| ............................. |
|
SPRELLAN
|
|
::UPPGJÖR HELGARINNAR:: Helgin er búin að vera mjög fín skal ég segja ykkur. Helgi framkvæmda, ótrúlegt en satt. Mórði reyndar lengi upp í rúmi bæði í gær og í dag, en það er nú bara fínt stöku og sinnum. Þegar búið var að hrista slenið af sér í gær, var tekið til m.a.s. þurrkað af stofustássunum svo ég þarf ekki að gera það aftur fyrr en ég verð komin í nýja húsið hehe.... Jamm, og svo fékk ég einn lítinn púka í heimsókn í gær. Litla bróður erfingjans, og hann grenjaði ekki einu sinni. Nei, nei sat bara og lék sér á meðan Ellan og móðursystirin steiktu PARTA sem voru btw verí verí góðir ;) Er samt ekki viss um að móðirin hafi verið mjög ánægð þegar hún sótti hann í gær, angandi af steikingarlykt sem og útataðan í hveiti. Það er hins vegar aukaatriði, mestu skiptir að púkinn skemmti sér hehe. Á meðan ðí Deeze and ðí Nitta trylltu lýðinn í gærkveldi á hinni árlegu söngvakeppni, svaf ég á mínu græna, enda orðin skelfilega lúin eftir framkvæmdir gærdagsins. Það er hins vegar huggun harmi gegn að heyrst hefur að herlegheitin hafi samviskusamlega verið tekin upp á myndband og verði gefið út á sölumyndband hvað úr hverju. Skífan hlítur að hafa keypt söluréttin, er haggi rétt? Sonurinn fór svo út í sveit í dag með litla Jóni og frænku sinni. Á meðan notaði ég tímann og henti rykmaurum þeim er höfðu deilt vistarverum þeim er kenndar eru við svefn, með Ellunni og erfingjanum, á dyr. Ef ég segi svo alveg eins og er, þá voru nú ekki einu sinni blendnar tilfinningar yfir gjörningnum, þrátt fyrir náin kynni undanfarið hehe. Að því loknu tóku til enn meiri hreingerningar í þetta skipti var ráðist á bílinn, reyndar bara innandyra. Tók Ellan sér ryksugu í aðra hönd og skúringarfötuna í hina og hélt áleiðis til foreldranna þar sem aðstæður til slíkra framkvæmda eru í toppstandi. Eitthvað gekk nú erfiðlega að koma fjölskyldubílnum fyrir í heimkeyrslunni á Melavegi 6, þar sem læknabíllinn var búinn að troða sér þangað. Jamm, eigum við ekki bara að segja að sumir hafi verið of æstir við tiltekt í bílskúrnum. Nánar tiltekið við að taka saman það dót sem Ellan á ennþá í föðurhúsum, og í hita leiksins misst jafnvægisskynið hehe.... o svei, það er ljótt að hlægja að þessu. Jæja, þetta dugar ekki lengur. Vissara að fara að huga að haughopparanum sem er í matinn, en þegar slíkt lostæti er í matinn verður að hafa tvíréttað. Erfinginn getur með engu móti étið haughoppara. Þess í stað fær hann uppáhaldið sitt í kvöldmat, sem er dúdúrúúúúú......bjúgu. Ef hann fengi að ráða væru bjúgu í öll mál. Nóg um það. En....var ég búin að segja ykkur að ég var að kaupa mér hús?????? ~Ellan~ kl. 6:44 e.h. © :: ::HÚSAKAUP:: Var ég búin að segja ykkur gott fólk að ég er búin að kaupa mér hús????? Allavega þá er þetta bara allt gengið í gegn. Búin að skrifa undir alla heimsins pappíra og Hlíðarvegur 24 er orðinn minn ;) Í framhaldi af því er ég náttúrulega orðin eins og aðrir Íslendingar.....stórskuldug.....en ég á líka hús í staðinn jibbbí. Fór í húsið MITT í gær til að skrifa undir pappírana, og parketið er bara ekki eins ljóst eins og mér fannst það vera, dúkarnir á herbergjunum eru alltaf að verða skárri og skárri hehehe....var svo búin að ákveða að skápurinn í herbergi erfingjans skyldi fara út og inn í forstofu (svo móðir hans hefði meira pláss til að athafna sig við dótaupptýnslu), þá var skápurinn bara ekki eins lítill og Elluna minnti, og gæti verið að dúkurinn væri ekki lagður nema að honum, loftlistarnir gætu líka orsakað smá vandamál. En o jæjajæjajæja, ég fæ kannski að kippa ættföðurnum (þessi sem getur allt og átti sko í gamla daga "Toyota Landcruiser TURBÓ") með í heimsókn og læt hann græja þetta. Hann verður nú að hafa eitthvað að gera í ellinni eymingja maðurinn hehe....En hey, var ég búin að segja ykkur að ég var að kaupa mér hús????? ~Ellan~ kl. 8:51 f.h. © :: testíng testíng ~Ellan~ kl. 8:54 e.h. © :: Testing testing Hmmm....rosalega er ég klár. Er haggi ??? ~Ellan~ kl. 12:11 e.h. © :: Jæja jæja. Elín komin á bloggið.... ~Ellan~ kl. 10:57 f.h. © :: |