jón kippti í hann, og það var sussað....svo kom bara "svakalega voru þessir menn skrítnir, af hverju eru þeir svona????" Hverju á maður að svara....rærærærææææ.
Jamm....hey....fjölskyldan stækkaði um 50% í ferðinni. Nú erum við orðin 3, sko ég, erfinginn og svo hún Tísta. Jebb...fjárfestum sko í páfagauk. Dásamlegt.....dásamlegt alveg hreint :)

Jæja....meira síðar....

~Ellan~ kl. 6:57 e.h. © ::

::


sunnudagur, ágúst 14, 2005

::ÞETTA BLOGG...::

...er tileinkað henni Dísu minni í Borgarnesi og móður "tíhí" Klobbans. Jebb...ég er lifandi...meira að segja alveg sprell...enda ber Sprellan nafn sitt með réttu :). Þegar ég fer að hugsa málið hefur alveg fullt gerst síðan síðast...sem ég ætla minna að segja frá múahahahahahaaa. En ég er búin að vera iðin við kolann undanfarið í djamminu, og er það vel. Alltaf gaman að tjútta svolítið með öðrum klobbum og svona. Ég skellti mér á dansiball í gær. Píupartí var haldið í höllinni, þar sem dásamlegur bleikur píudrykkur var í boði. Dansiballið var í Víðihlíð með Á móti sól. Ég átti nú von á fleira fólki satt best að segja. Jafnframt átti ég von á því að við píurnar yrðum elstar á ballinu, en svo var nú aldeilis ekki. Það er svo sannarlega eitthvað til að gleðjast yfir. Þegar ég vaknaði í morgun, rifjaðist eitt atvik upp fyrir mér, sem ég á til með að deila með lesendum mínum. Við Nitta mín hlömmuðum okkur við Hvammstangaborðið, eftir skamma stund segir ung snót við okkur "fyrirgefiði, en mamma mín og vinkona hennar sitja hérna". Við svöruðum því til að við myndum færa okkur, kæmi móðir hennar til baka. Kurteisar sem við nú erum, vorum fljótar að láta okkur hverfa þegar móðirin kom til baka. Nema hvað...þessa ungu snót pössuðum við Anna Lára þegar hún var kornabarn... Þegar maður hugsar um þetta, verður ekki hjá því komist að hugsa til þess að samkundur ellilífeyrisþega séu kannski meira við hæfi en almennir dansleikir...en nóg um það. Dansiballið var með ágætum. Enn dásamlegra fannst mér þó að heyra söguna um hjásvæfu einnar vinkonu minnar...svei mér ef hún fær ekki bara dússsepwaaaa. Jæja, dagurinn í dag er nú bara búinn að fara í þessi "daginn eftir dansiball" verk (sund, hamborgaraát, ísát, miiiiiiikla cokedrykkju) þó það verði nú að segjast að heilsan er með miklum ágætum njomm njomm. Síðan er ég komin í vikufrí. Það er búið að skipuleggja það ítarlega af félagsbúinu, en það á að snúa sólarhringnum við, liggja í leti, fara til höfuðborgarinnar og þetta venjulega. Oggggg...ekki má gleyma að í fyrramálið, svona upp úr níu "eignast" ég barn tíhí... Það verður dásamlegt, enda er lífið hvort sem er dásamlegt "blinkeríblink"...

Sæl að sinni...

~Ellan~ kl. 5:15 e.h. © ::

::