| ............................. |
|
SPRELLAN
|
|
::LAUGARDAGUR, FRAMHALD:: Ogggg, Nitta og Deeza voru auðvitað líka að spila. Þær spiluðu eins og englar þessar elskur. Ekki nema von að þær séu vinsælar í spilamennskunni. Ég þekki þær líka voða vel, svo skárra væri það nú :) Glingló systir var líka að spila, og gerði þetta auðvitað vel eins og allt sem hún tekur sér fyrir hendur. Þess má líka geta að spilabókin var mín.... Jæja....potturinn bíður.....bleble ~Ellan~ kl. 4:32 e.h. © :: ::LAUGARDAGUR:: Jæja, það er víst laugardagur, en engu að síður hef ég verið við vinnu í dag. Fyrir utan smá "peek"rúnta í þeim tilgangi að sjá hvað eigendur/fylgifiskar húsbílsins fína hafa verið að taka sér fyrir hendur. Er sko verið að steggja suma....hehe....en misstum af því þegar hann var dressaður upp í bleikan kjól og svo sprautað á hann með brunaslöngu. Algjör bömmer.... Hvað um það. Píanoið er komið til síns heima....en það er alveg ótrúlega falskt. ÓTRÚLEGA falskt, nema ég kunni ekki að spila á það. Eins og sumir halda fram hehe. Falskt, eður ei, fagurt er það ó já. Mamma varð voða glöð við þessa fjárfestingu mína, enda dröslaði ég 3 höldupokum af spilabókum í höllina. Skil nú eiginlega að hún hafi verið smá "pirr pirr" yfir að ég hafi verið að láta hana geyma þetta hehe. Sonurinn var að spila á tónleikum í gær. Stóð sig ótrúlega vel, sló taktinn og vakti mikla kátinu þessi elska. En eins og áður sagði er laugardagur=vinnudagur=pottadagur. Ó jááááááá....við Dísa ætlum að athuga með pottinn. Notalegt verður það njomm njomm.... Þangað til næst...... ~Ellan~ kl. 4:25 e.h. © :: ::PIANO:: Ég er að fá PIANO norður í dag....tíhí....þetta er tær snilld. Henni Nittu minni datt í hug að auglýsa eftir piano-i og díllinn var sá, að ef ég vildi það ekki ætlaði hún að hirða það og ef að hún vildi það ekki, yrði kostnaðinum skipt í tvennt og piano-inu hent á haugana. En sumsé....er búin að sjá myndir af því og fagurt er það, ó já, háaldrað og hefur svo sannarlega lifað tímana tvenna. Svo á eftir að bera það í hús...áhugasamir hafi samband....hehe. Annars er að koma helgi og ég þarf að....duduruuuuuu.....vinna....og næstu helgi...og þarnæstu. Síðan ætla ég að taka mér laaaaaaaangt helgarfrí. Fínt að vinna svona um helgar, þegar helgarnar enda á því að skutlast í heita pottinn og fá sér öllara eins og síðustu helgi. Það var sko hipp og kúl.....er haggi deeze???? Jæja.....góða helgi (jesusss og gosssh.....2 pistlar á innan við viku.....ööööööössssss) ~Ellan~ kl. 4:07 e.h. © :: ::HVÍTASUNNAN:: Well....það er ehmmm....laaaangt síðan ég skrifaði síðast. Og m.a.s. styttra síðan ÞESSI skellti inn pistli hjá sér. Svo sem ekki mikið sem hefur gerst síðan síðast. Júmm...reyndar orðin aðeins eldri en síðast þegar ég dritaði orðum inn á síðuna og fékk FUUUUUUULT af ammlisgjöfum. Finnst dásamlegt að vera orðin....tja.....hundgömul og fá ennþá ammlisgjafir. Svei mér, ef ég fæ ekki bara fleiri gjafir núorðið en þegar ég var krakki, hehe. Jammm.....svo er ég víst ólétt (sögum ber ekki saman hvort ég á að eiga í vor, eða bara með haustinu, en það eru smámunir hehe), að fara að gifta mig og fá "innflytjanda". Ég ætla bara að koma mínum staðreyndum fram hér og nú. Ekkert af þessu er satt múahahahahahaaaaa..... En mikið svakalega varð ég pirró í vikunni....var að bjóða í dásamlegt píano á netinu á uppbod.is, en var alltaf toppuð.....ojjjjjj, hvað ég varð fúl. Ekki bara fúl heldur HUNDFÚL. Jæja....verð að fara.... A toute a l´heure (ef ég man þetta rétt) ~Ellan~ kl. 6:36 e.h. © :: |