| ............................. |
|
SPRELLAN
|
|
::BRÚÐKAUP:: Jæja, jæja kæru lesendur (sem eru mjöööög margir audda). Það er komið að pistli. Og mér segir svo hugur um að hann verði dulítið langur í þetta skiptið. Hvar skal byrja? Hvar skal nú byrja? Já...fyrir margt löngu síðan var mér boðið í afmælisveislu, nánar tiltekið sextugs afmæli hjá Helenu minni og Hannesi hjásvæfunni hennar. Ellan var búin að nuða og tuða í vinkonunni um að nú væri svo komið að þau ættu nú að láta pússa sig saman, við vægast sagt dræmar undirtektir...Tekur svo Helenan ekki upp á því í gær, þegar voru nákvæmlega 7,5 klukkustundir í ammlisveisluna, að hringja og segja; Fínt veður í dag Ella. Ekki amarlegt að gifta sig í svona veðri!!!! Ellan tók þessu með stóískri ró í fyrstu, lauk samtalinu pollróleg. Svo hófst hamagangurinn, svei mér þá ég var alveg við það að fara yfirum í svona 2 tíma eftir þetta, og það hefði mátt halda að Ellan væri að fara að gifta sig. En þetta var voða gaman jájájá. Reyndar er ég ekki viss um að Helenan tali við mig aftur...það varð náttúruleg að bögga þau smávegis hehehehe;)Eeeeen veislan var skemmtileg, skemmtilegt fólk, mikið drukkið, sungið og sprellað. Svo var haldið á Þinghúsið til að sprella ennþá meira. Þessi barferð, var, ehmmmm...áhugaverð. Sumir eru sjálfsagt þunnir í dag. Ekki Ellan þó, enda komin með ónæmi fyrir áhrifum bölsins. Sem var líka eins gott því það var ekki möguleiki á þynnku kók og þynnku pylsu í dag, nema fara í Staðarskála, Víðigerði eða eitthvað þaðan af lengra, SNM :) Annars eru það ekki bara þessi nýgiftu sem eiga ammli um þessar mundir. Ellan hefur sett persónlegt 4urra vikna met, og sló ég það á föstudaginn. Alveg déskoti ánægð með mig. Og held að Deeze sé það líka :) Og svo í dag er vika þangað til ég fæ húsið fína. Veiveivei hlakka mikið mikið til. Og já, líka vika í að ég verði 2ja barna móðir...tímabundið að minnsta kosti. Allt að gerast, allt að gerast. Ég er að hugsa um að láta þetta duga í bili, þó pistillinn hafi eigi verið eins langur og stóð til. Verð víst að fara að huga að Hlíðarvegs 19 pizzunni, ummmm njomm njomm. Og nýgifta parið...enn og aftur til hamingju. Þið voruð ofsa sæt og fín og þetta var æði æði. Hins vegar beini þeim tilmælum til hinna vina minna að hafi þeir sambærilegar gjörðir í hyggju...veitið mér laaaaaaaangan fyrirvara, eða engan hehehe ;) Þangað til næst... ~Ellan~ kl. 6:29 e.h. © :: ::VARAMAÐUR:: Jæja, ég er komin á varamannabekkinn! Reimar tók mig í liðið í gærkveldi, vermi varamannabekkinn og tilbúin að stökkva inn á fyrir hann 4. júlí ef púkinn þeirra Ínu ákveður að koma í heiminn þann daginn. Reimar er ekki tilbúinn að fórna Metallica tónleikunum fyrir púkann. Nú er því bara mál að múta púkanum að koma í heiminn svo ég fái að vera viðstödd fæðinguna hehe...Mér finnst ekki nema eðlilegt að ég fái að vera viðstödd fæðinguna, því ég hef tekið meðgönguna hjá Ínu alveg óskaplega alvarlega, held ég hafi t.d. dottið í það 2x síðan hún varð ólétt eða eitthvað álíka... Hvað um það...missti endanlega trúna á júróvísjón í gær, sumir voru hræddir við mig (bóndinn) vegna undarlegs svips á Ellunni þegar úrslitin urðu kunngjörð, svo hann forðaði sér hið snarasta. Fólk hafði ekki alveg fílíng fyrir leikjunum, sjálfsagt bara hræddir um að tapa fyrir okkur klobbunum. Kíktum svo á barinn og er svo svakalega eftir mig eftir gærkveldið þ.a. ég ætla að fara að skríða upp í rúm og móra þangað til fólkið á efri hæðinni kemur heim úr sveitinni...það er kannski bara að brjótast fram í mér síðbúin þynnka síðan fyrir 2 vikum. Sussogsvei...gerði ýmislegt þá sem ég hefði betur sleppt...en hef gripið til fyrirbyggjandi aðgerða til að sporna við því að slíkt gerist aftur og hananú! Jamm og svo er það helst í fréttum að það á að skella Ellunni upp á dráttarvél næsta sumar, sumir staðráðnir að smita mig af sveitasýki sonarins...neitaði að fara með áðan að skoða rollurassa því ég varð að vinna...og af því að ég kann ekki að segja nei við alls kyns fáránlegum áskorunum, þá lofaði ég að læra á þessi tryllitæki ef þetta yrði gert fjarri mannabyggðum hehehe...Svei hvað þetta verður fyndið ;) Hey já, 3 vikur í dag í húsið. Aðeins byrjuð að pakka og þ.a.l. allt komið á hvolf heima. Og annað til að gleðjast yfir....sundlaugin opnar eftir 3 daga, er alveg að farast mig langar svo til að synda. Það verður því hátíð hjá Ellunni á miðvikudaginn ;) Þangað til næst..... ~Ellan~ kl. 3:01 e.h. © :: ::HUNDFÚL:: Sáuð þið júróvísjón í gær????? Djö....var ég fúl, að hleypa ekki Dananum í gegn var skandall og glætan að þeir þarna í júróvísjón mafíunni séu eitthvað að skoða niðurstöður símakosninganna arrrrg og garrrg. Allur bévítans Balkanskaginn og allar smáeyjar þarna út í rassgötum komust áfram, alveg sama hvursu léleg lögin voru. En o jæja, það spillir þó ekki væntanlegu júróvísjón partýi á laugardaginn.....það verður skemmtilegt;)Hlakka ægilega mikið til að fara í leiki hehe... ~Ellan~ kl. 3:58 e.h. © :: ::DUGLEG:: Hellú aftur...ég varð bara að monta mig. Gat sett inn linka ALVEG SJÁLF og þurfti enga aðstoð frá Deeze ;) Er svo ánægð með mig að ég er alveg í skýjunum hehe Þangað til næst.... ~Ellan~ kl. 6:06 e.h. © :: ::EUROVISION:: Jæja, þá er mesta stemmningshelgi framundan...EUROVISION, svei ég elska EUROVISION, enda elska ég svona píkupopp hehehe. Vissi ekki hvert einn kúnninn ætlaði þegar hann sá diskinn með Clay Aiken á borðinu hjá mér síðasta vetur ;) Hvað um það, þá stendur yfir skipulagning fyrir helgina og sýnist þetta stefna í hina mestu skemmtun. Erum að hugsa um að fara í e-a leiki fyrr um daginn, borða eitthvað gott, og svo tjútta fram eftir nóttu. Er svona aðeins búin að vera að hlusta á lögin og hér á eftir koma pælingar mínar um lögin.... Andorra; Sussogsvei Albanía; Sussogsvei Austurríki; "Blue" þeirra Austuríkismanna, best geymdir þar bara, hefði ekki átt að hleypa þeim út fyrir landsteinana. Bosnia og Herzegovina; Ekki að fíla það Belgía; Lala Belarus; Nei takk Switzerland; Bumbult Serbía og nágrannar; Niiiii, samt eitthvað smá við þetta lag. Kýpur; Alveg eins og eitthvað gamalt ABBA lag, og það er eins og hún sé að fá það á háu nótunum...eða eitthvað þaðan af verra...ojojojojjjjjjj Þýskaland; Er alveg geðveikt að fíla þetta lag, finnst takturinn alveg svaka "hipp og kúl", og svo spillir ekki fyrir að maðurinn syngur bara alveg ágætlega á ensku. Það er nefnilega óþolandi að nær allar þjóðirnar syngja á ensku þó að það sé svo óskýrt að það sé alveg eins gott að lögin séu sungin á móðurmálinu frá einhverjum Balkanskögum, því maður skilur jafn lítið þó þau syngi á ensku. Bara ekki horfa á söngvarann því hann er frekar ófríður greyið... Danmörk; Kemur mér í svolítið stuð, en finnst lagið miklu flottara á dönsku, en þessa dagana elska ég allt danskt...ummmmm mí lækí lækí. Myndbandið floppaði reyndar alveg, en ef hann Tomas Thordarson verður góður á sviðinu gef ég honum "dúsupwa". Eistland; Niiiii Spánn; 10 stig bara fyrir að syngja á móðurmálinu. Frakkland; Strákurinn er smá kjútípæ og svo syngur hann á frönsku...og það er kúl. Svo gef honum nokkur stig. Finnland; Hvað er þetta með Finnland...hafa þeir einhvern tímann sent inn gott lag? Hélt ekki, þetta ár er engin undantekning. Bretland; Svona Brian Adams týpa... þokkalega minna bólugrafinn en hinn upprunalegi...lag sem maður fær á heilann...lenda allavega ofar en þau lentu á síðasta ári hohoho. Grikkland; Byrjar með svaka góðum takti og maður byrjar að hrista á sér bossann, síðan byrjar maðurinn að syngja á ensku og stuðið gufar upp...hefði kannski átt smá sjéns hef hann hefði sungið á grísku eymingja maðurinn. Króatía; Svona týpískt júróvísjón lag...gömlu kvennsurnar eiga eftir að fýla það. Eins og góður slagari frá Húlíó Íglesías hehe. Írland; Sussogsvei Ísrael; Sveiogsussogsussogsvei Ísland; Auðvitað heldur maður með gamla bekkjarfélaganum og vonast til að hann verði svona fyrir miðju...Jónsi er alltaf flottur, og sumir halda ekki vatni þegar hann fer úr að ofan, en ég var sko með honum í SKÓLASUNDI og þvílíkur kroppur ;) En útlitið skiptir ekki máli, heldur innri maður. Og hann er súperfínn strákur, bara of mikil orkusuga... Litháen; Kemur mér í e-ð undarlegt stööööð... Latvia; Nei takk Monaco; Erfitt að segja þó sungið á frönsku... Malta; Neineinei Macedonia; Sáuð þið myndbandið??jesus og gossh segi ég nú bara... Holland; Nei Noregur; Mér finnst það hipp og kúl. Pólland; Ótrúlega hallærislegt lag, en samt sveiflast ég smá með því, sem er skuggalegt!!!! Portúgal; Ekki að gera sig Rúmenía; Gellan hugsar nú meira um að vera e-ð sexí frekar en að syngja, enda verður hún sjálfsagt að gera það því hún er með hundlélegt lag...samt fær maður þessa bévítans "I admit" laglínu á heilann, og því er ég að spá í að fara í mál við Rúmverska RÚV. Rússland; Þó að enskan sé ömurleg þá á þetta lag bara góða möguleika, en þó einungis ef hún sleppir þessum gítar. Það útspil er fáránlegt! Svíþjóð; Spekingar segja að Svíar séu með pottþétta blöndu núna, en mér finnst þetta bara ekkert skemmtilegt lag. Slóvenía; Týpískt júróvísjón lag, en ógeðslega fyndið myndbandið, kjéddlíngin var í GULLKJÓL sem náði rétt niður fyrir rassakinnarnar hehehe ;) Trykland; Ekki að gera sig Úkraína; Ekki að gera sig. Hana, þar hafið þið það kæra fólk. Greining Ellunnar á EUROVISION, allir að horfa á í kvöld og á laugardaginn ;) Þangað til næst..... ~Ellan~ kl. 4:22 e.h. © :: ::SUNDSUND:: Ellan er stödd á sundmóti þessa helgina...en bloggar samt (bara fyrir Gurrý hehe). Ég hvet svo Tangabúa og nærsveitunga að koma sér upp í sundlaug og taka sér skeiðklukku í hönd, eða bara horfa á og hvetja krakkana......svaka stööööð og svaka gaman ;) ~Ellan~ kl. 3:19 e.h. © :: ::MÁNUÐUR Í HÚS:: Hey....það er mánuður í hús í dag ;) ~Ellan~ kl. 2:30 e.h. © :: |