| ............................. |
|
SPRELLAN
|
~Ellan~ kl. 6:07 e.h. © :: ::KUUUUULDI:: Jájá, ég er komin heim í þennan helv....kuldabola. Þetta var frábært. Við mættum síðastar inn í flugsstöð því frú Jensen þurfti að skrifa undir eitt stykki kaupsamning, sem var kolvitlaus þegar til átti að taka og gera þurfti allan upp á nýtt.....Ellan var þó salíróleg, en frú Jensen minna róleg. Þegar innritun var lokið, tók við gegnumlýsingin. Ellan þurfti að fara úr skónum til þess að fá fararleyfi. Tókum smá sprett í fríhöfninni, ekkert alvarlegan þó. Sá fegurasta karlmann sem ég hef á ævi minni séð í flugstöðinni, og fylgdi hann okkur yfir fjöll og fyrnindi, og þessi elska hugsaði gríðarlega vel um Elluna. Bauð henni mat og drykk og ég veit ekki hvað og hvað..... ****hvað hann var fallegur. Í flugvélina mætti líka karlmaður sem var pottþétt með varalit, og svo tókst honum að týnast í flugstöðinni í Alicante, og ég held það hafi líka verið hann sem gleymdist í Alicante á leiðinni heim. 2ja stjörnu hótelið vakti mikla kátínu þegar komið var ytra. Við eigum þá vafalaust eftir að sakna græna sófans sem hefur lifað tímana tvenna, enda frá sautjánhundruðogsúrkál. Legið var í sólbaði (þó að sumir sjái engan mun). Smá var verslað. Bjórar voru drukknir. Tár féllu....vegna hláturs. Þetta heppnaðist 100% ;) En þó að kuldi tæki á móti okkur við heimkomu, var gott að knúsa erfingjann. Ó já....og koma í höllina...og fá venjulegan mat...byrja aftur í heilsuátakinu... Svo hlakka ég mikið til í að fá mér í aðra tánna næstu helgi og tjútta á dansiballi með meistara meistaranna í íslensku skemmtanalífi = GEIRMUNDI (held að það sé réttast að fá sér í báðar tærnar). Svo verður innflutningspartý í nóvember (betra seint en aldrei), og svo kemur smá pása held ég barasta. Jæja, þangað til næst.... ~Ellan~ kl. 5:50 e.h. © :: ::HEITU LÖNDIN:: Jæja, Ellan er farin til heitu landanna. Hagið ykkur vel. Þangað til næst.... ~Ellan~ kl. 2:25 e.h. © :: |