| ............................. |
|
SPRELLAN
|
|
::FJÁRHAGSLEGA SJÁLFSTÆÐ:: Jæja, síðasta vika rann ljúft í gegn. Félagsbúið fór í réttir og ég var nú framan af mest upp á punt.....svo undir það síðasta var þess krafist að ellan drægi eins og eina til tvær rolluskjátur áður en heim væri haldið. Ég benti nú pent á að ég ætti engin stígvél og engar pollabuxur, en sú röksemdarfærsla þótti í hæsta lagi óeðlileg. Og þar sem ég kann stundum ekki á "nei-arann" í mér, lét ég slag standa, með það loforð uppáskrifað að ég héldi bara í annað hornið, og litli jón í hitt hornið. Svo var komið með eina, sem var afgreidd með dyggri aðstoð litla jóns. Enn þurfti ellan að aðstoða litla jón með eina brjálað rolluskjátu (ræræræ), og var þess krafist að nú skyldi ellan setjast klofvega yfir fórnarlambið. Þá leist ellunni nú ekki á blikuna, stóð stjörf, hristi hausinn í sífellu, benti á að hæð hennar væri ekki nema 154,5cm (og ekki gleyma þessum hálfa) og klofið eftir því. Enn dugði röksemdarfærslan ekki til (synd og skömm....), og lofaði litli jón að halda í rolluna og aðstoða elluna eftir fremsta megni. Og einföld sem ég nú er, samþykkti ég þetta. Skellti mér klofvega upp á rolluna, og rétt svo náði niður á jörðina, og fór á flug......því auðvitað hélt litli jón ekkert í rolluna. Engu að síður náði þó að halda mannorði mínu og halda mér á "baki" (rollugreyið sjálfsagt vorkennt eymingja konunni). Nú var ekki aftur snúið. Bóndagenin í ellunni voru uppgötvuð, og í framhaldi af því var hún var fengin í að reka þverárkindurnar afturábakogáframtilhægriogvinstrimillialmenningsogdilka, og hefur framkvæmdastjóri ungmennasambandsins uppfrá því kallaði mig BÓNDA. Réttardagurinn var svo toppaður þegar sonurinn kallaði á móður sína, eftir að heim var komið og tekið að rökkva, og sagði að það lægi sofandi maður út á gangstétt. "Bölvað bull er í þér drengur" svöruðum við frænkur, "jú víst, sjáðu bara". Fórum við þá út á stétt, og jú viti menn. Þar lá sofandi maður.....hafði ekki alveg meikað að labba nokkur skref í viðbót og fara heim til sín. Huxa sér, svona er Hlíðarvegurinn í dag.....reyndar var maðurinn víst í símanum, en sagan er allavega betri hins eginn, ekki satt?????? Og svo ég fari nú að koma mér að efni pistilsins.....þá fórum við deeze út í sjoppu í hádeginu (var sko grænfóður í matinn......og meðlæti). Þar var okkur tilkynnt að við værum taldar "fjárhagslegslega sjálfstæðustu kvenkostir" eða var það "fjárhagslega álitlegustu kvenkostirnir"hér heima í héraði, maniggi alveg......hafiði vitað annað eins. Finnst þetta frekar fyndið verð ég að segja. Og og og að enn öðru. Það var hringt í mig í dag, og ég spurð að því hvernig bíl ég æki um á. Eftir að maðurinn var búinn að stinga upp á að ég æki um á Opel Astra eða Daewoo (eða hvernig sem þetta er skrifað), missti ég allt álit á honum..... Jesússs og gossssh, frekar fyndinn náungi. En þar var á ferð bílasalinn hennar Nittu og ætlaði bara að pranga inn á mig bíl líka. Held ég klári nú að borga minn fyrst áður en ég sný mér að næsta. Sá reyndar bíl á bílasölunni hérna á Hvamms síðustu helgi, reyndar ekki rétti framleiðandinn, en ég slefaði engu að síður. Breyttur Nissan Terrano, rauður, og ægilega hentugur fyrir fjárhagslega sjálfstæða konu eins og mig. En þegar ég sá hvað gripurinn átti að kosta, komst ég aftur niður á jörðina....og ekki orð um það meir. Og að lokum, svo ég komist heim til að setja haughopparann í ofninn, þá er ég ásamt fríðu föruneyti bara að hugsa um að fá mér í glas....sem er eins ólíklegt og að fyrrverandi tilvonandi eiginmaður minn og hans frændi SLEPPI því að fá sér í glas. Og þar sem erfitt var að ákveða hvort kveldið yrði fyrir valinu, verður kannski bara skenkt í glös tvö kvöld í röð....njommnjomm. Og bara eitt í viðbót.....var næstum því búin að gleyma....að ellan er á leiðinni með frú Jensen til Benidorm í eina viku snemma í okt. Það er búið að bóka ferðina, koma erfingjanum fyrir á meðan og bara allt reddí.....verður það notalegt eða hvað. Gæti samt verið vissara að byrgja sig upp af brúnkukremi í Leifsstöð áður en stigið er um borð í flugvélina, bara svona ef það skyldi vera farið að frysta þarna úti. Ég kveð í bili og þangað til næst...... ~Ellan~ kl. 4:21 e.h. © :: ::HAUSTDAGAR:: Halló, halló. Dulítið langt síðan síðast....ég hef engan tíma til að skrifa en ætla að nota næstu tuttugu mínúturnar til að henda inn smá pistli.....þeim lesendum mínum sem nenna aldrei að baula en baula bara á mig beint yfir leti minni, til ánægju og yndisauka. Jamm, óvissuferðin var fín, þó þetta væri nú eiginlega orðin vissuferð þegar ellan mætti á staðinn, með nokia stígvélin og veiðistöng sonarins. Síðan var smá hittingur fyrir 17.helgar ballið heima hjá ellunni, en ég verð nú að segja að mér fannst skemmtilegra að vera heima hjá mér, heldur en á ballinu. Fannst það bara leiðinlegt.....og þó.....fallegi maðurinn var á ballinu njommnjomm. Svei, hvað hann er flottur.....en samt minna flottur þegar maður talar við hann í síma...vantar svona macho e-ð í röddina hjá honum. Og þó, stundum talar maður við e-m menn í síma, og fellur næstum í stafi yfir hvað röddin er sexý, og svo sér maður viðkomandi...og þá eru þeir hundljótir, hundfeitir, hundleiðinlegir, hundskítugir svo það er kannski bara ok að hann sé ekki með fallega rödd. Hvað um það.......af hýbýlamálum ellunnar er allt fínt að frétta. Komin upp smá ljós, þó þessar rússnesku standi vel fyrir sínu, og svei mér þá, ef hún fer ekki alveg að verða búin að taka upp úr kössum. Ellan var svo næstum lögð af stað til heitu landanna í síðustu viku....en þess í stað verður farið út snemma í okt. Wíííí, það verður ljúft að komast í smá hita og öllara ummmaaaaaa. Nýjustu fréttir af innflutningspartýinu er að það verður einhvern tíman í vetur þegar okkur vantar eitthvað til dægrastyttingar, og þegar hún Nitta mín hefur eitthvað skemmtilegt band á The Thinghouse, svo ég hafi löggilta ástæðu til að henda fyllibyttunum út kl. 01:00. Jamm.....og það er hverjum degi sannara að ég er flutt út í sveit. Ég jánkaði bara kurteisislega þegar fólk fór að tala um að ég byggi út í sveit og hugsaði um leið "yeaaah right". Svo settist ég á setuna um daginn (og læt þess ógetið hvort ég var að gera nr. 1 eða nr. 2, tja, eða bara bæði) og heyrði svo bara; meeeeemeeeeeee. Ég get því ekki lengur neitað því að ég búi út í sveit, og þið eruð velkomin til mín þangað í velling og slátur.....og lummur ef vel liggur á mér.....þegar ykkur hentar. Orðin sko þaulvön sveitapía sem ekur um á dráttarvélum og jafnvel fjórhjólum ef því er að skipta (litli jón var að kennar mér á FJÖRhjól). Það er gaman að keyra þessi síðarnefndu farartæki.... Og enn og aftur að þessu mæta sauðfé... Ég er á leiðinni í réttir á morgun, og þá koma nú bleiku gúmmítútturnar með blómunum sem ég fjárfesti í síðastliðið sumar að góðum notum. Þær eru dásamlegar ;) Jæja, verð að sækja erfingjann í leikskólann. Verra ef greyið yrði lokað þar inni um helgina, sérstaklega þar sem hann er að deyja úr spenningi yfir að fara í réttir, þó hans rolluskjáta komi víst ekki til byggða fyrr en næstu helgi.... Þangað til næst..... ~Ellan~ kl. 4:39 e.h. © :: |