| ............................. |
|
SPRELLAN
|
|
::PUHUUUUU:: Ég er búin að vera að vinna um helgina ;( Meiri kröfurnar í þessum skattayfirvöldum að skikka fólk til þess að skila inn skattframtölum hehehehe…..Annars er ég ekki að gera neitt leiðinlegt, gaman að vasast í sköttum landans….tjútta bara yfir þessu og hef það notalegt ;) What´s your name, what´s your number/Sometime I feel like I´m in Barcelona/I push my seat….trallalaaaaa. Svo hvað er ég að kvarta????? Auk þess vann ég bara 3 virka daga í liðinni viku, því leikskólinn var lokaður á þriðjudaginn svo páskafríð hjá Ellunni og erfingjanum lengdist um einn dag, sem var mjöööööög gott. Þ.a. ég er hætt að væla. Vikan er búin að einkennast af gríðarlegum dugnaði í Ellunni, nema þá í heimilisverkunum, enda var ég svo svakalega dugleg í þeim efnum um páskana svo það er nú í lagi að slá aðeins slöku við…..held það nú. Allavega, búin að vera alveg heavy dugleg að synda og baddmintonast þessa vikuna. Þegar nær dró helgi þá kom hugur í Forsvarsklobbana að gera eitthvað skemmtilegt á fös.kveldið. En aldrei þessu vant þá var erfitt að ákveða hvað við skyldum taka okkur fyrir hendur…..og hvað haldiði að hafi verið niðurstaðan……ehmmmm….BADMINTON auðvitað. Erum svo badmintonsjúkar að það hálfa væri nóg. Buðum nokkrum non-klobbum með og úr varð hin mesta skemmtun, aðallega þó fyrir non-klobbana, en okkar tími mun koma ;) Svo var brunað í sveitina til Deeze og borðað á sig gat af köku og öðru lostæti. Þegar þeim herlegheitum var lokið tók við æsispennandi keppni í Trivial Pursuit…og auðvitað unnum við bóvf…..aðallega bóvf þó. Hann er alveg skelfilega klár, fjúhhhh að ég lenti með honum í liði hehehe. Var s.s. út í sveit fram á rauða nótt, og hef ekki farið svona seint að sofa árum saman. Gekk smá erfiðlega að keyra heim, því ég hló svo mikið á leiðinni til baka að merides og árna úrsbekistan. Þetta eru nú meiri jólasveinarnir…. Í gærmorgun var svo aftur badminton hjá klobbunum. Ellan er búin að uppgötva að hún er bara hinn versti skaphundur. Varð svo reið í einum leiknum að mig langaði bara til að…tja…sýna Nittu og Deeze færni mína í karate…dírírííííí. Jebberíjebb….held svo að ég hafi gert endanlega út af við mig í dag með sunnudagssvammlinu. Held ég sé að verða kreizzí af einhverji hreyfiþörf þessa dagana…..er skelfilega þreytt í öxlunum og hefði verið nær að teygja betur. En þetta er ok, er að semja við kjútípæið að kíkja í heimsókn til að nudda á mér axlirnar ;) Nýja rúmið mitt er komið norður……sumir spurðu hvurn andskotann ég hefði verið að pæla. Ég gæti ábyggilega sofið þversum í því! Ég benti viðkomandi nú bara pent á að það vantaði 1cm upp á að það gæti gengið upp. Það væri nú bagalegt ef 1cm ef Ellunni stæði út úr. Finnst ykkur haggi??? Er svo í svaka pælingum um gardínur núna. Á Ellan að kaupa sér viðarrimlagardínur, eða rimlagardínur úr plasti en í viðarlíki. Þetta er erfitt já seisei. Svo er ég nú búin að fá ýmis skemmtileg sms undanfarið. Nokkur sýnishorn; - Hæ. Eg er ekki buinn ad gleyma ter. Kv. Helgi I grænuhlid - Hæ. Takk fyrir sidast ;) - Telma er ad fara illa med Ingvar, hann er örugglega buinn ad laga sokkinn hennar 100x. Skondid. logi Bara verst að ég þekki engan Helga og þaðan af síður Loga. Jæja, saltfiskurinn hjá múttu bíður ;) Þangað til næst..... ~Ellan~ kl. 6:31 e.h. © :: ::PÁSKARNIR:: Voru sko bara fínir. Margt brallað, mikið fjör og mikið gaman. Smá „hint“: - Borðaði á mig gat. - Hélt íbúðinni íbúðarhæfri. - Fékk fullt af góðum heimsóknum. - Eyddi laugardagskveldinu í að skrifa upp sundæfingar næstu 3ja vikna. - Fór í baddminton. - Frestaði innflutningnum hugsanlega um mánuð. - Horfði á Gone With the Wind (sem er ekki nema 224mín). - Þvoði fjölskyldubílinn í fyrsta skiptið.......tjöruhreinsaður og sápuþveginn jiiii hvað ég er stolt af mér. - Prjónaði. - Föndraði. - Datt ekki í það = engin þynnka = engir skandalar. Sem er náttúrulega bara tær snilld. - Fór snemma að sofa og seint á fætur. Jamm margt brasað um páskana, sumt skemmtilegt, sumt leiðinlegt. Sérstaklega erfið ákvörðun að lána húsið mitt kannski í mánuð, en hvað gerir maður ekki fyrir náungakærleikann...og síðan hef ég einkennilega áráttu sem er sú að fórna mér fyrir heildina.....en sumsé þá er þessi ákvörðun Ellunnar nokkur er varðar almannahagsmuni og tryggir mér VIP að vistarverum herrans þarna uppi. Sumir voru reyndar ánægðari með þetta en ég, og þar á ég við hana Ínu sem var snögg að átta sig á því að með þessum ráðahag kæmist hún í innflutningspartýið ógurlega sem á víst að halda, enda púkinn mættur og Reimar sjálfsagt látinn vera heima að passa á meðan hún slettir úr klaufunum. Svo hún hvatti mig eindregið til þess að seinka innflutningi okkar mæðgina um mánuð hehehe. Sundlaugin verður svo mitt annað heimili næstu vikurnar, og ef þið eigið erfitt með að ná í mig, þá verð ég þar. Er orðin hundleið á þessari vanvirðingu minni gagnvart sundæfingum sem hefur varað síðan fyrir jól, svo ég eyddi þeim mínútum sem RÚV sýndi Stellu í framboði í að skrifa upp sundæfingar næstu 3ja vikna. Sé sko ekki eftir þeim tíma, enda var líka þessi mynd alveg endalaust léleg, eða ég í óheppilegu skapi eða eitthvað...... Jæja, verð að fara að hætta þessu bulli því M er á leiðinni í heimsókn. En hafiði heyrt af því að Paparnir verði í Víðihlíð 24. apríl????? Ef svo verður þá er skyldumæting, og við HELENA mætum. Hún veit það reyndar ekki ennþá.....en við mætum....og Ellan lofar að bæta sig í drykkjunni frá síðasta miðvikudegi....enda ekki erfitt. ~Ellan~ kl. 12:53 e.h. © :: ::RITSTÍFLA:: Jamm svoleiðis er það nú lesendur góðir, Ellan hefur verið haldin sjaldgæfri ritstíflu undanfarið, svo nú fáið þið svo sannarlega að heyra það hehe. Ekki að það séu einhver undur og stórmerki búin að eiga sér stað. Og þó.....hmmmm....., við erfinginn erum reyndar byrjuð á 12 vikna fitubrennsluátaki. Eða meira svona, móðir hans, og hann móður sinni til andlegs stuðnings og „upppeppingar“. Jamm, þetta fína fitubrennsluátak felst í því að setja bílinn í straff og skvera sér á milli staða FÓTGANGANDI, þ.e.a.s. Ellan labbar og sonurinn fer hjólandi, enda leyfilegt því hann er „upppeppingur”. Og það gengur bara fínt skal ég segja ykkur. Var meira segja svo ákveðin í morgun að ég labbaði í leikskólann með soninn, og svo aftur heim til að ná í bílinn, því ég var löglega afsökuð. Þurfti að fara út í sveit að vinna, og ef ég hefði átt að fara þá leið fótgangandi, hefðuð þið annað hvort heyrt af mér svona í kringum sumardaginn fyrsta, eða í dánartilkynningum Morgunblaðsins! En eins og áður sagði, gengur þetta vel, alveg heilir fjórir dagar liðnir og erum við erfinginn með þau háleitu markmið að fara einnig með þessu móti leiðar okkar í fyrramálið, og þá verða það fimm daga í röð. Geri aðrir betur segi ég nú bara. Held ég að aðrir og meiri ýstrubelgir (eða skrifar maður ístrubelgir???) en ég eins og framkvæmdastjóri þess félags er ég er gjaldkeri fyrir, ættu að taka framtakssemi Ellunnar til fyrirmyndar!!!! Hey já, það bætast stöðugt kvennsur í Klobbaklúbbinn fína, enda klúbbur sem eftirsóknarvert er að fá VIP að!!!! Aldan er sú nýjasta og stóð hún sig með stakri prýði síðasta miðvikudag, ó já. Öldusonur fékk líka að fljóta með, en hann svaf nú allan tímann svo ég gat með engu móti gefið stelpunum löglega pásu fyrir stöðugu „griddsj-i“ Ellunar. En þið ykkar sem mættuð ekki, þurfið að hlaupa 20 hringi í salnum næst áður en þið fáið að taka upp spaðana „and dú ðí gridddsj gridddsj“ sem refsingu fyrir að slaufa Klobbabadmintoni og ekki orð um það meir. Næst verður beitt sektum og viðurlögum. Hvað haldiði svo að Ellan hafi gert í dag......ég fór og náði mér í málningarspjöld.....ekki seinna vænna að fara að ákveða málningu á kofann...., BARA rétt rúmir tveir mánuðir þangað til ég fæ lyklana að kofanum, og ehmmmm.....kíkti líka á hin ýmsu gólfefni hehe. Svo vorum við húsbóndinn (eða, þessi sem heldur að hann sé húsbóndinn en er það sko EKKI) svo löt þegar kom að því að sýna tilþrif okkar í eldhúsinu fyrr í kveld, að við fórum bara út að borða hjá Nittu. Uppgötvuðum svo að það væri kominn ís í vélina hjá Söluskálanum á Hvammstanga, þannig að eftirréttur var óumflýjanlegur. Er því að springa núna......og ég í fitubrennsluátaki *flautflaut*. Jamm og síðan var ég að átta mig á því að það verður bara svolítið mikið að gera hjá mér árið 2004. Fæ húsið 6. júní, fer til Danaveldis 16. júní með familíunni í to uger (er jeg ikke god på dansk), og svo í sólina með frú Jessen í sept. Úff púff....hvurning ætli fjármálin líti eiginlega út með haustinu. Við hjónaleysin ræddum reyndar fjármálin í dag og sáum alveg fram á að redda þessu.....en það var þegar hann vissi bara um bíla- og húsakaup mín og áður en hann vissi af öllum utanlandsferðum konunnar dírírííííí. Hey, segi bara að ég sé í húsmæðraorlofi í Hrísey eða eitthvað. Eða skipa honum að taka að sér skúringarvinnu á kveldin hehehe.... Wellí wellí, verð að hætta í bili. Sex and the City er að byrja. Endalaust góðir þættir ;) Þangað til næst....... ~Ellan~ kl. 10:08 e.h. © :: |